Fjarðarpósturinn - 12.11.2015, Qupperneq 3
www.fjardarposturinn.is 3FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Lokun Kató
Afhenti 1.000 mótmæli
Í lok kynningarfundar bæjar
stjóra á fjárhagsáætlun Hafnar
fjarðarbæjar afhenti Anna
María Axelsdóttir lista með
mót mælum 1.000 einstakl inga
sem mótmæla lokun leikskóla
Brekkuhvamms við Hlíðarbraut
(gamla Kató).
Anna María Axelsdóttir og Haraldur L. Haraldur bæjarstjóri.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Sunnudagurinn 15. nóvember
Sunnudagaskóli kl. 11
Kvöldvaka kl. 20
Sjá nánar á www.frikirkja.is og á Facebook
Neyðaraðstoð
Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar
veitir efnalitlum barnafjölskyldum með lögheimili
í Hafnarfirði aðstoð fyrir komandi jól 2015
Tekið er á móti umsóknum í Hraunseli, Flatahrauni 3
eingöngu dagana 19. og 23. nóv. kl. 16-19
Krafist verður nýútprentaðrar staðgreiðsluskráar fyrir tekjur
til og með okt. 2015 og búsetuvottorðs frá Bæjarskrifstofu
Hafnarfjarðar, Strandgötu 6 (er ókeypis, þarf skilríki).
Uppl. kl. 17-19 virka daga í síma 843 0668.
Netfang maedrastyrksnefnd@simnet.is
Rauði krossinn tekur á móti umsóknum á Strandgötu 24, 16. nóv. kl 11-13
Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar
Styrkja má störf nefndarinnar með því að leggja inn á:
Íslandsbanka 0544-04-760686, kt. 460577-0399 • Landsbankann 0140-15-381231, kt. 460577-0399
©
F
ja
rð
ar
pó
st
ur
in
n
20
15
Skátaflokkurinn Æringjar var
stofnaður árið 1961 af þremur
skátum í Reykjavík en síðan
bættust fleiri við. Hópurinn hitt
ist enn og nú að jafnaði í Kaffi
vagn inum á sunnu dagsmorgnum.
Þeir breyttu til sl. sunnudag og
heimsóttu gildisskáta í St.
Georgs gildinu í Hafnarfirði í
Skátalundi við Hvaleyrarvatn.
Þar voru fagnaðarfundir og
gamlir tímar rifjaðir upp, þ.á.m.
Vormótin í Helgadal en þangað
komu skátar frá fjölmörgum
skáta félögum og voru mótin
mjög fjölmenn. Nú er svæðið
afgirt vatnsverndarsvæði Hafn
firðinga.
St. Georgsgildið í Hafnarfirði
var stofnað í maí 1963 og Skáta
lundur var vígður 1968. Skála
nefndin hittist þar að jafnaði á
sunnu dögum og tekur til hend
inni og spjallar og fær sér kaffi.
Þarna er paradís fyrir skáta í
skóginum þar sem þeir geta
tjaldað á flötum allan ársins
hring en skálinn er nýttur fyrir
ýmsa skátaviðburði auk þess að
vera leigður út.
Það var því fjölmennt í Skáta
lundi í morgun og mikið spjallað
og svæðið skoðað.
St. Georgsgildið er opið öllum
eldri skátum og eru í því nú 75
félagar. N.k. miðvikudag verður
Ragnar Ingi Aðalsteinsson gestur
á félagsfundi í Tónlistarskólanum
kl. 20 þar sem hann fræðir félag
ana um leyndardóma kveðskapar
og vísnagerðar.
Æringjar komu bæjarferð úr Reykjavík
Skátaglæðurnar lifa lengi – öflugt starf eldri skáta
Eldhressir skátarnir fyrir utan Skátalund. Elstur er Björgvin Magnússon, 92 ára.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n