Fjarðarpósturinn - 17.12.2015, Síða 23
www.fjardarposturinn.is 23FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
Opnunartímar Hafnarborgar
um jól og áramót eru eftirfarandi
Þriðjudagur 22. des Lokað
Þorláksmessa, 23. des Opið frá kl. 12–17
Aðfangadagur, 24. des Lokað
Jóladagur, 25. des Lokað
Annar í jólum, 26. des Lokað
Sunnudagur 27. des Opið frá 12–17
Mánudagur 28. des Opið frá 12–17
Þriðjudagur 29. des Lokað
Miðvikudagur 30. des Opið frá 12–17
Gamlársdagur 31. des Lokað
Nýársdagur 1. jan Lokað
Laugardagur 2. jan Opið frá 12–17
Sunnudagur 3. jan Opið frá 12–17
Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð
Hafnarfjarðar
Strandgata 34
220 Hafnarfjörður
www.hafnarborg.is
Gleðileg jól og
gæfuríkt komandi ár
Hátíðarsalurinn í Víðistaðaskóla var troðfullur og góða stemmning.
Söfnuðu 218 þús. kr. á jólabingói
Nemendur í Víðistaðaskóla vildu styrkja þá sem minna mega sín
Nemendaráð Víðistaðaskóla,
ásamt nemendum í 10. bekk og
félagsmiðstöðinni Hrauninu,
stóð fyrir jólabingói 9. desember
sl. fyrir alla í matsal skólans.
Húsfyllir var og jólasveinarnir
gáfu sér tíma til að líta inn og
taka þátt.
Í desember er nemendum
hugsað til þeirra sem minna
mega sín og vildu þeir leggja sitt
af mörkum fyrir þá. Nemendur
voru duglegir að safna
vinningum og stóðu vel að öllum
undirbúningi og unnu vel saman.
Jólabingóið heppnaðist sérlega
vel í ár. Það söfnuðust 218.000
kr og tók séra Bragi Ingibergsson,
prestur í Víðistaðakirkju við
ágóðanum og mun hann sjá um
að koma honum til þeirra sem
þess þurfa. Peningarnir eiga eftir
að koma sér vel.
Nemendurnir eru afar þakklátir
öllum sem styrktu þetta góða
málefni með vinningum,
þátttöku og aðstoð og hlakka þeir
til að endurtaka leikinn að ári.
Spennan var mikil
Ný verslun
Leanbody á Bæjarhrauni
Leanbody er ný verslun að
Bæjarhrauni 2. Þar bjóða Alfreð
Pálsson og Agnes Kr. Gestsdóttir
upp á Leanbody og Labrada
fæðu bótaefnin sem er eitt stærsta
merki fæðubótaefna í USA sem
hann segir vera þekkt fyrir
afburða bragðgæði og frá bæra
samsetningu næringarefna.
Segir Alfreð vörurnar henta
öllum íþróttagreinum, hvort sem
um er að ræða þol, styrk, snerpu
eða liðleika en Alfreð og
starfsfólk hans hjálpar til við að
finna það sem vantar.
Leanbody er einnig með vand
aðan fatnað frá Monsta, sem
kem ur einnig frá USA. Monsta
er ungt en öflugt fyrirtæki þar
sem markhópurinn er kraftasport,
bardagaíþróttir og crossfitt.
Síðast en ekki síst býður Lean
body ehf upp á Trimform sem
bæði hjálpar til við að vinna á
bólgum og meiðslum sem erfitt
er að þjálfa í kringum, slappri
húð og öllu sem því tengist.
Alfreð er Akureyringur og
Agnes er Selfyssingur og eru þau
hæstánægð með viðtökurnar í
Hafn arfirði. Hvetja þau bæjar
búa til að líta við og kynna sér
vöruúrvalið og starfsemina í
þægilegu og ljúfu umhverfi.
Alfreð Pálsson og Agnes Kristín Gestsdóttir í nýju versluninni.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
NÆSTA BLAÐ
kemur út
7. janúar 2016