Fréttablaðið - 22.06.2019, Síða 6
OPIÐ ALLAR HELGAR
FRÁ KL. 11.00-17.00
KOMDU Í
KOLAPORTIÐ
D Á S A M L E G D E I L D S A M F É L A G S I N S
30
ÁRA
1989 2019
ALÞI N G I Verkef ni ræðuútgáf u
Alþingis eru ærin ef ræðuhöld eru
mikil síðustu daga fyrir þinglok.
Af rúmlega 150 klukkustundum
af ræðum þingmanna sem er eftir
að klára að skrifa upp og koma inn
á vef Alþingis eru vel yfir 100 um
þriðja orkupakkann.
„Já, þetta er mun meira en vant er
eftir þinglok,“ segir Berglind Steins-
dóttir, deildarstjóri ræðuútgáfu
Alþingis. Ræðuútgáfan notar tal-
greini sem þróaður var í Háskólan-
um í Reykjavík að beiðni þingsins.
„Talgreinirinn breytir ræðum
þingmanna í texta á ótrúlega
skömmum tíma, mun skemmri en
tekur þingmanninn að f lytja ræð-
una,“ segir Berglind. Hún segir for-
ritið ekki skila fullkomnum texta
en góðum hrágögnum sem starfs-
mennirnir noti til að klára textann.
„Það munar mjög mikið um þetta
í okkar vinnu. Það er allt annað að
eiga 150 klukkustundir ókláraðar
þegar við höfum talgreininn heldur
en hér áður fyrr þegar við þurftum
að skrifa allt upp frá orði til orðs.“
Berglind segir talgreininn líka
læra og að enn sé verið að þróa til
dæmis greinarmerkjasetningu.
Hann er búinn að læra inn á hljóð-
hvíld í ræðum og setur rétt greinar-
merki þegar þingmenn ávarpa
forseta í miðri ræðu. Þá geti ræðu-
lesarar líka kennt talgreininum ný
orð sem hann skilur ekki.
„Honum gengur til dæmis illa
með útlend orð og ný nöfn en við
getum leiðrétt hann og þá man
hann leiðréttinguna og gerir ekki
villuna aftur,“ segir Berglind og
nefnir nokkur dæmi um nöfn sem
talgreinirinn fór rangt með.
Það var yfirstjórn Alþingis sem
átti frumkvæði að talgreininum
með það að markmiði að gera störf
ræðuútgáfunnar viðráðanlegri.
Alþingi og tækni- og verkfræðideild
Háskólans í Reykjavík skrifuðu
undir samning í september 2016 um
þróun og innleiðingu á opnum hug-
búnaði til að nýta við ræðuritun.
Fjárlaganefnd veitti fjármagn til
verkefnisins.
Markmið Alþingis var þá og er
enn að hugbúnaðurinn verði opinn
og geti nýst öllum. „Þjóðþingin hafa
verið í nokkurri forustu í þessum
efnum, en farið mismunandi leiðir,“
segir Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis.
„Það eru þó nokkur ár síðan ég
heyrði fyrst af þessu galdratæki
en fór auðvitað að hugsa hve mikil
hagræðing gæti orðið hjá okkur,
með allan okkar ræðutíma sem er
óvenjulega langur, ekki hvað síst ef
tekið er tillit til fjölda þingmanna.
Mig minnir að íslenskur þingmað-
ur tali í svona 13 klukkustundir
á hverju þingi, en annars staðar á
Norðurlöndunum er þetta innan
við 3 klukkustundir, sums staðar
ein til ein og hálf klukkustund, og
sama gildir fyrir þýska, franska
og breska þingið,“ segir Helgi sem
kveðst hafa átt töluverða sam-
vinnu og fengið uppörvun hjá Eiríki
Rögnvaldssyni prófessor sem hefur
verið í fararbroddi í tungutækni og
eflingu hennar.
Fyrir rúmu ári var opnuð vef-
gátt fyrir talgreini á slóðinni tal/
ru.is. Talgreinirinn á vefgáttinni
er frumútgáfa og ekki þjálfaður
sérstaklega fyrir tiltekið svið, líkt
og talgreinirinn sem notaður er á
Alþingi. adalheidur@frettabladid.is
Ræður þingmanna eru
nú skráðar af talgreini
Ræðuritarar Alþingis eiga eftir að snúa 150 klukkustundum af þingræðum
yfir á texta sem fer á vef þingsins. Þar af eru 130 klukkutímar um þriðja orku-
pakkann. Ný tækni talgreinis hjálpar mikið til en misskilur stundum sumt.
Umræða um þriðja orkupakkann tók 138 klukkustundir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Misheyrn talgreinis
Dæmi um ranga túlkun talgrein-
isins þar sem starfslið ræðuút-
gáfunnar hefur þurft að kenna
talgreininum rétta merkingu.
Smári McCarthy
Smátíma kaffi
Carl Baudenbacher
Karl bakkar bátum
Tony Blair
Tón í blöð
Pia Kjærsgaard
Tíu kerskálar
Mig minnir að
íslenskur þing-
maður tali í svona 13
klukkustundir á hverju
þingi.
Helgi Bernódus-
son, skrifstofu-
stjóri Alþingis
FISKELDI Landsréttur hefur hafnað
kröfum tveggja fiskeldisfyrirtækja
um dómkvaðningu matsmanna og
ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins
vegna máls sem höfðað var til ógild-
ingar á rekstrarleyfum þeirra.
Leyfin veitti sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra 5. nóvember
síðastliðinn á grundvelli lagasetn-
ingar sem samþykkt var á Alþingi
í kjölfar þess að úrskurðarnefnd
umhverfis- og auðlindamála felldi
rekstrarleyfi fyrirtækjanna úr gildi
síðastliðið haust.
