Fréttablaðið - 08.06.2019, Síða 72

Fréttablaðið - 08.06.2019, Síða 72
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykja­nesbæ, hefur í mörg horn að líta. Þó næst að góma hann í símann. „Það eru mikil fundahöld og mikil kaffidrykkja. Hvort það kemur svo eitthvað út úr þeim er önnur saga. Jú, eitthvað smávegis, ein og ein kart­ afla spírar, eins og einhver orðaði það. Sem er ágætt,“ segir hann glaðlega þegar hann er spurður hvort starfið sé ekki annasamt. Talið berst að hátíðarhöldunum á þriðjudaginn í tilefni þess að sameining Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna gekk í gegn fyrir aldarfjórðungi. „Við ætlum að fagna því að þann 11. júní eru 25 ár liðin frá því að bæjarstjórn nýs sameinaðs sveitarfélags í Reykjanesbæ tók form­ lega við, eftir nýafstaðnar kosningar. Því verður rjómaterta og kaffi í Stapanum sem öllum bæjarbúum er boðið í og þá verður þar líka hátíðarfundur bæjar­ stjórnar.“ Mörg sjónarmið komu upp í kring um sameininguna á sínum tíma, að sögn Kjartans, meðal annars um nafn sveit­ arfélagsins. „Það er nú sagt að það taki þrjár til fjórar kynslóðir fyrir svona ferli að ganga í gegn. Þeir sem eru harðastir á móti þurfa að hverfa og börnin þeirra og jafnvel barnabörnin sem eru búin að heyra afa og ömmu bölsótast yfir breyt­ ingunum. Ég hugsa að það sé rétt.“ Hann segir suma Kef lvíkinga alltaf verða Keflvíkinga og ekki síður ákveðna Njarðvíkinga alltaf verða Njarðvíkinga. „Það er bara gott,“ segir hann. „Þetta birtist ekki síst í íþróttaleikjum þegar Keflavík og Njarðvík eru að keppa, það er bara eins og Valur og KR eða Man­ chester og Liverpool. Mönnum getur orðið ansi heitt í hamsi. En við sem erum fædd hér og uppalin við vitum nákvæm­ lega hvar línan er og hvenær við erum komin yfir strikið.“ Kjartan er Kef lvíkingur og kveðst ekkert fara leynt með það. „En auðvitað er það hluti af starfinu að vera bæjar­ stjóri allra. Ég var í bæjarstjórn á sínum tíma, reyndar ekki þegar sameiningin gekk í garð, en frá 1998­2006, og tel að sameiningin hafi verið mikið heilla­ skref fyrir samfélagið. Mjög mikið. Það er allt miklu betra þegar sveitarfélagið er stærra og það verður allt annar bragur á allri stjórnsýslu. Það er hægt að gera hlutina betur og ráða meira af hæfu fólki. Allt verður faglegra,“ segir hann og upplýsir að íbúar séu að verða 19.000 talsins. Spurður hvernig íbúafjöldi í Höfnum hafi þróast svarar hann: „Það hefur ekki fjölgað mikið en hann hefur alveg haldið sér. Hafnir eru eftirsóttur staður hjá fólki sem er að sækjast eftir ákveðnu umhverfi og ákveðnum lífs­ stíl. Þar er rólegra og það bara hentar sumum.“ Allir ættu að geta komið í Stapann og fengið sér kaffi og tertu, úr hvaða hólfi sem þeir koma eða það kveðst Kjartan sannarlega vona. „Það eru allir mjög ánægðir með Hljómahöllina og Stapann sem aðalmenningarhús bæjarins. Við ætlum á þessum fundi að leggja fram til fyrri umræðu stefnu­ mótun sveitarfélagsins til ársins 2030. Þar eru nokkrar megináherslur, ein er að setja börnin í fyrsta sætið og sinna þeim eins vel og við getum í gegnum skólana og íþrótta­ og tómstunda­ starf. Númer tvö eru umhverfismálin og sjálf bærni. Flugvöllurinn telst kannski seint umhverfisvænn en hann er samt þriðji áhersluþátturinn í þess­ ari stefnumótun. Einn þátturinn er svo fjölbreytt atvinnulíf,“ lýsir Kjartan og rifjar upp að lengi framan af síðustu öld hafi það byggst á sjósókn og fisk­ vinnslu. „Svo kom herinn og þá vann stór hluti vinnandi fólks hjá varnarlið­ inu eða í þjónustu þess. Nú er alþjóða­ flugvöllurinn Leifsstöð og millilanda­ flugið langstærsti vinnuveitandinn. En við þurfum að fjölga hér störfum fyrir háskólamenntað fólk.“ Einn af þáttunum sem sveitarstjórn­ inni er ofarlega í huga er svo fjölbreyti­ leikinn í mannlífinu að sögn Kjartans. „Fjórðungur bæjarbúa er af erlendu bergi brotinn sem er hátt hlutfall á íslenskan mælikvarða og við þurfum að vinna út frá þeirri staðreynd. Út frá þessum áherslum verða til alls konar verkefni sem við ætlum að setja inn í fjárhags­ og starfsáætlun á næstu miss­ erum, sem er bara gaman.“ gun@frettabladid.is Það er nú sagt að það taki þrjár til fjórar kynslóðir fyrir svona ferli að ganga í gegn. Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, Guðlaug G. Jónsdóttir áður til heimilis að Sléttuvegi 19, lést á Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn 5. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Kolbrún Finnsdóttir Snorri Ingimarsson Erna Finnsdóttir Jón H. Finnsson Hrönn Finnsdóttir Þráinn Sigurðsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Gerður Guðjónsdóttir, Ártúni 7, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sunnudaginn 2. júní. Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 14. júní kl. 13.00. Jónína Sigurjónsdóttir Sæmundur Bjarni Ingibjartsson Jón Garðar Sigurjónsson Ólöf Rún Tryggvadóttir Ævar Smári Sigurjónsson Kristín Bjarnadóttir Sigurður Ellert Sigurjónsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri Jakob Gísli Þórhallsson lést þriðjudaginn 4. júní. Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 13. júní kl. 13.00. Fríða Kristbjörg Hjálmarsdóttir Ingi Þór Jakobsson Hanna Birna Jóhannesdóttir Hreinn Jakobsson Aðalheiður Ásgrímsdóttir Þórhallur Jakobsson Stefanía Bergmann Magnúsdóttir barnabörn og langafabörn. Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Sigurður Bjarni Jónsson umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Ein og ein kartafla spírar Reykjanesbær verður tuttugu og fimm ára á þriðjudaginn. Af því tilefni verður hátíðar- fundur bæjarstjórnar í Stapa, ásamt kaffisamæti sem opið er öllum bæjarbúum. Ég er Keflvíkingur og fer ekkert leynt með það, þó að það sé auðvitað hluti af starfinu að vera bæjarstjóri allra. MYND/PÁLL KETILSSON 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 0 8 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :2 6 F B 0 9 6 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 3 0 -1 B 6 C 2 3 3 0 -1 A 3 0 2 3 3 0 -1 8 F 4 2 3 3 0 -1 7 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 9 6 s _ 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.