Fréttablaðið - 08.06.2019, Side 76

Fréttablaðið - 08.06.2019, Side 76
Lestrarhestur vikunnar Hera Hrönn Bjarki og Dagur eru eineggja tvíbur­ ar á ellefta ári og ansi hreint líkir. Strákar, hverjir eru kostirnir við að vera tvíburar? Dagur: Einu sinni fengum við nýjan kennara. Hún byrjaði á að segja að við mættum ekki skipta um sæti svo hún mundi ekki ruglast á okkur. Bjarki: Við gerðum akkúrat öfugt og hún hélt að ég væri Dagur í heilan dag en fór að skellihlæja þegar við sögðum henni það. Eruð þið líkir innra með ykkur? Dagur: Ég er smá svona – betri! Bjarki: Ekki alveg sko! Dagur: Við höfum ólíkan matar­ smekk. Það hefur alltaf verið þann­ ig. Eitt er kostur við að eiga tvíbura. Ég er mjög myrkfælinn, þá er gott að hafa Bjarka í sama herbergi, nema hann elskar að vera í myrkrinu þegar við förum að sofa en ég elska að hafa ljós. Bjarki: Við getum aldrei lokað hurðinni. Dagur: Kötturinn er alltaf að koma í rúmið mitt, samt pínku þægilegt, hann er svo mjúkur. Hann kom með pitsusendli og vildi bara búa hjá okkur. Konan sem átti hann var bara sátt við það. Bjarki: Hún hafði skírt hann Gutta. Við héldum fyrst að hann væri stelpa og kölluðum hann Maríu í þrjá daga. Svo endurskírðum við hann Jakob. Kemur ykkur vel saman? Bjarki: Ekki alltaf. Samt söknum við hvor annars. Dagur. Já, ég fór einu sinni til Bret­ lands með Drengjakór Reykja­ víkur og þá fundum við mikið fyrir því. Við erum pínku fastir saman. Bjarki: Ég ætla í  kórinn á næsta ári. Nú spila ég á fiðlu og er í tón­ fræði, svo æfi ég frjálsar og er í skát­ unum. Elska að fara í útlegur. Dagur: Og ég spila á gítar en hætti í tónfræði.  Ég er líka í skátum og körfubolta, fyrst fór ég á ranga körfuboltaæfingu og var með eldri hópnum. Bjarki: Hann rústaði þeim. Hvor er duglegri að taka til? Dagur: Hann. Ég segi alltaf; Bjarki nennirðu að ganga frá eftir mig? Hvað langar ykkur að verða? Bjarki: Annaðhvort skordýrafræð­ ingur eða lögfræðingur. Dagur: Lögregla eða leikari. Kötturinn kom með  pitsusendli „Við erum pínu fastir alltaf saman,“ segja Bjarki og Dagur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÉG ER MJÖG MYRK- FÆLINN, ÞÁ ER GOTT AÐ HAFA BJARKA Í SAMA HERBERGI, NEMA HANN ELSKAR AÐ VERA Í MYRKRINU ÞEGAR VIÐ FÖRUM AÐ SOFA EN ÉG ELSKA AÐ HAFA LJÓS. Dagur „Almáttugur,“ hrópaði Róbert upp yfir sig. „Við erum föst hérna inni og munum aldrei komast út,“ bætti hann við skelfingu lostinn. „Enginn mun nokkurn tímann finna okkur og við munum svelta í hel.“ „Svona nú Róbert minn,“ sagði Kata höstug. „Þetta er nú bara völundarhús og það er alltaf einhver leið út úr völundarhúsum,“ bætti hún við og leit í kringum sig. „Eða er það ekki?“ Spurði hún og glotti þegar hún sá hvað Róbert hvítnaði. Konráð á ferð og flugi og félagar 356 Getur þú hjálpað Róberti og Kötu að komast út úr völundar-húsinu? ? ? ? Hvað er skemmtilegast við bækur? Þær eru spennandi og skemmtilegar. Hvaða bók lastu síðast og um hvað var hún? Bíóráðgátan. Hún er um tvo krakka sem heita Lalli og Maja og þau eru spæjarar. Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi hjá þér? Binna B. Bjarna og Jónsi. Hvernig bækur þykir þér skemmtilegastar? Bæði sögu- bækur og myndasögur. Í hvaða skóla gengur þú? Rima- skóla. Ferðu oft á bókasafnið? Svona tvisvar eða þrisvar í mánuði. Alltaf til að finna mér nýja bók. Hver eru þín helstu áhugamál? Körfubolti með Fjölni og Skóla- hljómsveit Grafarvogs. Ég spila á kornet. Fyrsti lestrarhestur sumarsins er Hera Hrönn tíu ára. Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið efna til sumarlesturs fyrir krakka. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók að gjöf og í lok sumarsins er veittur einn veglegur vinningur. 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR 0 8 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :2 6 F B 0 9 6 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 3 0 -0 2 B C 2 3 3 0 -0 1 8 0 2 3 3 0 -0 0 4 4 2 3 2 F -F F 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 9 6 s _ 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.