L a ndeigendu r og nát t ú r u-
verndarsamtök höfðuðu mál til að
fá rekstrarleyfin ógilt og 14. janúar
féllst héraðsdómur á að málið fengi
f lýtimeðferð, enda um að ræða
starfsemi, á svæði viðkvæmrar
náttúru, sem grundvallast ekki á
lögmætu umhverfismati.
Eftir að f lýtimeðferð var veitt
hefur málið velkst fram og aftur og
ekki enn verið flutt efnislega. Fisk-
eldisfyrirtækin kröfðust frávísunar
málsins 6. febrúar. Því hafnaði hér-
aðsdómur 22. febrúar.
Fyrirtækin lögðu aftur fram
greinargerð 6. mars og gerðu ann-
ars vegar kröfu um ráðgefandi álit
EFTA-dómstólsins um fjögur til-
greind atriði og hins vegar að dóm-
kvaddir matsmenn skiluðu rök-
studdri matsgerð um ýmis atriði
sem tíunduð eru í greinargerð.
Báðum kröfum var hafnað í hér-
aði og var sá úrskurður staðfestur
í Landsrétti í gær. Málið verður
væntanlega f lutt munnlega fyrir
réttarhlé dómstóla enda um flýti-
meðferðarmál að ræða. – aá
Fá ekki ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins í deilu um rekstrarleyfi
Landsréttur hafnaði kröfum tveggja fiskeldisfyrirtækja. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
STJÓRNMÁL Fyrirtækið Maskína
hefur gert viðamikla könnun fyrir
utanríkisráðuneytið um viðhorf
Íslendinga til alþjóðasamstarfs.
Miðað við könnunina eru Íslend-
ingar tiltölulega jákvæðir í garð
Evrópusambandsins. Þannig segjast
40,7 prósent vera jákvæð gagnvart
ESB og 27,5 prósent vera neikvæð
gagnvart sambandinu. Hins vegar
segjast aðeins 31,6 prósent hlynnt
inngöngu Íslands í ESB, 25,4 prósent
segjast í meðallagi hlynnt inngöngu
og 43,0 prósent segjast andvíg.
Nokkur munur er á afstöðu eftir
kynjum og búsetu. Til dæmis segjast
40,8 prósent þeirra sem búa í Reykja-
vík hlynnt inngöngu en 11,9 prósent
á Austurlandi hafa sömu afstöðu og
þar segjast 61,4 prósent andvíg inn-
göngu í ESB á móti 31,6 prósentum í
Reykjavík.
Mikill munur er á afstöðu eftir
því hvað stjórnmálaflokk þátttak-
endur segjast mundu kjósa ef kosið
yrði til Alþingis nú. Langminnstur
stuðningur við inngöngu Íslands
í ESB er meðal Framsóknarmann.
Enginn þeirra kveðst styðja inn-
göngu Íslands í ESB og 84,3 prósent
segjast andvíg inngöngu.
Af þeim sem kjósa Miðflokkinn
segjast 14,0 prósent jákvæð gagnvart
inngöngu og 74,4 prósent eru andvíg.
Jákvæðastir gagnvart inngöngu
í ESB eru fylgismenn Viðreisnar,
76,5 prósent, og stuðningsmenn
Samfylkingar þar sem 73,3 prósent
segjast hlynnt inngöngu.
Þegar spurt er hversu jákvætt fólk
sé gagnvart aðild Íslands að samn-
ingnum um Evrópska efnahagshags-
svæðið (EES) eru það fylgismenn
Viðreisnar sem mælast jákvæðastir,
87,7 prósent þeirra segjast jákvæð
gagnvart aðildinni. Nefna má að af
þeim sem kjósa Miðflokkinn segjast
43 prósent jákvæð og 32 prósent nei-
kvæð gagnvart aðild landsins að EES.
Þess má geta að samkvæmt
könnuninni eru Íslendingar gríðar-
lega jákvæðir gagnvart því að Ísland
Íslendingar jákvæðir í
garð Evrópusambandsins
taki virkan þátt í norrænu samstarfi.
Þannig segjast 92 prósent jákvæð og
7,6 prósent í meðallagi jákvæð gagn-
vart því samstarfi en aðeins 0,4 pró-
sent svarenda segjast neikvæð.
Nánar er hægt að lesa um könnun-
ina á frettabladid.is. – gar
✿ Könnun Maskínu
n Hlynnt/ur n Í meðallagi n Andvíg/ur
Flokkur fólksins
13
,2
%
28
,4
%
58
,4
%
Píratar
52
,4
%
34
,4
%
13
,2
%
Samfylkingin
11
,6
%
15
,1
%
73
,3
%
Vinstri græn
26
,6
%
36
,3
%
37
%
Viðreisn
76
,5
%
17
,3
%
6,
2%
Miðflokkurinn
14
%
11
,5
%
74
,4
%
Framsóknarflokkurinn
15
,7
%
84
,3
%
Sjálfstæðisflokkurinn
78
,8
%
14
,8
%
6,
4%
Ertu hlynnt/ur eða andvíg/ur inn-
göngu Íslands í Evrópusamband-
ið? (Svör eftir því hvaða flokk fólk
segist mundu kjósa til Alþingis.)
Svarendur: 824
2 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
2
-0
6
-2
0
1
9
0
9
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
3
-E
5
4
C
2
3
4
3
-E
4
1
0
2
3
4
3
-E
2
D
4
2
3
4
3
-E
1
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K