Fréttablaðið - 08.06.2019, Blaðsíða 26
MANNESKJA SEM ER
MEÐ ANDFÉLAGSLEGA
PERSÓNULEIKARÖSK-
UN, TIL AÐ MYNDA
SIÐBLINDINGI, SKYNJ-
AR ÞESSA VANLÍÐAN
EN FINNUR EKKI TIL.
Simon Baron-
Choen
ÉG HEF REKIST Á FÓLK
SEM HEFUR KOMIST MJÖG
LANGT Í LÍFINU EN MÉR
FINNST ALGJÖRLEGA
VANTA SAMHYGÐ. ÞAÐ ER
ÓGNVEKJANDI OG FLESTIR
KANNAST VIÐ AÐ HAFA
HITT SLÍKT FÓLK.
Kári Stefánsson
Er hægt að sjá illmenni sem manneskjur sem stríða við fötlun og eru vanhæfar til að skilja og tjá tilfinningar?Íslensk erfðagreining
efndi til fræðslufundar á fimmtu-
daginn og þar ræddi Simon Baron-
Cohen, sálfræðingur og prófessor
í þróunarsálfræði, um rannsóknir
sínar en hann hefur reynt að svara
þessum spurningum á vísindalegan
hátt í bókum sínum, til að mynda í
bókinni Zero Degrees of Empathy
– A New Theory of Human Cruelty
þar sem hann reynir að grafast fyrir
um upptök þess sem við köllum
illsku með því að nálgast hana sem
dvínandi samkennd (e. empathy
erosion). Eða það þegar fólk hlut-
gerir aðrar lifandi verur.
„Við höfum ekki hugmynd um
það hvernig hugurinn býr til hugs-
anir og tilfinningar, það er engin
spurning um það að gæska manns-
ins og grimmd á hvort tveggja rætur
sínar í starfsemi heilans,“ segir Kári
en hann og Simon hafa rætt um
frekara samstarf á þessu sviði.
„Í bók sinni Zero Degrees of
Empathy fjallar Simon um fólk sem
er án samkenndar. Samkennd er á
rófi, fólk getur haft litla samkennd,
í meðallagi eða óvanalega mikla
samkennd. Þeir sem sýna af sér
mesta grimmd eru oft ekki ófærir
um að skynja hvernig öðrum líður,
heldur geta þeir lesið í tilfinningar
annarra og notfært sér þær til eigin
hagsmuna,“ segir Kári og segir að
þannig verði verstu illvirkin ekki
eingöngu skýrð með skorti á sam-
kennd.
Simon útskýrði þetta vel í
fræðsluerindi sínu í Íslenskri erfða-
greiningu og lagði ríka áherslu á
að það er himinn og haf á milli sið-
blindingja og illvirkja og til dæmis
einhverfra sem eiga í basli með
að lesa tilfinningar en finna til og
fara í uppnám þegar þeir skynja að
öðrum líður illa.
„Manneskja sem er með and-
félagslega persónuleikaröskun,
til að mynda siðblindingi, skynjar
þessa vanlíðan en finnur ekki til og
reynir ekki að bregðast við nema þá
í eiginhagsmunaskyni,“ útskýrði
Simon og gaf nokkur dæmi um ein-
staklinga í heimssögunni sem hafa
annars vegar orðið þekktir fyrir litla
samkennd og hins vegar mikla.
Sem dæmi um mann sem hafði
líklega ekki snefil af samkennd
nefndi Simon Joseph Mengele sem
var læknir í útrýmingarbúðum nas-
ista í Auschwits í seinni heimsstyrj-
öldinni og framdi gróf of beldisverk
á fórnarlömbum sínum.
Sem dæmi um mann með óvenju-
lega mikla samkennd nefndi hann
Raoul Wallenberg, sænska sendi-
fulltrúann sem bjargaði þúsundum
gyðinga í stríðinu með því að falsa
fyrir þá vegabréf. Joseph fórnaði
öðrum manneskjum á meðan Raoul
fórnaði sjálfum sér í þágu annarra
manneskja.
Kári segist nálgast viðfangsefnið
eins og önnur sem vert er að rann-
saka á mjög gagnrýninn hátt.
Rót illskunnar
Josef Mengele, læknir í útrýmingarbúðum nasista,
framdi óhugnanleg ofbeldisverk á saklausu fólki, bjó að
mati Simons ekki yfir samkennd og hlutgerði fólk.
