Fjarðarpósturinn - 17.12.2015, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
Að undanförnu hefur starfsfólk
Fríkirkjunnar í Hafnarfirði tekið á móti
börnum úr leikskólum og skólum bæjar
ins. Í kirkjunni fer ekki fram trúboð
heldur fræðsla um hin fyrstu jól. Af
hvaða tilefni breytist umhverfið allt í
desember? Hvers vegna setjum við
okkur í jólagírinn? Sagan er sögð og
svo er ég spurð. Börn á aldrinum 3 15
ára spyrja oft flókinna spurn inga. T.d.
þegar ég sagði að barnið hefði verið lagt
í jötu, þá fékk ég spurn inguna: Virkilega?
Var þetta í jötunheimum? Þarna var á
ferðinni 7 ára drengur og í framhaldinum
fræddi hann viðstadda um ásatrú. Þá
verða sum börnin afar hneyksluð á
gjöfum vitringanna. Reykelsi! Er ekki í
lagi? Að gefa barni sígarettur? Þau
þekkja sum hver ekki muninn á tóbaki og
reykelsi. Þá nefndi einn að hann tryði
ekki á Jesú – en þetta hafi samt verið fín
heimsókn! Að heimsækja gamalt hús og
heyra þessa gömlu sögu. Þegar börnin
voru svo spurð að því hvað kæmi þeim í
jólaskap þá voru svörin með ýmsu móti.
Mörg hver hlakka til að eiga stund með
fjölskyldunni. Enn önnur nefna
jólaskraut, jólalög, gjafir og bakstur. Eitt
svar mun lifa lengi með okkur starfsfólki
kirkjunnar. Þá svaraði ungur drengur og
sagði með tilfinningu: „Það sem kemur
mér í jólaskap er ófrísk kona. Og það vill
svo til að hér er ein slík!“ sagði hann
stoltur og benti á kennarann sinn.
Já, svona tala börnin og þau upplifa
söguna hvert og eitt á sinn hátt og
auðvitað er það best. Að fá að nálgast
kjarnann og túlka á sinn hátt. Það má
endalaust túlka þessa sögu og nú þegar
við horfðum á eftir albanskri fjölskyldu í
jólamánuðinum þá hljóma þessi orð frá
jólaguðspjallinu: ...eigi var rúm handa
þeim. Var virkilega ekki til pláss fyrir
hjartveikan dreng og fjölskyldu hans í
samfélagi okkar? Spurningin á rétt á sér.
Nú þegar jólin nálgast þá mætum við
barni í sögunni af fyrstu jólunum. Sagan
sjálf er barnslega einföld – en spurningin
sem hún vekur er stór. Sérðu barnið? Og
ef svo er: Hvernig viltu taka á móti því?
Vísa því á dyr eða fagna, umvefja og
vernda?
Hvað skiptir þig máli? Hver eru þín
lífsgildi? Hvernig gengur þér að lifa eftir
þeim? Þolir uppskeran þín dagsljósið?
Jesús frá Nasaret var stórmerkilegur
maður sem hafði mikið að gefa. Hann
átti ekki veraldlegan auð en hann hafði
orðin og verkin og hann fullvissar okkur
um að við getum vissulega stigið
öldurnar þótt úfnar séu – ef við aðeins
höfum trú. Trú á að færa megi hluti til
betri vegar.
Í fallegum sálmi, Nóttin var sú ágæt
ein eftir Einar Sigurðsson, er vers sem
reyndar er sjaldan sungið. Í mínum huga
segir það allt sem segja þarf. Þar fagnar
skáldið komu frelsarans í heiminn með
þessum orðum:
Þér gjör ég ei rúm úr grjót né tré
heldur læt ég hitt í té
vil ég mitt hjartað vaggan sé.
Vertu nú hér minn kæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
(Sb. 72 – Einar Sigurðsson)
Við skulum gera bæn
ar orð skáldsins að okkar.
