Fréttablaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 8
Við tökum þá
ábyrgð alvarlega að
ávaxta fé sjóðfélaga.
Guðrún Hafsteins
dóttir, varafor
maður stjórnar
LIVE
LÍFEYRISSJÓÐIR Fjármálaeftirlitið
hefur tilkynnt Ólafi Reimari Gunn-
arssyni að hann sé enn stjórnar-
formaður Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna, LIVE. Þetta segir hann í
samtali við Fréttablaðið.
Fulltrúaráð VR samþykkti á
fundi á fimmtudagskvöld að aftur-
kalla umboð allra fjögurra stjórn-
armannanna sem félagið skipar í
stjórn LIVE og tilnefna nýja í þeirra
stað. Brugðið var á það ráð í kjöl-
far vaxtahækkunar á breytilegum
verðtryggðum húsnæðislánum til
sjóðfélaga.
„Fjármálaeftirlitið tilkynnti
mér rétt fyrir tilkynningu VR að
ég sé enn þá stjórnarformaður Líf-
eyrissjóðs verzlunarmanna,“ segir
Ólafur Reimar Gunnarsson. „Það
eru lögfræðingar sem segja að þetta
sé ólöglegt en lögmaður sjóðsins,
Tómas Möller, segir að þetta sé
trúlega löglegt, að fara með þetta í
gengum fulltrúaráðið. Ég veit ekki
alveg hvernig þetta þróast. Ég hangi
bara í lausu lofti.“
Guðrún Hafsteinsdóttir, varafor-
maður stjórnar LIVE, segist telja að
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, hafi beðið eftir að fá tækifæri
til að reka fulltrúa VR í stjórn líf-
eyrissjóðsins því hann hafi ekki
haft stjórn á þeim.
„Ég leyfi mér að fullyrða að þessi
staða hafi aldrei komið upp í leyfis-
sjóðakerfinu áður,“ segir hún. LIVE
er næststærsti lífeyrissjóður lands-
ins og stýrir 713 milljörðum króna.
„Ragnar Þór vísar oft til lýðræðis-
legra vinnubragða en ég fæ ekki
séð að þetta sé lýðræðislegt af hálfu
stjórnar VR.“
Guðrún veltir því upp hver við-
brögðin í samfélaginu yrðu ef Sam-
tök atvinnulífsins myndu haga sér
með sama hætti. „Það myndi ekki
teljast eðlilegt,“ segir hún.
Guðrún hefur setið í stjórn líf-
eyrissjóða í fimm ár fyrir Samtök
atvinnulífsins, fyrst í tvö ár
í Festu og nú þrjú ár í LIVE.
„Samtök atvinnulífsins hafa
aldrei haft afskipti af mínum
störfum.“
Ragnar Þór tók til sinna
ráða þegar lífeyrissjóðurinn
ákvað að hækka breytilega
vexti verðtr yg gðra sjóð-
félagalána úr 2,06 prósentum
í 2,26 prósent
hinn 24. maí
e n t ve i mu r
dög um áðu r
hafði Seðlabanki Íslands lækkað
stýrivexti um hálft prósentustig.
Vaxtahækkunin á að taka gildi
1. ágúst næstkomandi.
Guðrún segir að því fylgi mikil
ábyrgð að gæta sparifjár fólks og
tryggja því góðan lífeyri þegar
starfsævinni lýkur. „Við tökum þá
ábyrgð alvarlega að ávaxta fé sjóð-
félaga. Stjórn lífeyrissjóðsins hefur
ekki umboð til annars en að taka á
móti iðgjöldum, ávaxta þau á sem
hagkvæmasta máta fyrir sjóðfélaga
og greiða út lífeyri,“ segir hún og
nefnir að sjóðfélagar, þar með talið
ellilífeyrisþegar, eigi ekki að niður-
greiða vexti fyrir þá 3.700 manns
sem tekið hafa lán hjá sjóðnum
með breytilegum vöxtum. „Það er
með öllu ólíðandi,“ segir Guðrún.
Hún segir að afturköllun umboðs
stjórnarmanna frá VR sé aðför að
allri stjórn LIVE en beinist ekki
einungis að fulltrúum VR. Átta
manns sitja í stjórn lífeyrissjóðs-
ins. Atvinnurekendur skipa fjóra
og launþegar fjóra.
„Við höfum unnið vel saman og
verið heiðarleg í okkar störfum. Við
stóðum öll sem eitt að baki þeirri
ákvörðun að hækka vexti í maí,“
segir Guðrún.
Ástæða vaxtahækkunarinnar á
umræddum lánum á sama tíma og
stýrivextir lækkuðu var að kjör lán-
anna voru bundin við úrelt viðmið
og því voru vextirnir í raun orðnir
óeðlilegir.
„Vextirnir miðuðust við breyt-
ingu á ávöxtunarkröfu ákveðins
skuldabréfaf lokks hjá Íbúðalána-
sjóði en það voru engin viðskipti
með skuldabréfaf lokkinn og því
ekki hægt að miða við hann lengur.
Stjórnin hefur lagt mikla vinnu við
að finna ný viðmið. Það eru ekki
duttlungar, eins og Ragnar Þór kýs
að kalla það,“ segir Guðrún.
Að hennar sögn horfir Ragnar
Þór fram hjá því að vextir hafi
lækkað mikið frá árinu 2015. Þeir
hafi lækkað úr 3,99 prósentum í
2,06 prósent. Í því sé fólgin kjara-
bót. Enn fremur hafi fastir verð-
tryggðir vextir verið lækkaðir
á sama tíma og tilkynnt var um
hækkun úr 3,6 prósentum í 3,4
prósent.
