Fréttablaðið - 08.06.2019, Qupperneq 40
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir
eftir kennara á unglingastigi á
Kleppjárnsreykjum
Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfsstöðva grunn-
skóli í Borgarbyggð með um 180 nemendur. Starfsstöðvar
hans eru á Kleppjárnsreykjum, Varmalandi og Hvanneyri.
Einkunnarorð skólans eru gleði, heilbrigði og árangur og
eru þau höfð að leiðarljósi í öllu starfi skólans.
Kennarar á unglingastigi vinna í teymi með 8.-10. bekk.
Auglýst er eftir öflugum kennara til að vera fjórði kennari
í teymi. Til greina kemur að hluti starfsins sé sérkennsla.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf grunnskólakennara
• Áhugi og metnaður fyrir að starfa með börnum
og ungmennum
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Jákvæðni og lipurð í samskiptum
• Framtaksemi og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Metnaður í starfi
Mikilvægt að umsækjandi sé tilbúinn að vinna eftir stefnu
og gildum skólans. Sjá heimasíðu http://www.gbf.is/
Í samræmi við jafnréttisstefnu Grunnskóla Borgarfjarðar
og Borgarbyggðar eru jafnt karlar sem konur hvött til að
sækja um störf hjá sveitarfélaginu. Laun og starfskjör eru
samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitar-
félaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir skal senda til Helgu Jensínu Svavarsdóttur
skólastjóra með upplýsingum um menntun, réttindi og
starfsreynslu, ásamt ábendingu um meðmælendur á
netfangið helga@gbf.is og einnig er hægt að fá nánari
upplýsingar hjá henni í síma 861-1661.
Umsóknarfrestur er til 17. júní nk.
Hjúkrunarfræðingur á Heilbrigðisstofnun
suðurlands á Hornafirði
Hjúkrunardeild HSU á Hornafirði leitar að hjúkrunarfræð-
ingi í framtíðarstarf.
Um er að ræða 80 - 100% vaktavinnu sem felur í sér
morgun- og kvöldvaktir og bakvaktir á nóttunni.
Skjólgarður er heimilislegt hjúkrunarheimili rekið af
Sveitarfélaginu Hornafjörður samkvæmt þjónustusamning
þess við Sjúkratryggingar Íslands undir HSU á Hornafirði.
Skjólgarður starfar samkvæmt hugmyndafræðinni Lev og
Bo.
Hjúkrunardeildin er með 24 hjúkrunarrými og 4 sjúkrarými
ásamt 6 rýma dvalardeild sem er í sér húsnæði. Hjúkrunar-
fræðingar eru að þjónusta þessi rými. Sjúkrarýmin eru
hluti af bráðaþjónustu HSU á Hornafirði. Hjúkrunarfræð-
ingum stofnunarinnar býðst, að vera í viðbótar útkalls-
þjónustu neyðarflutninga.
Hæfnikröfur
• Reynsla í starfi
• Fagleg hæfni og metnaður
• Skipulagshæfileikar og geta til að vinna sjálfstætt
• Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
• Starfsleyfi landlæknis
• Góð íslenskukunnátta
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Fíh og Samband
íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 20. júní 2019.
Upplýsingar um starfið veitir Helena Bragadóttir,
hjúkrunarstjóri Skjólgarðs, s. 470-8630 / 470-8635,
helenab@hornafjordur.is sem einnig gefur upplýsingar
um starfið. Einnig er hægt að senda á Guðrúnu Döddu
Ásmundardóttur, framkvæmdastjóra HSU Hornafirði, sími
470-8616, gudrunda@hornafjordur.is.
Hlutverk bankasviðs er að starfrækja áhættumiðað eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja. Eftirlitið
felur m.a. í sér reglubundna vöktun á starfsemi fyrirtækjanna á grundvelli gagnaskila, mat á áhættu og
áhættustýringu þeirra.
Um er að ræða fjölbreytt starf sem snýr að mati og eftirliti með líkönum sem notuð eru til að mæla
fjárhagslega áhættu sem fjármálafyrirtæki, undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins, standa frammi fyrir, m.a.
útlánaáhættu, markaðsáhættu, samþjöppunaráhættu og kerfisáhættu. Líkönin eru í sumum tilfellum
grundvöllur þeirra eiginfjárkrafna sem Fjármálaeftirlitið gerir til fjármálafyrirtækja.
SÉRFRÆÐINGUR Í
ÁHÆTTULÍKÖNUM
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA
Bankasvið leitar að
sérfræðingi í greiningu og
eftirliti með áhættulíkönum
fjármálafyrirtækja.
Frekari upplýsingar veita Elmar
Ásbjörnsson, forstöðumaður á bankasviði
(elmara@fme.is) og Árni Ragnar
Stefánsson, mannauðsstjóri (arni@fme.is).
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir
að sækja um starfið á heimasíðu
Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is eða á
www.starfatorg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júní nk.
Umsóknum um starfið þarf að fylgja ítarleg
ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni
viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Starfssvið
• Greining og eftirlit með innri áhættumatslíkönum sem
eftirlitsskyldir aðilar nota við mat á eiginfjárþörf, einkum
útlánaáhættu
• Eftirlit með öðrum líkönum, t.d. virðisrýrnunar-
og verðlagningarlíkönum
• Mat á umgjörð líkana fjármálafyrirtækja
• Þróun á aðferðafræði Fjármálaeftirlitsins við mat á áhættu
og framkvæmd áhættumats
• Þátttaka í öðrum verkefnum sviðsins og alþjóðlegu samstarfi
Hæfniskröfur
• Háskólagráða í verkfræði, stærðfræði eða sambærilegu námi
• Þekking á líkönum sem notuð eru til að mæla fjárhagslega
áhættu
• Viðeigandi þekking og reynsla á fjármálamarkaði
• Rík greiningarhæfni, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Færni í ritun og framsetningu texta á íslensku og ensku
• Jákvæðni, frumkvæði, góð hæfni í samskiptum og til þátttöku
í hópavinnu
www.ruv.is
Verkefnastjóri vefútgáfu
og samfélagsmiðla
Númiðlar og Rás 2
Við leitum að verkefnastjóra í fullt starf
með reynslu í vefvinnslu, miðlun efnis
á samfélagsmiðlum og mjög gott vald
á íslensku máli. Verkefnastjóri stýrir
teymum í húsinu þvert á deildir sem
miðla efni á samfélagsmiðla.
Gerð er rík krafa til verkefnastjóra um
fagmennsku, óhlutdrægni og sjálfstæði í
vinnubrögðum. Vefur og samfélagsmiðlar
eru mikilvægar miðlunarleiðir og skipa
stóran sess í þróun RÚV til næstu ára.
Dagskrárgerðarmenn
Menning og Rás 1
Við leitum að tveimur
dagskrárgerðarmönnum í fullt starf
með breiða og góða þekkingu, reynslu
af fjölmiðlum og brennandi áhuga á
dagskrárgerð og miðlun menningarefnis.
Gerð er krafa til dagskrárgerðarmanna
um mikið frumkvæði, drifkraft og
hugmyndaauðgi auk mjög góðs valds á
íslensku máli.
RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla.
Öflugt og samhent starfsfólk RÚV skoðar samfélagið með gagnrýnum
hætti, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar.
Við hvetjum áhugasama til að sækja
um, óháð kyni og uppruna.
Skil umsókna og nánari upplýsingar eru á
umsokn.ruv.is.
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-2
0
5
C
2
3
3
0
-1
F
2
0
2
3
3
0
-1
D
E
4
2
3
3
0
-1
C
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K