Fréttablaðið - 22.06.2019, Side 8

Fréttablaðið - 22.06.2019, Side 8
Við tökum þá ábyrgð alvarlega að ávaxta fé sjóðfélaga. Guðrún Hafsteins­ dóttir, varafor­ maður stjórnar LIVE LÍFEYRISSJÓÐIR Fjármálaeftirlitið hefur tilkynnt Ólafi Reimari Gunn- arssyni að hann sé enn stjórnar- formaður Lífeyrissjóðs verzlunar- manna, LIVE. Þetta segir hann í samtali við Fréttablaðið. Fulltrúaráð VR samþykkti á fundi á fimmtudagskvöld að aftur- kalla umboð allra fjögurra stjórn- armannanna sem félagið skipar í stjórn LIVE og tilnefna nýja í þeirra stað. Brugðið var á það ráð í kjöl- far vaxtahækkunar á breytilegum verðtryggðum húsnæðislánum til sjóðfélaga. „Fjármálaeftirlitið tilkynnti mér rétt fyrir tilkynningu VR að ég sé enn þá stjórnarformaður Líf- eyrissjóðs verzlunarmanna,“ segir Ólafur Reimar Gunnarsson. „Það eru lögfræðingar sem segja að þetta sé ólöglegt en lögmaður sjóðsins, Tómas Möller, segir að þetta sé trúlega löglegt, að fara með þetta í gengum fulltrúaráðið. Ég veit ekki alveg hvernig þetta þróast. Ég hangi bara í lausu lofti.“ Guðrún Hafsteinsdóttir, varafor- maður stjórnar LIVE, segist telja að Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hafi beðið eftir að fá tækifæri til að reka fulltrúa VR í stjórn líf- eyrissjóðsins því hann hafi ekki haft stjórn á þeim. „Ég leyfi mér að fullyrða að þessi staða hafi aldrei komið upp í leyfis- sjóðakerfinu áður,“ segir hún. LIVE er næststærsti lífeyrissjóður lands- ins og stýrir 713 milljörðum króna. „Ragnar Þór vísar oft til lýðræðis- legra vinnubragða en ég fæ ekki séð að þetta sé lýðræðislegt af hálfu stjórnar VR.“ Guðrún veltir því upp hver við- brögðin í samfélaginu yrðu ef Sam- tök atvinnulífsins myndu haga sér með sama hætti. „Það myndi ekki teljast eðlilegt,“ segir hún. Guðrún hefur setið í stjórn líf- eyrissjóða í fimm ár fyrir Samtök atvinnulífsins, fyrst í tvö ár í Festu og nú þrjú ár í LIVE. „Samtök atvinnulífsins hafa aldrei haft afskipti af mínum störfum.“ Ragnar Þór tók til sinna ráða þegar lífeyrissjóðurinn ákvað að hækka breytilega vexti verðtr yg gðra sjóð- félagalána úr 2,06 prósentum í 2,26 prósent hinn 24.  maí e n t ve i mu r dög um áðu r hafði Seðlabanki Íslands lækkað stýrivexti um hálft prósentustig. Vaxtahækkunin á að taka gildi 1. ágúst næstkomandi. Guðrún segir að því fylgi mikil ábyrgð að gæta sparifjár fólks og tryggja því góðan lífeyri þegar starfsævinni lýkur. „Við tökum þá ábyrgð alvarlega að ávaxta fé sjóð- félaga. Stjórn lífeyrissjóðsins hefur ekki umboð til annars en að taka á móti iðgjöldum, ávaxta þau á sem hagkvæmasta máta fyrir sjóðfélaga og greiða út lífeyri,“ segir hún og nefnir að sjóðfélagar, þar með talið ellilífeyrisþegar, eigi ekki að niður- greiða vexti fyrir þá 3.700 manns sem tekið hafa lán hjá sjóðnum með breytilegum vöxtum. „Það er með öllu ólíðandi,“ segir Guðrún. Hún segir að afturköllun umboðs stjórnarmanna frá VR sé aðför að allri stjórn LIVE en beinist ekki einungis að fulltrúum VR. Átta manns sitja í stjórn lífeyrissjóðs- ins. Atvinnurekendur skipa fjóra og launþegar fjóra. „Við höfum unnið vel saman og verið heiðarleg í okkar störfum. Við stóðum öll sem eitt að baki þeirri ákvörðun að hækka vexti í maí,“ segir Guðrún. Ástæða vaxtahækkunarinnar á umræddum lánum á sama tíma og stýrivextir lækkuðu var að kjör lán- anna voru bundin við úrelt viðmið og því voru vextirnir í raun orðnir óeðlilegir. „Vextirnir miðuðust við breyt- ingu á ávöxtunarkröfu ákveðins skuldabréfaf lokks hjá Íbúðalána- sjóði en það voru engin viðskipti með skuldabréfaf lokkinn og því ekki hægt að miða við hann lengur. Stjórnin hefur lagt mikla vinnu við að finna ný viðmið. Það eru ekki duttlungar, eins og Ragnar Þór kýs að kalla það,“ segir Guðrún. Að hennar sögn horfir Ragnar Þór fram hjá því að vextir hafi lækkað mikið frá árinu 2015. Þeir hafi lækkað úr 3,99 prósentum í 2,06 prósent. Í því sé fólgin kjara- bót. Enn fremur hafi fastir verð- tryggðir vextir verið lækkaðir á sama tíma og tilkynnt var um hækkun úr 3,6 prósentum í 3,4 prósent. Jafnvel þótt Guðrún sé varafor- maður stjórnar Lífeyrissjóðs verzl- unarmanna mun hún ekki verða stjórnarformaður við brotthvarf Ólafs Reimars. „Við skiptum með