Fjarðarpósturinn - 12.11.2015, Qupperneq 4
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Við reisum hús
Sóknarnefnd Ástjarnarkirkju
hefur ákveðið að ráðast í
byggingu safnaðarheimilis við
Kirkjuvelli 1. Húsið verður
byggt eftir verðlauna
teikn ingu Arkís arki
tekta. Við höfum beðið
í fjórtán ár eftir húsnæði
sem hæfir starfsemi
Ástjarnarkirkju. Nú
ver andi húsnæði er
löngu sprungið utan af
starfseminni og stenst
engan vegin nútíma
kröfur til húss fyrir
safn aðarstarf.
Nýja safnaðarheimilið verður
sniðið að starfseminni og býður
upp á að starfið geti vaxið enn
frekar. Húsinu er skipt í tvo hluta
þjónusturými og starfsmanna
aðstöðu sem löngu er tímabær.
Þjónusturýmið er framreiðslu
eldhús, fundarherbergi og safn
aðarsalur sem skipta má upp í
fjögur rými með felliveggjum.
Miklar vonir eru bundnar við
safn aðarsalinn sem tekur um 200
manns í sæti og hægt verður að
stækka út í kaffistofurými. Sal
urinn hefur fengið sérstaka
hljóð og hljóðkerfishönnun svo
hann nýtist sem best fyrir marg
víslega viðburði.
Starfsemi Ástjarnarkirkju er
fjölbreytt og mánaðarlega koma
um 500 gestir, starfsmenn og
nefndarfólk er um 20 og kórar og
tónlistarfólk um 50.
Hróður kórs Ástjarnar
kirkju hefur farið v íða
og kórinn sungið á
mörgum viðburðum
utan kirkjunnar. Undir
búningur framkvæmda
hefur staðið frá s.l.
áramótum og tveir
verkþættir hafa verið
boðnir út. Karína ehf.
var lægstbjóðandi í
jarð vinnuframkvæmdir en tilboð
þeirra var undir kostnaðaráætlun
og hefur verktakinn lokið
störfum. S.Þ. verktakar ehf. buðu
lægst í byggingu safnaðar heimil
isins og voru um 2% yfir kostn
aðaráætlun þeir hefja fram
kvæmdir á næstunni. Til að
fagna þessum stóra áfanga
verður haldin Byggingamessa
sunnudaginn 15. nóvember kl.
11. Hvet ég fólk til að mæta og
kynna sér nýverandi húsnæði og
teikningar af nýja safnaðar
heimilinu.
Höfundur er í stjórn sóknar
nefndar Ástjarnarkirkju.
Hermann Björn
Erlingsson
Fjörugar umræður urðu á
Facebook sl. föstudag er
formaður fræðsluráðs, Rósa
Guðbjartsdóttir, deildi viðtali við
sig á Stöð 2 vegna lokunar gamla
Kató við Hlíðarbraut. Segir hún
að blaðamaður hafi haft rangt
eftir sér, árlegur sparnaður sé
ekki 45 milljónir heldur rúmlega
40 milljónir kr. Síðar birtir hún
töflu sem hér má sjá:
Þessar tölur komu ekki fram í
kynningargögnum um fjárhags
áætlun sem bæjarstjóri kynnti á
lokuðum fundi á undan síðasta
bæjarstjórnarfundi. Gögnin má
finna undir fundargerð um
hverfis og framkvæmdaráðs.
Í þessari tölu er m.a. nefnd innri
húsaleiga sem ekki sparast þar sem
hún er tekjufærð annars staðar í
kerfinu, a.m.k. ekki á meðan
húsnæðið er ekki nýtt í annað.
Þarna er líka nefnd laun á deild
sem eru launakostnaður leik
skólakennara og að stoðar fólks,
annarra en matráða. Rósa nefndir
að deildum fækki og sparnaður
verður myndaður við starfs
mannaveltu, upphæð sem ekki var
kynnt með fjárhagsáætlun.
Aukafundur fræðsluráðs
á Facebook
Þar birtar tölur sem aðrir kannast ekki við
Fulltrúar minnihlutans gagn
rýna framgang formanns
fræðslu ráðs þar sem hún full
yrðir í viðtali við Stöð 2 að að
ef leikskólanum yrði ekki lokað
þyrfti að hækka leik skólagjöld í
Hafnarfirði um allt að 11%. Í
fréttatilkynningu segj þeir þetta
hafi komið öðrum fulltrúum í
fræðsluráði óvart, sem ekki
höfðu undir höndum sam bæri
legar upplýsingar, hvorki um
áætlaðan sparnað né fyrir
hugaða hækkun leikskólagjalda.
Þær upplýsingar sem kynntar
höfðu verið m.a. í bæjarráði og
bæjarstjórn sýndu að áætlaður
sparnaður vegna lokunar
leikskólans væri á bilinu 1012
milljónir króna. Það væri hins
vegar háð því að bærinn losnaði
undan húsnæðiskostnaði, ann
ars mætti gera ráð fyrir að
ár legur sparnaður af lokun leik
skólans yrði einungis 56 millj
ónir á ársgrundvelli.
Fulltrúar minnihlutans ósk
uðu eftir upplýsingum um hvort
þau gögn sem vísað var til væru
komin frá stjórnsýslu bæjarins.
