Fjarðarpósturinn - 10.12.2015, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Sjaldan hefur verið eins jóla
legt í Hafnarfirði og þegar snjór
inn lá yfir öllu, var frosinn á
trján um og allir voru komnir í
jólaskap. En veðrið lætur ekki
temja sig og nú er allt aftur orðið
hráslagalegt og margar götur
bæjarins eins og jeppaslóðar svo ekki sé talað um
gangstéttar og stíga.
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar var samþykkt í gær
eftir að þetta er skrifað en þar sést glöggt að ekki er til
mikið fjármagn til framkvæmda og viðhalds í bænum.
Viðvörunarbjöllur hringja líka af miklu afli þegar ljóst
er að gríðarlega stór hluti framkvæmdafés bæjarins
fer í íþróttamannvirki. Eins jákvætt sem það er að
stuðla að heilbrigðri íþrótta starfsemi þá er það eins og
í hefðbundnu heimils bókhaldi að þegar lítið er til af
peningum þá er ekki hægt að gera allt það sem viljinn
stendur til. Stærstur hluti fjárhagsvanda Hafnar fjarð
arbæjar er einmitt vegna byggingar á húsum. Menn
geta svo rifist um það hverjum það sé um að kenna en
ég man ekki þá byggingu á íþróttamannvirki sem
einhver bæjar fulltrúi hefur sett sig upp á móti. En eftir
á kenna menn hverjum öðrum um óráðsíu og óábyrga
fjár málastjórn. Ef við ætlum að koma okkur út úr
skuldavanda þarf að halda vel á spöðunum og fresta
frekar nýframkvæmdum en að spara viðhald á því
sem til er. Vonast ég til að bæjarfulltrúar hafa haft
þann manndóm að hugsa um heildarhag bæjarins
þegar þeir kusu um fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar
fyrir árið 2016.
Óveðrið sem skall yfir landið aðfararnótt þriðjudags
olli ekki miklu tjóni í Hafnarfirð. Lítið var um útköll
enda austanáttin sennilega með betri vindáttum í
bænum. Reyndar man ritstjóri ekki eftir sterkum
austaáttum í bænum áður en það kann að vera
misminni enda austur vart til í orðaforða Hafnfirðinga.
Það sýndi góðan aga að fólk fór eftir tilmælum og
var komið til síns heima á umbeðnum tíma. Hins
vegar er eins og búið sé að aumingjavæða þjóðina
þegar allir eru sendir heim löngu áður en veður hamur
inn á að skella yfir og enginn greinarmunur gerður á
hverfum eða bæjarfélögum á höfuðborgar svæðinu.
Þegar búið var að loka öllum verslunum í Hafnarfirði
var í raun bongóblíða í bænum enda um hálfur
vinnudagur þangað til vindur fór aðeins að blása. Allt
var lokað, verslanir, vegir og jafnvel var sjómönnum
bannað að huga að bátum sínum, mönnum sem
kannski hafa hvað mesta reynslu af sjógangi og roki.
Strætó var svo ekki kominn í almennan akstur fyrr en
flestir voru komnir til vinnu og skóla en þeir sem ekki
höfðu eigin bíl til umráða húktu skítkaldir á biðskýlum
víða um bæinn. Allt vegna þess að hált var á einhverju
bílastæði í efri byggðum Reykjavíkur. Einkabílarnir
voru þá einir á götum höfuðborgarsvæðisins.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf.
kt. 480307-0380
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Áb.maður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565-9775
Frímann
s: 897 2468
Hálfdán
s: 898-5765
Ólöf
s: 898 3075
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNAFJARÐAR
FRÍMANN & HÁLFDÁN
ÚTFARARÞJÓNUSTA
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudagur 13. desember
Messa og sunnudagaskóli
kl. 11
Sr. Stefán Már Gunnlaugsson prédikar.
Sr. Kjartan Jónsson þjónar fyrir altari.
Kór Ástjarnarkirkju syngur.
Jólaskapið verður eflt í sunnudagaskólanum.
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudagur 13. desember
3. sunnudagur í aðventu
Fjölskylduhátíð kl. 11
Börnin sýna helgileik
í umsjá Bryndísar Svavarsdóttur.
Organisti: Helga Þórdís Guðmundsdóttir
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson
Kaffi, djús og kex eftir guðsþjónustu.
www.vidistadakirkja.is
Laugardagur 12. desember
Jólatónleikar
á léttum nótum kl. 17
Ókeypis aðgangur.
Sunnudagur 13. desember
3. sunnudagur í aðventu
Jólaball kl. 11
Allir velkomnir
Dansað í kringum jólatréð. Sveinki kíkir við.
Jólavaka
við kertaljós kl. 20
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra
flytur hátíðarræðu.
Kórar kirkjunnar syngja aðventu- og jólalög.
Hljóðfæraleikur. Kirkjan myrkvuð í lok stundar og
kveikt á kertum hjá kirkjugestum.
Kakó og piparkökur eftir stundina.
Allir velkomnir
www.hafnarfjardarkirkja.is
Laugardagur 12. desember:
Tónleikar kl. 16
Árlegir jólatónleikar Fríkirkjukórsins
laugardag 12. desember kl. 16.
Sérstakur gestur tónleikanna í ár er hinn
bráðskemmtilegi BJARGRÆÐISKVARTETT
Fríkirkjubandið spilar með kórnum.
Stjórnandi er Örn Arnarson.
Miðasala við innganginn eða hjá kórfélögum.
Sunnudagur 13. desember:
Sunnudagaskóli kl. 11
Aðventukvöld kl. 20
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn.
Sjá nánar á www.frikirkja.is
og á Facebook
kl. 18.11 á mánudag
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n