okkur hlut- verki stjórnarformanns á þriggja ára fresti. Ég var stjórnarformaður í þrjú ár og af henti kef lið til laun- þega í mars. Launþegar skipa stjórnarformann næstu þrjú ár,“ segir Guðrún. FME sagði Ólaf enn formann LIVE Þeim sem kusu á fundinum var lofað stjórnarsæti „Það hitti bara þannig á að daginn sem við ákváðum að hækka vextina þá lækka stýri­ vextir Seðlabankans,“ segir Ólafur Reimar Gunnarsson sem sat í stjórn VR og var stjórnarfor­ maður Lífeyrissjóðs verzlunar­ manna. „Eftir að við hækkuðum vextina þá hringdi Ragnar [Þór Ingólfsson] í mig alveg brjálaður og bað mig um að senda greinar­ gerð um af hverju við vorum að hækka vextina. Með þessu værum við að skemma fyrir honum,“ segir Ólafur Reimar, hann var þá í fríi á Spáni. Í samráði við stjórn lífeyris­ sjóðsins útbjó hann greinargerð fyrir stjórn VR. „Ég var að reyna að útskýra ákvörðunina í greinar­ gerðinni en fékk þau svör að þetta útskýrði ekki neitt. Ragnari lá mikið á að fá skýringar og boðaði stjórnarfund um hvíta­ sunnuna. Þá komust ekki allir þannig að þessu var frestað fram á síðasta þriðjudag.“ Ólafur segir að útlit hafi verið fyrir að þetta yrði venjulegur stjórnarfundur, útskýringar hans væru eitt af stóru atrið­ unum sem þyrfti að afgreiða. „Ég útskýrði þetta, hann sneri bara út úr því, það skipti engu máli hvað ég sagði. Síðan dró hann fram plagg þar sem um­ boðið er tekið af okkur.“ Stjórnin samþykkti tillögu Ragnars Þórs og var málinu vísað til trúnaðarráðsins þar sem umboðið yrði formlega tekið af þeim og aðrir skipaðir í staðinn. „Einn stjórnarmaðurinn spurði hverja Ragnar vildi fá í staðinn, hann vildi ekki segja það til að byrja með. Hann sagði svo að það fólk væri á fundinum. Þá kemur í ljós að Ragnar var búinn að hringja í menn og bjóða þeim þessi sæti í stjórninni. Þannig að áður en þeir kusu var búið að láta þá fá gulrót. Ég verð að viður­ kenna að ég er mjög sár yfir því hvernig þetta fór.“ FME rannsakar brottrekstur VR Fjármálaeftirlitið hefur til skoðunar þá ákvörðun VR að draga til baka umboð stjórnarmanna í Lífeyrissjóði verzlunarmanna. „Við munum vanda til verka við að rannsaka hvernig málið er vaxið og hvort farið hafi verið að lögum, til að mynda hvort það séu rétt kjörnir stjórnarmenn sem taki ákvarðanir. Það er mikilvægt einkum þegar um er að ræða ríka almannahagsmuni eins og rekstur lífeyrissjóðs,“ segir Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Hún segir að þeir sem tilnefni í stjórnir eigi ekki að segja stjórnarmönnum fyrir verkum. „Stjórnarmenn eru sjálfstæðir í vinnubrögðum. Þeir eiga einungis að starfa eftir eigin samvisku og þeim lögum sem eru í gildi,“ segir hún. Unnur vekur athygli á að breytingar á stjórn þurfi að fara eftir formlega réttum leiðum. Í því samhengi þarf að skoða og túlka gildandi samþykktir lífeyrissjóðsins. „Stjórnarmenn eiga almennt rétt á að sitja í stjórn séu þeir kosnir með löglegum hætti á aðalfundi,“ segir hún. Því verður að gera ráð fyrir að ákveði stjórnarmaður að víkja úr sæti taki varamaður, sem þegar hefur verið kosinn á aðalfundi, sæti hans. Guðrún Hafsteinsdóttir segir að því fylgi mikil ábyrgð að gæta sparifjár fólks og tryggja því góðan lífeyri þegar starfsævinni lýkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Guðrún Hafsteinsdóttir, varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunar- manna, segist telja að Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hafi beðið eftir að fá tækifæri til að reka fulltrúa VR í stjórn lífeyrissjóðsins því hann hafði ekki stjórn á þeim. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is Þá kemur í ljós að Ragnar var búinn að hringja í menn og bjóða þeim þessi sæti í stjórninni. Þannig að áður en þeir kusu þá var búið að láta þá fá gulrót. Ólafur Reimar Gunnarsson Stjórnarmenn eiga almennt rétt á að sitja í stjórn séu þeir kosnir með löglegum hætti á aðalfundi. Unnur Gunnars­ dóttir 2 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 2 -0 6 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 4 3 -F 9 0 C 2 3 4 3 -F 7 D 0 2 3 4 3 -F 6 9 4 2 3 4 3 -F 5 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 2 2 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.