Fjarðarpósturinn - 10.12.2015, Page 4
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Jólatrjáasala
Skógræktarfélags Hafnarfjarðar
Höfðaskógi við Kaldárselsveg
Heitt súkkulaði í boði
í notalegu umhverfi skógarins
Nánari upplýsingar í síma 555 6455
Opið laugardaga og sunnudaga
til jóla kl. 10-18
Íslensk
jólatré og
skreytingar
Þeir hófu sönginn leikskóla
kórarnir strax kl. 9.20 á laugar
dagsmorgunn á Syngjandi jólum
í Hafnarborg. Síðan kom hver
kórinn á fætur öðrum og fékk
hver kór tæpar 20 mínútur.
Þarna komu lang flestir kórar
bæjarins fram og sungu jólalög
til að gleðja þá sem lögðu leið
sína í Hafnarborg. Oft var þétt
setinn bekkurinn, ekki síst þegar
stórir barnakórar sungu og stoltir
foreldrar fylgdust spenntir með.
Sungið var til kl. 4 um daginn
og var mjög gestkvæmt allan
daginn og settu tónleikarnir að
vanda skemmtilegan svip á
miðbæinn.
Að venju tók Halldór Árni
Sveinsson upp alla tónleikana og
mun verða aðgengilegt að
einhverju leyti á síðu hans www.
netsamfelag.is
Sönghátíð frá morgni fram á dag
22 kórar sungu á Syngjandi jólum í Hafnarborg
Lj
ós
m
yn
di
r:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
911 bílaþjónustan er nýtt
bílaverkstæði í Hafnarfirði sem
sérhæfir sig í Porsche bílum.
Bræð urnir Rúnar Karl Kristjáns
son og Guðjón Óskar Kristjáns
son eiga og reka bílaþjónustuna.
Þeir eru báðir bifvélavirkjar með
góða reynslu þrátt fyrir ungan
aldur.
„Við tökum auðvitað á móti
öll um tegundum af bílum en ein
beitum okkur að þeim sem við
þekkjum hvað best. Við erum
svo heppnir að hafa fengið góða
reynslu við margar tegundir en
þá helst Porsche, Volkswagen,
Skoda, BMW, Cheverolet og
Land Rover og sótt mörg nám
skeið erlendis í viðgerðum á
Porsche,“ segir Guðjón. „Stað
setn ingin hér á Hvaleyrarbraut
inni er góð og erum við hæst
ánægðir hér í Hafnarfirði.“ Þarna
heyrist að þeir eru ekki Hafnfirð
ingar ann ars hefðu þeir ekki
tekið þetta fram. Aðspurðir segj
ast þeir vera Hvergerðingar og
Guðjón ekur á hverjum degi til
Hafnarfjarðar í vinnu en Rúnar
býr í Reykjavík.
Þeir hafa komið sér fyrir í
björtu húsnæði að Hvaleyrarbraut
2 með aðkomu frá Fornubúð.
Síminn hjá þeim bræðrum er 587
0911 og þá má finna á Facebook
undir 911 bílaþjónustan.
Sérhæfa sig í viðgerðum
á Porsche bílum
Nýtt bílaverkstæði í Hafnarfirði
Rúnar Karl og Guðjón Óskar Kristjánssynir við verkstæðið.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Kuldalegt en fallegt í Jólaþorpinu um síðustu helgi.