Fréttablaðið - 08.06.2019, Qupperneq 64
Frá örófi alda
hafa konur á
meðgöngu hlotið
andlegan stuðn-
ing frá kvenkyns
ættingjum.
Samkvæmt mastersritgerð Magneu Steineyjar Þórðar-dóttur sem ber titilinn Dúlur
og félagsráðgjöf, „hún var svona
manneskjan mín“, þá hefur sam-
felld þjónusta við konur fyrir
og eftir fæðingu dvínað eftir að
fæðingar færðust frá heimilum yfir
á sjúkrahús.
Dúla er einstaklingur sem er
ráðinn til að aðstoða konu á með-
göngu, í fæðingu og eftir fæðingu.
Orðið dúla eða doula þýðir á grísku
kvenkynsþræll eins og kemur fram
í ritgerð Magneu, enda er það oftast
þannig að konur taka að sér dúlu-
hlutverkið.
Ekki klínískt hlutverk
Jafnframt kemur fram í ritgerðinni
að ástæðan fyrir því að þetta orð
var valið sem starfsheiti er að þótt
það hafi upprunalega verið notað
yfir kvenkyns þræl var það seinna
notað til að lýsa aðstoðarkonu
nýbakaðrar móður við hvers kyns
heimilisstörf, umönnun barnsins
og að veita henni sálfélagslegan
stuðning.
Í ritgerðinni kemur einnig fram
að hlutverk dúlunnar er ekki
að draga starf annarra fagaðila
sem koma að meðgöngunni og
fæðingunni í efa. Dúlan aðstoðar
verðandi móður að fá allar þær
upplýsingar sem hún þarf að hafa í
fæðingarferlinu, hvetja móðurina
til að spyrja eða spyrja fyrir hönd
hennar.
Soffía Bæringsdóttir hefur
starfað sem dúla hér á landi í ellefu
ár. Hún segir að dúlur takmarki
ekki þjónustu sína við konuna
sem er barnshafandi, heldur eru
þær í þjónustu fjölskyldu hennar
líka og maka. Stuðningurinn felst
í viðveru og fræðslu en dúlur taka
ekki að sér klínískt hlutverk með
neinum hætti.
Lægri tíðni keisarafæðinga
og minni notkun deyfilyfja
Ýmsar rannsóknir hafa verið
gerðar á fæðingum þar sem dúla
er viðstödd, og er greint frá þeim í
ritgerðinni.
Niðurstöður rannsóknanna
voru til dæmis þær að „andlegur
og líkamlegur stuðningur stytti
marktækt lengd fæðingarinnar,
fækkar tíðni keisarafæðinga,
fækkar notkun tanga og sog-
klukkna og minnkar notkun á
oxýtósín hormónalyfi sem og
öðrum deyfilyfjum.“ Þar að auki
segir í ritgerð Magneu að sam-
kvæmt þessum rannsóknum
upplifðu mæður minni sársauka í
fæðingunni, upplifðu minni kvíða
eftir fæðingu, farsælli brjósta-
gjöf og voru jákvæðari gagnvart
fæðingarreynslunni.
Samkvæmt einni rannsókninni
sem var gerð í Gvatemala og er
greint frá í ritgerðinni, voru niður-
stöðurnar þær að mæður sem voru
með dúlu viðstadda fæðinguna
voru mun fljótari að fæða en
konur í samanburðarúrtaki, eða
8,8 klukkustundir að meðaltali á
móti 19,3 klukkustundum. Þar að
auki voru þær vakandi lengur eftir
fæðinguna, töluðu og brostu meira
til barna sinna.
Í annarri rannsókn, sem var
gerð árið 2013 og greint er frá í rit-
gerðinni, voru mæður í félagslega
erfiðum aðstæðum rannsakaðar.
Niðurstöður bentu meðal
annars til þess að dúlur geti vald-
eflt mæður til að láta þarfir og
skoðanir sínar í ljós og aukið líkur
á heilbrigðri og jákvæðri fæðingar-
reynslu.
Fræða um hvað hjálpar og
hvað hjálpar ekki í fæðingu
Soffía segir að eftirspurnin eftir
dúlum hér á Íslandi hafi aukist
talsvert. „Þetta hefur breyst mikið
á síðustu tíu árum og við dúlur
erum alltaf að verða fleiri.“ Sjálf
veit hún ekki af fleirum en tveimur
dúlum sem voru starfandi áður en
hún hóf störf árið 2008, en fræðsla
og þekking um þjónustuna hefur
aukið eftirspurnina eftir henni.
„Við fræðum fjölskylduna
eða parið um fæðinguna, líðan
í fæðingu, styrkleika og hvernig
maður getur nýtt þá til að komast
í gegnum fæðinguna. Við ræðum
hvernig er hægt að hjálpast að í
fæðingunni og hvað hjálpi ekki.
Síðan kenni ég líka slökunar-
æfingar.“
Soffía tekur eftir að það eru lang-
oftast pör sem koma til hennar,
þótt hún hafi fengið til sín allar
samsetningar af fjölskyldum.
„Sumir eru að fara að eignast sitt
fyrsta barn, aðrir eiga barn eða
börn fyrir, það er engin regla.“
Dúlunámið tekur tvö ár. „Maður
þarf að læra út á hvað stuðningur-
inn gengur, hvernig á að veita
hann og þekkja allt sem tengist
meðgöngunni og fæðingunni.
Síðan þarftu að vera viðstödd þrjár
fæðingar áður en þú útskrifast.“
Meðganga og fæðing barns
eru einar mikilvægustu stundir
í lífi margra. Dúlur virðast geta
aðstoðað við að gera reynsluna
af þessu tímabili góða, fyrir bæði
mæður og fjölskyldur þeirra.
Styttri fæðing ef dúla er viðstödd
Soffía Bæringsdóttir hefur starfað sem dúla í ellefu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Færanlegar kennslustofur til sölu
Reykjavíkurborg óskar eftir
tilboðum í þrjár færanlegar
kennslustofur sem staðsettar eru
á skólalóð Dalskóla í Reykjavík að
Úlfarsbraut 122-124. Gulmerktu
stofurnar á myndinni eru til sölu.
Stofurnar verða sýndar áhuga-
sömum kaupendum þann 11. júní
kl. 13.
Óskað er eftir
staðgreiðslutilboðum.
Væntanlegur kaupandi þarf að
fjarlægja stofuna/stofurnar af lóð
skólans fyrir 30. júní 2019.
Tilboðsfrestur er til 14. júní fyrir
kl. 12 á hádegi og skal skila tilboði
í merktu umslagi til þjónustuvers
Reykjavíkurborgar að Borgartúni
12-14.
Nánari upplýsingar um leyfi til flutnings og sérstakt tilboðsblað er að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar.
https://reykjavik.is/frettir/faeranlegar-kennslustofur-til-solu
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
0
-2
0
5
C
2
3
3
0
-1
F
2
0
2
3
3
0
-1
D
E
4
2
3
3
0
-1
C
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K