Fréttablaðið - 08.06.2019, Side 72
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, hefur í mörg horn að líta. Þó næst að góma hann í símann. „Það eru mikil fundahöld og
mikil kaffidrykkja. Hvort það kemur
svo eitthvað út úr þeim er önnur saga.
Jú, eitthvað smávegis, ein og ein kart
afla spírar, eins og einhver orðaði það.
Sem er ágætt,“ segir hann glaðlega þegar
hann er spurður hvort starfið sé ekki
annasamt.
Talið berst að hátíðarhöldunum á
þriðjudaginn í tilefni þess að sameining
Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna gekk í
gegn fyrir aldarfjórðungi. „Við ætlum að
fagna því að þann 11. júní eru 25 ár liðin
frá því að bæjarstjórn nýs sameinaðs
sveitarfélags í Reykjanesbæ tók form
lega við, eftir nýafstaðnar kosningar. Því
verður rjómaterta og kaffi í Stapanum
sem öllum bæjarbúum er boðið í og þá
verður þar líka hátíðarfundur bæjar
stjórnar.“
Mörg sjónarmið komu upp í kring um
sameininguna á sínum tíma, að sögn
Kjartans, meðal annars um nafn sveit
arfélagsins. „Það er nú sagt að það taki
þrjár til fjórar kynslóðir fyrir svona ferli
að ganga í gegn. Þeir sem eru harðastir
á móti þurfa að hverfa og börnin þeirra
og jafnvel barnabörnin sem eru búin að
heyra afa og ömmu bölsótast yfir breyt
ingunum. Ég hugsa að það sé rétt.“
Hann segir suma Kef lvíkinga alltaf
verða Keflvíkinga og ekki síður ákveðna
Njarðvíkinga alltaf verða Njarðvíkinga.
„Það er bara gott,“ segir hann. „Þetta
birtist ekki síst í íþróttaleikjum þegar
Keflavík og Njarðvík eru að keppa, það
er bara eins og Valur og KR eða Man
chester og Liverpool. Mönnum getur
orðið ansi heitt í hamsi. En við sem erum
fædd hér og uppalin við vitum nákvæm
lega hvar línan er og hvenær við erum
komin yfir strikið.“
Kjartan er Kef lvíkingur og kveðst
ekkert fara leynt með það. „En auðvitað
er það hluti af starfinu að vera bæjar
stjóri allra. Ég var í bæjarstjórn á sínum
tíma, reyndar ekki þegar sameiningin
gekk í garð, en frá 19982006, og tel að
sameiningin hafi verið mikið heilla
skref fyrir samfélagið. Mjög mikið. Það
er allt miklu betra þegar sveitarfélagið
er stærra og það verður allt annar bragur
á allri stjórnsýslu. Það er hægt að gera
hlutina betur og ráða meira af hæfu
fólki. Allt verður faglegra,“ segir hann
og upplýsir að íbúar séu að verða 19.000
talsins. Spurður hvernig íbúafjöldi í
Höfnum hafi þróast svarar hann: „Það
hefur ekki fjölgað mikið en hann hefur
alveg haldið sér. Hafnir eru eftirsóttur
staður hjá fólki sem er að sækjast eftir
ákveðnu umhverfi og ákveðnum lífs
stíl. Þar er rólegra og það bara hentar
sumum.“
Allir ættu að geta komið í Stapann
og fengið sér kaffi og tertu, úr hvaða
hólfi sem þeir koma eða það kveðst
Kjartan sannarlega vona. „Það eru
allir mjög ánægðir með Hljómahöllina
og Stapann sem aðalmenningarhús
bæjarins. Við ætlum á þessum fundi
að leggja fram til fyrri umræðu stefnu
mótun sveitarfélagsins til ársins 2030.
Þar eru nokkrar megináherslur, ein er
að setja börnin í fyrsta sætið og sinna
þeim eins vel og við getum í gegnum
skólana og íþrótta og tómstunda
starf. Númer tvö eru umhverfismálin
og sjálf bærni. Flugvöllurinn telst
kannski seint umhverfisvænn en hann
er samt þriðji áhersluþátturinn í þess
ari stefnumótun. Einn þátturinn er svo
fjölbreytt atvinnulíf,“ lýsir Kjartan og
rifjar upp að lengi framan af síðustu
öld hafi það byggst á sjósókn og fisk
vinnslu. „Svo kom herinn og þá vann
stór hluti vinnandi fólks hjá varnarlið
inu eða í þjónustu þess. Nú er alþjóða
flugvöllurinn Leifsstöð og millilanda
flugið langstærsti vinnuveitandinn. En
við þurfum að fjölga hér störfum fyrir
háskólamenntað fólk.“
Einn af þáttunum sem sveitarstjórn
inni er ofarlega í huga er svo fjölbreyti
leikinn í mannlífinu að sögn Kjartans.
„Fjórðungur bæjarbúa er af erlendu
bergi brotinn sem er hátt hlutfall á
íslenskan mælikvarða og við þurfum
að vinna út frá þeirri staðreynd. Út frá
þessum áherslum verða til alls konar
verkefni sem við ætlum að setja inn í
fjárhags og starfsáætlun á næstu miss
erum, sem er bara gaman.“
gun@frettabladid.is
Það er nú sagt að það taki þrjár
til fjórar kynslóðir fyrir svona
ferli að ganga í gegn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Guðlaug G. Jónsdóttir
áður til heimilis að Sléttuvegi 19,
lést á Hrafnistu í Reykjavík
miðvikudaginn 5. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kolbrún Finnsdóttir Snorri Ingimarsson
Erna Finnsdóttir
Jón H. Finnsson
Hrönn Finnsdóttir Þráinn Sigurðsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Gerður Guðjónsdóttir,
Ártúni 7,
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
sunnudaginn 2. júní. Útförin fer fram frá
Selfosskirkju föstudaginn 14. júní kl. 13.00.
Jónína Sigurjónsdóttir Sæmundur Bjarni Ingibjartsson
Jón Garðar Sigurjónsson Ólöf Rún Tryggvadóttir
Ævar Smári Sigurjónsson Kristín Bjarnadóttir
Sigurður Ellert Sigurjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
Jakob Gísli Þórhallsson
lést þriðjudaginn 4. júní.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 13. júní kl. 13.00.
Fríða Kristbjörg Hjálmarsdóttir
Ingi Þór Jakobsson Hanna Birna Jóhannesdóttir
Hreinn Jakobsson Aðalheiður Ásgrímsdóttir
Þórhallur Jakobsson Stefanía Bergmann Magnúsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Sigurður Bjarni Jónsson
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ein og ein kartafla spírar
Reykjanesbær verður tuttugu og fimm ára á þriðjudaginn. Af því tilefni verður hátíðar-
fundur bæjarstjórnar í Stapa, ásamt kaffisamæti sem opið er öllum bæjarbúum.
Ég er Keflvíkingur og fer ekkert leynt með það, þó að það sé auðvitað hluti af starfinu að vera bæjarstjóri allra. MYND/PÁLL KETILSSON
8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
0
-1
B
6
C
2
3
3
0
-1
A
3
0
2
3
3
0
-1
8
F
4
2
3
3
0
-1
7
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K