Raoul Wallenberg, sænski sendifulltrúinn sem bjargaði
þúsundum gyðinga með því að falsa vegabréf, sýndi
samkennd sína í verki og fórnaði sjálfum sér.
Hæfileikinn til að geta fundið til með öðrum í gleði og sorg er einn
mikilvægasti þáttur mennskunnar. En hvað gerist þegar sam-
kenndina vantar? Er þar að finna rót illskunnar? Svarið er ekki
svo einfalt, segja þeir Kári Stefánsson og Simon Baron-Cohen.
miklu máli í mannlegum sam-
skiptum. Mannkynssagan er þessi
samskipti og átök góðs og ills. Ég
hef rekist á fólk sem hefur komist
mjög langt í lífinu en mér finnst
algjörlega vanta samhygð. Það er
ógnvekjandi og f lestir kannast við
að hafa hitt slíkt fólk.
Illska er í raun og veru fötlun, þó
að við meðhöndlum hana ekki sem
slíka. Því það eru ótal erfiðar spurn-
ingar sem við eigum eftir að svara.
Á til dæmis að refsa mönnum fyrir
afleiðingar þess að glíma við slíka
fötlun? Þetta eru mjög viðkvæmar
og erfiðar spurningar,“ segir Kári
sem segir einnig vitað að samkennd
sé bæði meðfæddur eiginleiki og
uppeldislegur. Þeir sem sýni litla
samkennd geti verið minna hæfir
til þess vegna erfða eða röskunar
á heilastarfsemi til dæmis vegna
of beldis eða misnotkunar sem
hefur valdið skaða í tilfinningalíf-
inu.
Simon sagði hugtakið illska ekki
gagnlegt. „Þegar siðblindingi frem-
ur illvirki þá eru fjölmiðlar f ljótir
að álykta að ástæðan sé sú að hann
sé illur. Illska er ekki mjög gagnlegt
hugtak að mínu mati en það er aftur
á móti samkennd,“ sagði Simon
og sagðist trúa því að með því að
rannsaka hugtakið enn betur væri
mögulega hægt að þróa einhvers
konar meðferð eða fyrirbyggjandi
úrræði.
Simon hefur gagnrýnt að geð-
læknisfræðin búi ekki yfir grein-
ingu á samkennd og skortinum á
henni og Kári segir það athyglis-
verða staðreynd. „Það er mjög
áhugavert því ég heyrði einu sinni
barnageðlækni halda því fram að
65% fanga hefðu verið greind með
mótþróaþrjóskuröskun, sem bendir
til þess að þegar við förum að grafa
í orsakir þess að menn fremji glæpi
má oft finna skýringu í fyrirbrigð-
um sem falla undir sjúkdómsgrein-
ingar,“ segir Kári.
En hvað um augnráð konunnar á
myndinni hér að ofan? Rétta svarið
að sögn Simons er að konan er full
vonleysis eða döpur.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Simon Baron-
Cohen hefur
beðið fólk um að
svara því hvaða
tilfinningar og
líðan megi lesa úr
augnsvip þessarar
konu í rannsókn-
um sínum. Svarið
gefur til kynna
hvort viðkomandi
búi yfir hæfni til
að skilja og lesa í
tilfinningar.
n Kaldhæðin?
n Ströng?
n Tortryggin?
n Vonlaus, döpur?
„Það sem mig langar að gera
er að taka eitt af þessum mæli-
tækjum sem Simon hefur búið
til og leita að breytanleika í
erfðum þegar kemur að sam-
kennd. Það er spennandi að
nota erfðafræðina til að rann-
saka samkennd og skortinn á
henni. Ég ætla að ræða við hann
um möguleikana sem tengjast
þessum rannsóknum,“ segir
Kári. „Ef manni tekst að finna
breytanleika í erfðamenginu
sem tengjast á marktækan hátt
þá þýðir það að samhygð á rætur
sínar í líffræðilegum ferlum í heil-
anum. En spurningin stóra er um
grimmdina, er grimmd eitthvað
annað og meira en skorturinn á
hinu góða? Er grimmdin eitthvað
alveg sérstakt eða er hún eitthvað
sem gerist þegar þú tekur í burtu
samkenndina?“
Kári segir samfélagslega mikil-
vægt að rannsaka samkennd,
grimmdina og gæskuna. „Það er
manninum mikilvægt að skilja
sjálfan sig sem dýrategund og
samkenndin skiptir ótrúlega
8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-1
6
7
C
2
3
3
0
-1
5
4
0
2
3
3
0
-1
4
0
4
2
3
3
0
-1
2
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K