Guð gefi þér lesandi
góð ur náð og frið.
Gleðilega jólahátíð.
Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir
Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir, prestur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði:
Jólahugvekja
Jólatrjáasala
Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar
Höfðaskógi við Kaldárselsveg (Þöll)
Sjá nánar á skoghf.is og fésbókinni • Sími: 555 6455
Opið laugar- og sunnudag
kl. 10-18
Íslensk
jólatré og
skreytingar
furugreinabúnt
og heitt súkkulaði
í kaupbæti
Laugardaginn 19. des. kl. 14
koma rithöfundarnir Bryndís,
Arnór og Óli Gunnar og lesa
úr og árita bók sína „Leitin
að tilgangi unglingsins“
Komu
flótta fólks
seinkar
Af ýmsum ástæðum hefur
tekið lengri tíma en ætlað var
að ganga frá nauðsynlegum
forms atriðum vegna útgáfu
út gönguvegabréfa fyrir flótta
fólkið sem áskilin eru af hálfu
líbanskra stjórnvalda við brott
för fólksins frá Líbanon. Nú er
gert ráð fyrir að fólkið komi til
Íslands um eða eftir miðjan
janúar.
Tón listar
veisla í
kvöld
Kór Flensborgarskólans,
Flensborgarkórinn, Karlakórinn
Þrestir, Brasskvintett LH ásamt
Jónasi Þóri píanóleikara halda
seinni tónleika sína í kvöld
fimmtudaginn 17. undir yfir
skriftinni Vinakvöld á aðventu í
Hamarssal Flensborgarskólans
og hefjast þeir kl. 20.
Stjórnendur kóranna eru
Hrafn hildur Blomsterberg og
Jón Kristinn Cortez. Verð að
gangs miða er kr. 2.000 og
1.000 fyrir grunn og fram
haldsskólanemendur og fást
þeir hjá kórfélögum og við inn
ganginn.
Nýtt bókakaffihús
Norðurbakkinn – bækur & kaffihús
Veitingarekstur blómstrar
greinilega í Hafnarfirði og þegar
Pallett flutti í stærra húsnæði í
Drafnarhúsinu kom nýtt og
glæsilegt kaffihús í staðinn á
Norðurbakka 1, Norðurbakkinn,
bækur & kaffihús.
Þar hefur Snæfellingurinn
Málfríður Gylfadóttir Blöndal
byggt upp notalegt en jafnframt
glæsilegt kaffihús en Málfríður
er búsett í Hafnarfirði. Þetta er
reynd ar líka bókabúð þar sem
seld ar eru nýjar og notaðar bæk
ur og kaffihúsagestir geta glugg
að í bækur með kaffinu.
En það eru glæsilegar kökur
og bökur sem heilla gesti Norð
urbakkans sem að sögn Málfríðar
hafa tekið kaffihúsinu gríðarlega
vel, sem og bóksölunni. Í há
deginu er boðið upp á góm sætar
Mæðgurnar María Rún Halldórsdóttir og Málfríður G. Blöndal.
súpur, samlokur og bökur en
terturnar eru vinsælli á öðrum
tíma dags en opið er kl. 1019
alla daga en opnunartíminn er
enn í þróun að sögn Málfríðar.
Kaffihúsið er með 25 þægileg
sæti og útsýnið er yfir á elstu hús
bæjarins, Byggðasafnstorfuna.
Málfríður segi það sé gamall
draumur að opna bókabúð en
mamma hennar rak bókabúð í
Ólafsvík. Systkini hennar og
fjölskylda hafa hjálpað mikið til
við að koma kaffihúsinu á koppi
nn og á fyrstu metrunum og
gleðjast allir yfir góðum árangri.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
ÞORLÁKSMESSUSKATA
HAUKA
Að venju verður skata og salt fiskur í
boði í hinni árlegu skötu veislu Hauka
á Þorláksmessu í Samkomusalum að
Ásvöllum. Veislan hefst kl. 12.