Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.06.2019, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 22.06.2019, Qupperneq 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið Þrjú í fréttum List, efi og afsögn Haraldur Jónsson myndlistarmaður var útnefndur borgarlistamað- ur Reykjavíkur 2019. Haraldur tók við heiðurs- viðurkenning- unni við hátíð- lega athöfn í Höfða. Jón Bjarnason fyrrverandi sjávar­ útvegsráðherra dregur í efa að Hæstiréttur hafi verið hlutlaus er dómur var kveðinn upp í desember í fyrra þar sem ríkið var gert skaðabótaskylt vegna úthlut- unar makrílkvóta. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og stjórn félags- ins samþykktu að aftur- kalla umboð stjórnarmanna VR í Lífeyrissjóði verzlunarmanna (LIVE) og báru við trúnaðarbresti. Allt fór í háaloft í kjölfarið og sagði meðal annars Ólafur Reimar Gunnarsson af sér sem stjórnarformaður LIVE. 140.000 Evrópubúar hafa skrifað undir áskorun til íslenskra, norskra, skoskra og írskra stjórn- valda um að laxeldi í opnum sjókvíum verði hætt. 75 ára afmæli stofn- unar lýðveldisins Íslands var fagnað á mánudag, þann 17. júní. Af því tilefni var boðið upp á 75 metra langa tertu við Hljómskála- garðinn. 16 voru sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á þjóðhátíðar- daginn. Forseti Íslands gerði það að vanda við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. 65 desíbel er hljóð- stigið sem umferðar- hávaðinn frá Hafnarfjarð- arvegi í Garðabæ hefur mælst við íbúðarhús í Túnunum. Íbúar hafa fengið nóg. isband.is UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 LOKAÐ LAUGARDAGA FRÁ 8. JÚNÍ TIL OG MEÐ 3. ÁGÚST VERÐUM Á SELFOSSI Á BÍLASÝNINGUNNI HJÁ JÖTUNN VÉLUM Í DAG KL 13-17 ÍS-BAND UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI. SÝNUM 35” JEEP® GRAND CHEROKEE, JEEP® WRANGLER RUBICON OG NÝJA RAM 3500 LIMITED MEGACAB. BYGGÐAMÁL „Mér sýnist allur þessi peningur fara bara suður. Síðan eigum við að fara suður til að betla pening sem verður til hjá okkur. Fyrir utan að það er ekkert gefið hvort það verði yfirleitt ein- hver peningur,“ segir Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri Fjarða- byggðar. Samkvæmt lögum um gjaldtöku í fiskeldi sem samþykkt voru á Alþingi í vikunni er gert ráð fyrir að tveir þriðju tekna af gjaldinu renni í ríkissjóð. Þriðjungur á að renna í fiskeldissjóð frá og með árinu 2021. Ætlunin er að auglýsa og úthluta styrkjum til sveitarfélaga til verk- efna sem eru til þess fallin að byggja upp innviði á þeim svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað. Fiskeldi stefnir í að verða fyrir- ferðarmikil atvinnugrein í bænum. Karl Óttar, líkt og aðrir bæjarstjórar í sveitarfélögum þar sem fiskeldi er til staðar, gagnrýndi við vinnslu frumvarpsins að ekki rynni meira til sveitarfélaganna, þar að auki væri óþarfi að gera slíkt í gegnum sérstakan sjóð. Hann er svartsýnn á að nokkuð muni skila sér. Slíkt hafi gerst áður með Ofanflóðasjóð. „Þar er ákveðinn peningur settur í sjóðinn, þeir fjármunir hafa ekki nýst sem áætlað var. Í þessum nýju lögum á Alþingi að ákveða hvort það sé sett eitthvað í sjóðinn og síðan þurfum við að rökstyðja að uppbyggingin tengist fiskeldi.“ Karl Óttar segir það geta reynst erfitt, þörf sé á uppbyggingu inn- viða vegna fiskeldis en það þýði ekki að nefndin sem sjái um að útdeila fjármununum líti það sömu augum. „Það eru framkvæmdir við höfnina okkar núna sem munu nýtast fiskeldinu, en það er ekki bara fyrir fiskeldið. Við stöndum undir okkar framkvæmdum sjálf og munum líklegast þurfa að gera það áfram þrátt fyrir að gjald sé tekið af atvinnugreininni. Fiskeldi er orðið mjög stór og öflug atvinnugrein hér í Fjarðabyggð.“ Rebekka Hilmarsdóttir, bæjar- stjóri í Vesturbyggð, telur að lögin í heild sinni komi til með að hafa jákvæð áhrif á sveitarfélagið, sér- staklega þegar kemur að því að eyða óvissu um rekstrarumhverfi fyrirtækjanna. Gjaldtakan sé hins vegar annað mál. „Fyrir sveitar- félag eins og Vesturbyggð sem á við vaxtarverki að stríða þá þurfum við mikinn stuðning við að koma inn- viðum okkar í samt lag. Við hefðum viljað sjá þetta í ætt við tillögur ráð- herra fyrir tveimur árum, þar sem í kringum 85 prósent áttu að renna til innviðauppbyggingar.“ Miðað við þessa niðurstöðu segir Rebekka að innviðauppbyggingin verði meiri áskorun. „Við erum ekki mjög ánægð með niðurstöðuna og munum halda áfram þessu samtali við stjórnvöld.“ Karl Óttar segir nýju lögin dæmigerð, allt f jármagn sogist suður. „Við búum við þessa firði en höfum ekkert um þá að segja. Við fengum engu ráðið um Hellisfjörð og Viðfjörð, það er ekkert hlustað á okkur. Það eru engir peningar settir í eftirlit eða þekkingu og ef það yrði umhverfisslys hérna þá lendir það alfarið á okkur.“ arib@frettabladid.is Segir peningana sogast suður Alþingi samþykkti ný lög um gjaldtöku í fiskeldi. Þriðjungur tekna rennur í fiskeldissjóð. Bæjarstjórar sveitarfélaga við fiskeldisfirði segja að mun meira hefði átt að renna til innviðauppbyggingar og eftirlits. Rúmlega 10.000 tonna framleiðsla í fiskeldi er nú á sunnanverðum Vestfjörðum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Við hefðum viljað sjá þetta í ætt við tillögur ráðherra fyrir tveimur árum, þar sem í kringum 85 prósent áttu að renna til innviðauppbygg- ingar. Rebekka Hilmars- dóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar 53% landsmanna eru nú með aðildarkort í Costco miðað við 71 prósent í ársbyrjun 2018. TÖLUR VIKUNNAR 16.06.2019 TIL 22.06.2019 2 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 2 -0 6 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 4 3 -D 1 8 C 2 3 4 3 -D 0 5 0 2 3 4 3 -C F 1 4 2 3 4 3 -C D D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 2 2 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.