Fjarðarpósturinn - 12.11.2015, Blaðsíða 10
10 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
húsnæði
Óska eftir lítilli íbúð í Hafnarfirði.
Maður á miðjum aldri, reglusamur í
góðri vinnu óskar eftir að taka á
leigu íbúð frá og með 1.des n.k.
Áhugasamir vinsamlega hringið í
síma 666 5559.
þjónusta
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows.
Kem í heimahús. Sími 824 9938 -
hjalp@gudnason.is
Bílaþrif. Kem og sæki.
Nú er rétti tíminn til að bóna bílinn.
Úrvals efni. Hagstætt verð.
Uppl. í s. 845 2100.
Tek að mér að færa þær yfir
á(vídeó, slide, ljósmyndir) DVD
diska eða flakkara. Sýnishorn á
siggileifa.123.is sími 8637265
siggil@simnet.is Vantar Betamax
video. Sigurður Þorleifsson.
Innréttingasmíði, viðgerðir, almenn
smíði og viðgerð á húsgögnum.
Trésmíðaverkstæði Gylfa ehf.
sími 897 7947.
Hrein húsgögn og bílasæti án ryks,
lyktar og bletta. Djúphreinsun á
borðstófustólum, hægindastólum,
sófasettum, rúmdýnum og teppum.
Djúphreinsun á bílasætum. Einnig
leðurhreinsun á áklæði. Kem á
staðinn og hreinsa, s. 780 8319.
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð
a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . h v e r 1 5 0 s l ö g .
M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Ta pað - f u n d i ð o g Ge f i n s : FR Í TT
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
Loftnet - netsjónvarp
Viðgerðir og uppsetning á loftnetum,
diskum, síma- og tölvulögnum,
ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og
heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi!
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Aðgangur 8 - 22 alla daga ársins
564-6500 - Steinhellu 15
Geymsla
frá 1 til 17 m²
www.geymslaeitt.is
geymsla eitt
Andrés Þór í Fríkirkjunni
Herak, Vanoucek & Thor er djasstríó
skipað tveimur hljóð færa leikurum frá
Slóvakíu og einum frá Íslandi. Miro
Herak víbrafónleikari og Michal
Vanoucek píanóleikari og gítarleikarinn
And rés Þór Gunnlaugsson. Tríóið
leikur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði á
mánudag kl. 20.30 og í Grindavík á
sunnudag, Reykjavík á þiðjudag og á
Akranesi á miðvikudag.
Stuðmenn í Bæjarbíói
Stuðmenn verða með tónleika í
Bæjarbíói fimmtudaginn 19. nóvem-
ber.
Myndlistasýning á Hrafnistu
Þórdís Kristinsdóttir sýnir myndir í
Menningarsalnum á Hrafnistu.
Sýningin stendur til 18. nóvember.
Eiríkur Smith í Hafnarborg
Fimmta og síðasta sýningin í röð
sýninga Hafnarborgar þar sem
margbreyttur ferill Eiríks Smith er
rannsakaður stendur yfir í Hafnarborg.
Þar eru sýnd olíu málverk og
vatnslitamyndir unnar á árunum frá
1982 til 2008.
Sendið stuttar tilkynningar um
viðburði á ritstjorn@fjardarposturinn.is
menning & mannlíf
www.facebook.com/
fjardarposturinn
Skoðaðu myndir
úr bæjarlífinu
Smelltu á
LÍKAR VIÐ
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5a, Hafnarfirði
Vaktsímar: 565 5892 & 896 8242 • www.utfararstofa.is • Allan sólarhringinn
Um 100 manns mættu í
Bæjarbíó til að hlýða á kynningu
bæjarstjóra á fjárhagsáætlun
Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið
2016. Sagði bæjarstjóri að úttekt
sem gerð hefði verið á rekstri
sveitarfélagsins hafi verið for
senda þess að geta þekkt
styrkleika og veikleika sveitar
félagsins. Þá hefði verið hægt að
gera nauðsynlegar umbætur sem
endurspeglist í fjárhagsáætl un
inni. Nauðsynlegt hefði verið að
taka á undirliggjandi vandamál
um sem ella hefðu haft áhrif á
fjárhag sveitarfélagsins áfram.
