Fjarðarpósturinn - 12.11.2015, Page 8
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Bókaskipti nýrra bæjarbókavarða!
Í haustbyrjun tóku nýir bæjar
bókaverðir til starfa í þremur
almenningsbókasöfnum á höf
uð borgarsvæðinu; Óskar Guð
jónsson tók við stjórnar taumn um
á Bókasafni Hafnarfjarðar,
Margrét Sigurgeirsdóttir á
Bókasafni Garðabæjar og Lísa
Z. Valdimarsdóttir á Bókasafni
Kópavogs.
Af því tilefni hittust forstöðu
mennirnir og báru saman bækur
sínar í eiginlegri og óeiginlegri
merkingu því þau ræddu ekki
bara málin heldur skiptust líka á
bókum um sögu bæjarfélaganna.
Þessi þrjú bókasöfn hafa lengi átt
í góðu samstarfi og þeir sem
kaupa bókasafnskort á einu
þeirra fá einnig aðgang að hinum
söfnunum og útibúum þeirra.
Þetta fyrirkomulag hefur mælst
vel fyrir hjá lánþegum, aukið
aðgengi þeirra að bókakosti og
sparað þeim einhverjar krónur.
Því verður haldið áfram að sögn
forstöðumannanna.
Þau segjast öll hlakka til að
takast á við starfið og hvetja að
sjálfsögðu alla til að nýta sér
bókasöfnin. Þá nefndu þau
Óskar, Margrét og Lísa að þau
séu opin fyrir beinum viðræðum
og samtali við safngesti sína og
aðra bæjarbúa um hvaðeina sem
snertir söfnin, þjónustu þeirra
starfsemi og rekstur.
Óskar Guðjónsson Hafnarfirði, Margrét Sigurgeirsdóttir
Garðabæ og Lísa Z. Valdimarsdóttir Kópavogi.
Uppskeruhátíð Siglinga sam
bands Íslands var haldin í félags
heimili Þyts í Hafnarfirði 31.
október sl. Veittar voru við
kenningar fyrir frammistöðu á
árinu. Íslandsbikarinn hlaut
áhöfnin á Skeglu úr Þyt fyrir
góða frammistöðu í sumar, en
áhöfnin á Skeglu sigraði á öllum
stigamótum til Íslandsbikars í
sumar og var því með fullt hús
stiga eftir sumarið.
Gunnar Geir Halldórsson úr
Þyt er skipstjóri á Skeglu en
hann var einnig kjörinn siglinga
maður ársins 2015. Félagi hans
úr Þyt, Rúnar Steinsson var svo
kjörinn sjálfboðaliði ársins.
Þorgeir Ólafsson úr Brokey var
kjörinn efnilegasti siglinga
maðurinn og siglingakona ársins
var kjörin Hulda Lilja Hannes
dóttir úr Brokey.
Gunnar Geir (t.h.) stýrir Skeglu til sigurs á Íslandsmóti Kjölbáta.
Gunnar Geir siglingamaður ársins
Stýrði Skeglu til sigurs á öllum stigamótum ársins
Skegla á siglingu í Hafnarfirði.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Eldri borgarar á rúntinum á leigubílum
í boði leigubílstjóra á A-stöðinni
Það var glatt yfir eldri borgur
unum sem renndu í hlað í
Kaplakrika eftir dagsferð í leigu
bílum alla leið í Hveragerði.
Leigubílstjórar Astöðvarinnar
buðu dagdvalargestum á Hrafn
istu í bíltúrinn og vakti hann
mikla lukku.
Sl. föstudag komu níu leigu
bílar að Hrafnistu og sóttu ferða
þyrsta eldri borgara og var ekið
að Hellisheiðarvirkjun. Sýningin
þar var skoðuð með leiðsögn og
þaðan svo haldið í Hveragerði.
Félagsheimili eldri borgara í
Hveragerði nefnist Þorlákssetur
og þar hitti hópurinn góðan hóp
eldri borgara og þar var boðið
upp á kaffi, pönnu kökur og
fleira. En rúsínan í pylsuendanum
var óvæntur söng ur Hvera
fuglanna, kórs eldri borgara sem
glöddu gesti með söng sínum.
Eftir stutta skoð unarferð um
Hveragerð var svo haldið heim á
leið um Þrengslin.
Anna og Hildigunnur voru hæstánægðar með ferðina.
Leigubílstjórar frá Astöðinni buðu til ferðarinnar
Þorri hópsins stillti sér upp
fyrir ljósmyndara Fjarðar
póstsins við heimkomuna.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Ellefu nýir bekkir
Liður í átakinu „Brúkum bekki“
„Brúkum bekki“ er samstarfs
verkefni Öldungaráðs Hafnar
fjarðar, Félags eldri borgara
Hafnarfirði, Félags sjúkraþjálfara
og Hafnarfjarðarbæjar til að
stuðla að frekari hreyfingu eldri
borgara. Markmiðið er að stuðla
að aukinni hreyfingu eldri
borgara og gera þeim kleift að
fara út að ganga og geta sest á
bekki. Fyrirtæki og félög hafa
greitt fyrir bekki og voru settir
upp 28 bekkir árið 2013 og þeir
merktir gefendum. Nú bættust
11 bekki í hópinn er Fjarðarkaup,
Íslandsbanki, Frímúrarastúkurnar
Hamar og Njörður, Kiwanis
klúbburinn Hraunborg, Guð
laugur Jónasson, Valitor, Öldrun
armiðstöðin Höfn bekkir og
Málmsteypan Hella gáfu samtals
11 bekki sem nú hefur verið
komið fyrir í bænum.
Ökumaður missti sjórn á bíl
sínum í glæru á Kaldárselsvegi,
rétt norðan Hvaleyrarvatnsvegar.
Valt hann yfir vatnsveitu stokk
inn og endaði á hvolfi. Öku
maðurinn slasaðist sem betur fer
ekkert, hafði verið á lítilli ferð er
hann fipaðist er eitthvað hljóp
fyrir bílinn. Hann hringdi eftir
aðstoð foreldra sinn sem komu
skömmu síðar. Á meðan fóru 4
bílar fram hjá án þess að öku
menn þeirra stöðvuðu og könn
uðu hvort þeir gæti hjálpað og
þrír eftir að for eldrarnir komu.
Það var síðan ung kona sem
stöðvaði bíl sinn og spurði hvort
hún gæti aðstoðað, hvort einhver
hafi meiðst og hvort hringt hefði
verið í lögreglu.
Ökumaður sem lendir í bíl
veltu getur verið í losti og því
mikilvægt að þeir sem koma að
stöðvi og bjóði fram aðstoð sína
en bíði ekki eftir því að veifað sé
eftir aðstoð.
Óku fram hjá bílveltu
Ökumaður áttunda bílsins stöðvaði