Jafnvel þótt Guðrún sé varafor-
maður stjórnar Lífeyrissjóðs verzl-
unarmanna mun hún ekki verða
stjórnarformaður við brotthvarf
Ólafs Reimars.
„Við skiptum með okkur hlut-
verki stjórnarformanns á þriggja
ára fresti. Ég var stjórnarformaður
í þrjú ár og af henti kef lið til laun-
þega í mars. Launþegar skipa
stjórnarformann næstu þrjú ár,“
segir Guðrún.
FME sagði Ólaf enn formann LIVE
Þeim sem kusu á fundinum var lofað stjórnarsæti
„Það hitti bara þannig á að
daginn sem við ákváðum að
hækka vextina þá lækka stýri
vextir Seðlabankans,“ segir
Ólafur Reimar Gunnarsson sem
sat í stjórn VR og var stjórnarfor
maður Lífeyrissjóðs verzlunar
manna.
„Eftir að við hækkuðum
vextina þá hringdi Ragnar [Þór
Ingólfsson] í mig alveg brjálaður
og bað mig um að senda greinar
gerð um af hverju við vorum
að hækka vextina. Með þessu
værum við að skemma fyrir
honum,“ segir Ólafur Reimar,
hann var þá í fríi á Spáni.
Í samráði við stjórn lífeyris
sjóðsins útbjó hann greinargerð
fyrir stjórn VR. „Ég var að reyna
að útskýra ákvörðunina í greinar
gerðinni en fékk þau svör að
þetta útskýrði ekki neitt. Ragnari
lá mikið á að fá skýringar og
boðaði stjórnarfund um hvíta
sunnuna. Þá komust ekki allir
þannig að þessu var frestað fram
á síðasta þriðjudag.“
Ólafur segir að útlit hafi verið
fyrir að þetta yrði venjulegur
stjórnarfundur, útskýringar
hans væru eitt af stóru atrið
unum sem þyrfti að
afgreiða. „Ég útskýrði
þetta, hann sneri bara
út úr því, það skipti
engu máli hvað ég
sagði. Síðan dró
hann fram plagg þar sem um
boðið er tekið af okkur.“
Stjórnin samþykkti tillögu
Ragnars Þórs og var málinu vísað
til trúnaðarráðsins þar sem
umboðið yrði formlega tekið af
þeim og aðrir skipaðir í staðinn.
„Einn stjórnarmaðurinn spurði
hverja Ragnar vildi fá í staðinn,
hann vildi ekki segja það til að
byrja með. Hann sagði svo að
það fólk væri á fundinum. Þá
kemur í ljós að Ragnar var búinn
að hringja í menn og bjóða þeim
þessi sæti í stjórninni. Þannig að
áður en þeir kusu var búið að láta
þá fá gulrót. Ég verð að viður
kenna að ég er mjög sár yfir því
hvernig þetta fór.“
FME rannsakar
brottrekstur VR
Fjármálaeftirlitið hefur til
skoðunar þá ákvörðun VR
að draga til baka umboð
stjórnarmanna í Lífeyrissjóði
verzlunarmanna. „Við munum
vanda til verka við að rannsaka
hvernig málið er vaxið og hvort
farið hafi verið að lögum, til
að mynda hvort það séu rétt
kjörnir stjórnarmenn sem taki
ákvarðanir. Það er mikilvægt
einkum þegar um er að ræða
ríka almannahagsmuni eins
og rekstur lífeyrissjóðs,“ segir
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins.
Hún segir að þeir sem tilnefni
í stjórnir eigi ekki að segja
stjórnarmönnum fyrir verkum.
„Stjórnarmenn eru sjálfstæðir
í vinnubrögðum. Þeir eiga
einungis að starfa eftir eigin
samvisku og þeim lögum sem
eru í gildi,“ segir hún.
Unnur vekur athygli á að
breytingar á stjórn þurfi að fara
eftir formlega réttum leiðum.
Í því samhengi þarf að skoða
og túlka gildandi samþykktir
lífeyrissjóðsins. „Stjórnarmenn
eiga almennt rétt á að sitja
í stjórn séu þeir kosnir með
löglegum hætti á aðalfundi,“
segir hún. Því verður að gera ráð
fyrir að ákveði stjórnarmaður
að víkja úr sæti taki varamaður,
sem þegar hefur verið kosinn á
aðalfundi, sæti hans.
Guðrún Hafsteinsdóttir segir að því fylgi mikil ábyrgð að gæta sparifjár fólks og tryggja því góðan lífeyri þegar starfsævinni lýkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Guðrún Hafsteinsdóttir,
varaformaður stjórnar
Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna, segist telja að
Ragnar Þór Ingólfsson,
formaður VR, hafi beðið
eftir að fá tækifæri til að
reka fulltrúa VR í stjórn
lífeyrissjóðsins því hann
hafði ekki stjórn á þeim.
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson
arib@frettabladid.is
Þá kemur í ljós að
Ragnar var búinn
að hringja í menn og bjóða
þeim þessi sæti í stjórninni.
Þannig að áður en þeir
kusu þá var búið að láta þá
fá gulrót.
Ólafur Reimar
Gunnarsson
Stjórnarmenn
eiga almennt rétt
á að sitja í stjórn séu þeir
kosnir með löglegum
hætti á aðalfundi.
Unnur
Gunnars
dóttir
2 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
2
-0
6
-2
0
1
9
0
9
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
3
-F
9
0
C
2
3
4
3
-F
7
D
0
2
3
4
3
-F
6
9
4
2
3
4
3
-F
5
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K