Fjarðarpósturinn - 12.11.2015, Síða 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Sú var tíðin að þeir voru örfáir
staðirnir í Hafnarfirði þar sem
hægt var að fá sér að borða. Þá
voru verslanir hins vegar
hlutfallslega miklu fleiri en núna.
Sífellt bætist í flóru matsölustaða,
nú síðast Vellir bistro á Hótel
Völlum og brátt verður opnaður nýr veitingastaður í
gamla Drafnarhúsinu, Von, mathús og bar. Þangað er
nýflutt kaffihúsið Pallett og þar sem Pallett var er
komið annað kaffihús, Norðurbakkinn, bækur og
kaffihús. Svo er jafnvel von á einhverri kaffisölu í
Íshúsið þannig að Hafnfirðingar þurfa ekki að fara
langt yfir skammt eftir mat og kaffi.
Sérstaklega er ánægjulegt að sjá uppbyggingu á
Völlum þar sem nú eru komið bakarí og tveir veit
inga staðir auk pylsu vagns. Anddyri Ásvallalaugar
stendur þó enn ónotað og gaman væri ef einhverjum
væri gefið tækifæri á að spreyta sig þar með einhvern
veitingarekstur.
Tímamótabreytingar eru að verða í Firði en nýlega
var stofnað eignarhaldsfélag sem þegar á um 70% af
húsnæði í verslunarkjarnanum. Hingað til hefur
verslunarmiðstöðin verið rekin í raun af húsfélagi
Fjarðar og hefur ekki getað markað neina stefnu um
uppbyggingu né það hvers konar og hvaða verslanir
menn vilja hafa þar. Þetta var því löngu tímabær
breyting og vonandi verður þetta upphafið að miklu
betri verslunarmiðstöð og jafnvel enn betri miðbæ því
eignarhaldsfélagið hefur sýnt vilja á að eignast hús
næði við Strandgötuna einnig.
Bæjarstjóri hélt opinn kynningarfund á fjárhags
áætlun Hafnarfjarðarbæjar í Bæjarbíói á þriðjudag.
Um 100 manns mættu á fundinn þar sem bæjarstjóri
kynnti nokkuð ítarlega helstu þætti í fjárhagsáætlun
bæjarins og þau markmið sem sett væru. Þar sagði
hann að strax í árslok 2017 verði skuldaviðmið
bæjarins komið undir 150% og bæjarfélagið þá ekki
lengur í gjörgæslu eftirlitsnefndar með fjármálum
sveitarfélaga. Um 15 mínútna fyrirspurnartími reynd
ist allt of stuttur og um hálftíma var bætt við fundar
tímann þar sem látið var staðar numið. Að sjálfsögðu
hefði þessi kynning eða kynningin sem var á lokuðum
fundi í bæjarstjórn átt að koma strax við framlagningu
fjárhagsáætlunar. Hún er þörf og verður vonandi á
næsta ári. Bæjarbúar vilja fylgjast með.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565-9775
Frímann
s: 897 2468
Hálfdán
s: 898-5765
Ólöf
s: 898 3075
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNAFJARÐAR
FRÍMANN & HÁLFDÁN
ÚTFARARÞJÓNUSTA
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudagur 15. nóvember
Byggingarmessa og
sunnudagaskóli kl. 11
Kór Ástjarnarkirkju syngur
Sr. Þórhildur Ólafs, prófastur prédikar.
Fyrsta skóflustunga að nýju safnaðarheimili
tekin að lokinni guðsþjónustu.
Hressing og samfélag á eftir.
Starf eldri borgara
á miðvikudögum kl. 13.30 - 15.30.
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudagur 15. nóvember
Messa kl. 11
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn
Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson.
Sunnudagskólinn kl. 11
Fjölbreytt dagskrá, fjörug lög,
falleg orð og NebbiNú!
María og Bryndís leiða stundina
Kaffi, djús og kex guðsþjónustunum loknum.
Kyrrðarstundir
alla miðvikudaga kl. 12
súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Fimmtudagur 12. nóvember
Trúarleg frjáls félagasamtök
í þróunarstarfi
Sr. Bragi J. Ingibergsson sóknarprestur
flytur fyrirlestur um mikilvægi trúarlegra
samtaka í þróunarhjálp.
www.vidistadakirkja.is
Sunnudagur 15. nóvember
Messa og
sunnudagaskóli kl. 11
Kirkjubíó kl. 17
með lifandi tónlist
Veitingar í Hásölum
MÁNUDAGAR:
Tíu Til Tólf ára starf kl. 16.30
MIÐVIKUDAGAR:
Morgunmessa kl. 8.15
FIMMTUDAGAR
Foreldramorgunn kl. 10-12
www.hafnarfjardarkirkja.is
.. kemur út
3. desemberTryggðu þér
auglýsingapláss
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n