Fjarðarpósturinn - 10.12.2015, Blaðsíða 10
10 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
húsnæði
Til leigu fullbúin 3 herb. 89 m²
sérhæð við Kelduhvamm í Hafnar
firði. Laus um áramót í langtíma-
leigu. Áhugasamir hafi samband á
kelduhvammur220@gmail.com
þjónusta
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows.
Kem í heimahús. Sími 824 9938 -
hjalp@gudnason.is
Bílaþrif. Kem og sæki.
Nú er rétti tíminn til að bóna bílinn.
Úrvals efni. Hagstætt verð.
Uppl. í s. 845 2100.
Tek að mér að færa þær yfir
á(vídeó, slide, ljósmyndir) DVD
diska eða flakkara. Sýnishorn á
siggileifa.123.is sími 8637265
siggil@simnet.is Vantar Betamax
video. Sigurður Þorleifsson.
Innréttingasmíði, viðgerðir, almenn
smíði og viðgerð á húsgögnum.
Trésmíðaverkstæði Gylfa ehf.
sími 897 7947.
Hrein húsgögn og bílasæti án ryks,
lyktar og bletta. Djúphreinsun á
borðstófustólum, hægindastólum,
sófasettum, rúmdýnum og teppum.
Djúphreinsun á bílasætum. Einnig
leðurhreinsun á áklæði. Kem á
staðinn og hreinsa, s. 780 8319.
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð
a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . h v e r 1 5 0 s l ö g .
M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Ta pað - f u n d i ð o g Ge f i n s : FR Í TT
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
www.fjardarposturinn.is
Aðgangur 8 - 22 alla daga ársins
564-6500 - Steinhellu 15
Geymsla
frá 1 til 17 m²
www.geymslaeitt.is
geymsla eitt
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5a, Hafnarfirði
Vaktsímar: 565 5892 & 896 8242 • www.utfararstofa.is • Allan sólarhringinn
Fremst í Vallarhverfinu mátti
sjá gröfu að verki þegar frostið
beit og snjór lá yfir öllu. Þarna
var stór grafa frá Fjarðargrjóti að
skafa ofan af klöppinni á lóð nr.
12 við Kirkjuvelli svo hægt væri
að stika út fyrir byggingum.
Að sögn Hjálmars Hafsteins
sonar eins eigenda Fjarðarmóta
er fyrirtækið að hefja byggingu á
56 íbúða fjölbýlishúsi á þremur
hæð um. Verða þarna 4 hús með
2ja, 3ja og fjögurra herbergja
vönd uðum íbúðum en húsið er
teiknað af ASK arkitektum.
Byggja 56 íbúðir á Völlum
Fjarðarmót byggir við Kirkjuvelli
Hér við Kirkjuvelli munu rísa 3ja hæða hús með 56 íbúðum.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Hönnun og umbrot
bækur | blöð | ársskýrslur
auglýsingar | skilti | matseðlar
ljósmyndir | greinarskrif
sími 565 4513 | hhus@hhus.is | stofnað 1990
Nú fer senn að styttast í að
veitingahúsið VON hefji rekstur
sinn við Strandgötu, í gamla
Drafn arhúsinu, en veitingahúsið
ætlar að leggja upp með árs
tíðarbundna íslenska matargerð
og hráefnanotkun, bæði í mat og
kokteilgerð.
Hugmyndina að því að opna
VON má helst rekja til brennandi
áhuga og ástríðu þeirra Einars
Hjaltasonar og Kristjönu Þuru
Bergþórsdóttur á matargerð og
rekstri veitingahúsa. „Staðsetn
ingin og eftirspurnin eftir fjöl
breyttri og staðbundinni matar
menn ingu spiluðu einnig stóra
rullu þegar ákveðið var láta
þenn an draum rætast og hefja
framkvæmdir sem nú eru langt á
leið komnar,“ segir Kristjana
Þura en fjölskylda þeirra Einars
og Kristjönu eiga stóran þátt í
uppkomu staðarins og hafa
staðið þétt við bakið á þeim í
einu og öllu, enda ekki auðvelt
verk að hefja svona rekstur með
lítið barn. Meðal annars hafa þeir
feðgar séð um alla borðasmíði á
staðnum, sem og barinn sjálfan.
Einar Hjaltason er matreiðslu
mað ur sem býr yfir mikilli
reynslu úr eldhúsinu. Hann lærði
og útskrifaðist á Grillinu og tók
síðan þátt í opnun Sjávargrillsins.
Árið 2012 kom hann að opnun á
nýjum veitingastað að nafni
Dabbous í London en staðurinn
hlaut Michelin stjörnu aðeins
átta mánuðum eftir opnun. Þegar
heim var komið tók hann að sér
að vera yfirmatreiðslumaður á
veitingastaðnum KOL á Skóla
vörðustíg, þar sem hann lét ný
verið af störfum til þess að geta
einbeitt sér að opnun veitinga
hússins VON. Kristjana Þura,
annar rekstraraðilinn, er fædd og
uppalin í Hafnarfirði og hefur
mikla reynslu af veitinga störf
um, en undanfarin tíu ár hefur
hún starfað í veitinga og hótel
geiranum.
Þegar hjúin vissu að þau ættu
von á sínu fyrsta barni saman má
segja að Hafnarfjörður hafi kall
að eftir fjölskyldunni, en stuttu
áður en dóttir þeirra kom í
heiminn snemma árið 2014 voru
þau búin að koma sér fyrir í
hjarta Hafnarfjarðar.
Sjávarafurðir áberandi
Fjölskylduna langar mikið til
að auka við matarmenningu og
veitingaflóru í bænum og fannst
því VON mathús vera mjög
viðeigandi fyrir þá stemmingu
sem ríkir yfir hafnarsvæðinu. Því
verður lagt mikið upp með
sjávarafurðir í matargerðinni og
einungis verður notast við það
ferskasta hverju sinni. Hug
myndin er að inni á VON ríki
heimilislegt og persónulegt and
rúmsloft og að fagleg þjónusta
verði samofin andrúmsloftinu
með þeirri niðurstöðu að öllum
líði vel inni á staðnum.
Stefnt er á að opna föstudaginn
18. desember og verður opið
há degi og kvöld.
Gangandi og akandi vegfar
endur eru einnig velkomnir að
líta inn til þeirra alla daga fyrir
opnun, á Strandgötu 75.
Allt er að verða tilbúið fyrir opnun á veitingastaðnum VON.
Brennandi ástríða fyrir matargerð
Veitingahúsið Von verður opnað í næstu viku
Hægt er að kaupa far með hestvagni um miðbæinn.
Stemmning
í Jólaþorpinu
Góð stemmning hefur verið í miðbænum, Jólaþorpið hefur verið í
fallegum vetrarbúningi og menningin blómstrar.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Einar Hjaltason og Kristjana
Þura Bergþórsdóttir.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Vertu með á:
www.facebook.com/
fjardarposturinn
Smelltu á
LÍKAR VIÐ
Skoðaðu fjölmargar
myndir úr bæjarlífinu