Í svari sem barst á þriðju dag frá
sviðsstjóra fræðslu þjónustu
hafi komið fram að upphafleg
ætlun um sparn að vegna lok
unar leik skólans standi. Þar
kom einnig fram að inni í þeirri
fjárhæð sem formaður fræðslu
ráðs nefndi í umræddu viðtali
sé launa kostnaður sem ekki er
áætlað að sparist þó svo að
Minnihlutinn andmælir
Fræðslustjóri segir launakostnað ekki sparast
umræddri starfsstöð verði
lokað. Sá kostn aður nemur um
70% af þeirri fjárhæð sem
fullyrt var í um ræddu viðtali að
kæmi til lækk unar útgjalda
bæjarsjóðs.
Segir í tilkynningunni að
tekjur leikskóla í Hafnarfirði
hafi numið 569,8 millj. krónum
á síðasta ári. Árlegur sparnaður
af lokun leikskólans jafngildi
því heldur ekki 11% hækkun
leikskólagjalda í bæjarfélaginu
eins og fullyrt var í umræddu
viðtali, heldur 12%, eftir því
hvort gert er ráð fyrir sölu þess
húsnæðis sem leikskólinn er í
eða ekki.
„Beiðni okkar til bæjarstjóra
um að þessum leiðréttingum
yrði komið á framfæri hefur
ekki verið svarað. Veljum við
því að koma þeim á framfæri
sjálf,“ segir í tilkynningunni
Á forsíðu síðasta Fjarðarpósts
segir að með lokun Brekku
hvamms við Hlíðarbraut (gamla
Kató) sparist 6,6 milljónir kr. á
ári. Hið rétta er að þarna sparast
6,6 milljónir kr. á árinu skv.
kynningu bæjarstjóra.
Að sama skapi sparast 5,4
millj. kr. á árinu vegna lokunar á
útibúi í Kaldárseli auk áætlaðs
árlegs snjómoksturs á ári sem
kostaði 4 millj. kr. Þarna var
verið í sömu töflunni að blanda
saman 5 mánaða sparnaði og
árlegum sparnaði.
Hvergi er í gögnum bæjarstjóra
né í fjárhagsáætlun kynntar þær
tölur sem formaður fræðsluráðs
kynnir í umræðu á Facebook
síðu sinni.
Kynningargögn bæjarstjóra
eru ekki að finna með fundargerð
bæjarstjórnar þar sem fjár
hagsáætluninu var lögð fram en
hún var kynnt á lokuðum fundi
bæjar stjórnar fyrir almenna
fund inn. Kynningargögnin eru
hins vegar birt með fundargerð
umhverfis og framkvædaráðs
þann 4. nóvember sl.
Bæjarstjóri fór svo yfir helstu
þætti fjárhagsáætlunarinnar á
fundi í Bæjarbíói og útskýrði
ýmis atriði sem spurt var um. Þar
kynnti hann að vegna fækkunar
leikskólabarna yrðu samt 52
pláss á leikskólum bæjarins
umfram áætlaða þörf eftir lokun
Brekkuhvamms, Kaldársels og
fækkun í Hraunvallaskóla.
Óljós gögn
Árlegum og 5 mánaða sparnaði blandað saman
GAFLARALEIKHÚSIÐ
Það er alltaf gaman í Gaaraleikhúsinu
Miðasala - 565 5900 - midi.is - gaaraleikhusid.is
Bakaraofninn ATH Síðustu sýningar
Sunnudagur 15. nóvember kl. 13.00 UPPSELT
Sunnudagur 22. nóvember kl. 13.00 Lokasýning
Frábær ölskylduskemmtun með Gunna og Felix
Konubörn ATH Síðustu sýningar
Föstudagur 13. nóvember kl. 20.00
Föstudagur 20. nóvember kl. 20.00 Lokasýning
Fyndin og mögnuð sýning um ungar konur
Andrés Þór í Fríkirkjunni
Djasstríó leikur í Fríkirkjunni á mánudag
Herak, Vanoucek & Thor er
djasstríó skipað tveimur hljóð
færa leikurum frá Slóvakíu og
einum frá Íslandi. Þeir Miro
Herak víbrafónleikari og Michal
Vanoucek píanóleikari eru
búsettir í Den Haag í Hollandi
þar sem þeir kynntust Íslenska
gítarleikaranum And rési Þór
fyrst í kringum árið 2000 þegar
þeir voru þar í fram haldsnámi
við Konunglega Conservatoríið
þar í borg. Þessi óvenjulega
hljóð færa samsetning, allt
hljóma hljóðfæri, býður uppá
marga möguleika, en skipanin
kallar einnig á nýjar áskoranir
þess eðlis að láta hljóðfærin
hljóma sem eina heild og býður
uppá áhugaverða liti, hrynjanda
og hljómræna möguleika.
Tríóið var með tónleika í Brno
í Tékklandi í vikunni og leikur í
Bratislava í Slóvakíu í kvöld.
Tríóið leikur í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði á mánudag kl. 20.30
og í Grindavík á sunnudag,
Reykjavík á þiðjudag og á
Akranesi á miðvikudag.
Miro Herak, Michal Vanoucek og Andrés Þór Gunnlaugsson
www.facebook.com/
fjardarposturinn
Skoðaðu fjölmargar
myndir úr bæjarlífinu
Smelltu á
LÍKAR VIÐ
Stofnað 1982
Dalshrauni 24 • Sími 555 4855
steinmark@steinmark.is
Reikningar • Nafnspjöld
Umslög • Bæklingar
Fréttabréf
Bréfsefni
Og fleira