10 milljarðar kr. í
lífeyrisskuldbingindum
Skv. útkomuspá fyrir 2015
stefnir afkoman í að verða 953
milljónum kr. verri en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Mestu munar um
meiri launahækkanir en gert var
ráð fyrir. Stefnir launakostnaður
í að verða 55% af útgjöldum
bæj ar ins á móti 54% sem hann
stefnir í að verða fyrir 2015.
Benti hann á að lífeyris skuld
bind ingar væru orðnar 10 millj
arðar kr.
Lægstu úsvarstekjur á íbúa
Upplýsti hann að Hafnarfjörður
hefðu lægstu útsvarstekjur á íbúa
af sveitarfélögunum á höfuð
borgarsvæðinu, 413 þús. kr. á
íbúa á móti 491 þús. kr. á íbúa á
Seltjarnarnesi.
Tók hann dæmi um þriggja
manna fjölskyldu með eitt barn á
leikskóla og 500 þús. kr. í tekjur
á mánuði og í eigin húsnæði.
Samtals árleg gjöld til sveitar
félagsins eru 1.391 þúsund kr.
sem er hæst í sveitarfélögunum á
höfuðborgarsvæðinu svo munar
frá 15 þúsund kr. upp í 110 þús.
kr. Sagði hann verið væri að
leggja of miklar álögur á íbúana
og ná þyrfti gjöldunum niður.
Ekki á að skerða þjónustu
Markmið með fjárhagsáætlun
2016 og þriggja ára áætlun er að
skerða ekki þjónustu og frekar að
bæta hana. Ekki ætti að skerða
kjör starfsmanna eins og
hagræðingartillögur hefðu gert
ráð fyrir.
Þá upplýsti hann að um 900
millj. kr. væru til framkvæmda
en ekki hafi enn verið ákveðið í
hvað það færi en það yrði senni
lega ákveðið á milli umræðna
bæjarstjórnar.
Stefnt væri að því að lækka
skuldir og að skuldaviðmiðið
yrði komið undir 150% í árslok
2017 og þá losnaði sveitarfélagið
við afskipti eftirlitsnefndar með
fjármálum sveitarfélaga.
Kynningu bæjarstjóra má sjá á
vef Hafnarfjarðarbæjar.
Lokun Kató stærsta
áhyggjumál fundargesta
Í fyrirspurnartíma var lang
mest spurt út í lokun leikskólans
við Hlíðabraut og var greinilegt
að fundargestir voru almennt
ekki að skilja skýringar bæjar
stjóra t.d. sparnaði vegna launa
starfsfólks á sama tíma og það
héldi áfram á öðrum leikskólum
og yngri börn yrðu tekin inn.
Mikil óánægja með lokunina
endurspeglaðist í fyrirspurnum
fundargesta. Bent var á að eftir
væri aðeins einn leikskóli í
skólahverfi Öldutúnsskóla á
meðan 4 leikskólar væru í
Norðurbæ.
Ánægja með fundinn
Íbúar virtust ánægðir með
fundinn og það tækifæri sem
þeim gafst til fyrirspurna. Hins
vegar var bent á að það væri
sérstakt að þeir sem bæru
ábyrgð ina, bæjarstjórnin, væru
ekki að kynna rammpólitíska
stefnu mótun í fjármálum bæjar
ins.
Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri ásamt táknmálstúlki.
Skuldaviðmið undir 150% í árslok 2017
Fundargestir flestir með áhyggjur vegna lokunar Kató
Um eitt hundrað manns var á fundinum í Bæjarbíói.
Fólk beið í röðum eftir að komast að með fyrirspurn.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n