Fréttablaðið - 22.06.2019, Side 16

Fréttablaðið - 22.06.2019, Side 16
Sonja Bent og Elín Hrund Þorgeirsdóttir rannsaka og fanga angan íslenskra jurta. Þær hafa sett upp eimingarstöð í Álafoss-kvosinni þar sem þær opna lifandi ilmsýningu í haust. Nordic Angan hlaut hæsta styrk- inn úr Hönnunarsjóði á dögunum. Styrkurinn nam tveimur millj- ónum króna og var fyrir verkefnið Ilmbanki íslenskra jurta – lifandi ilmsýning í Álafosskvos. Að baki Nordic Angan eru þær Sonja Bent hönnuður, Elín Hrund Þorgeirsdótt- ir og Jóhannes Bjarni Eðvarðsson. „Rannsóknar verkefni ok kar Elínar, að stofna ilmbanka íslenskra jurta, þar sem við föngum angan íslenskrar náttúru, hefur staðið yfir í nokkur ár,“ segir Sonja frá og segir verkefnið enn fremur munu halda áfram næstu ár. „Okkur langaði til að gera verkefninu skil á einhvern hátt, við hugleiddum að gera heim- ildarmynd eða jafnvel bókverk. Á endanum fannst okkur skemmti- legra að gera úr þessu sýningu, því hún gæti falið í sér svo mikla og áhugaverða fræðslu,“ segir Sonja en í eimingarstöðinni í Álafosskvos- inni eima þær Elín jurtir og láta svo efnagreina olíuna. „Efnagreiningarstofan sem grein- ir olíurnar fyrir okkur er sú fremsta í heimi og getur þess vegna gefið okkur samanburð á efnainnihaldi jurtanna. Þannig getur stofan gefið okkur samanburð á vallhumli frá Búlgaríu og frá Íslandi,“ segir Sonja og segir íslensku jurtirnar koma vel út úr öllum samanburði. „Það er stórmerkilegt hversu vel íslensku jurtirnar koma út. Efna- innihaldið er öðruvísi, efnasam- böndin eru virkari en í öðrum sam- bærilegum jurtum,“ útskýrir hún. „Það eru tvær ástæður sem gætu legið að baki. Ein er sú að íslensk sumur eru mjög stutt og vaxtar- skilyrðin erfiðari, önnur er sú að Ísland er eldfjallaeyja og jarð- vegurinn öðruvísi en víðast annars staðar. Það er nefnilega áhugavert að jurtir frá Japan koma einnig vel út í samanburði,“ segir Sonja. Hún segir ilmbankann hafa undið upp á sig og að verkefnið sé gefandi. „Lyktarskynið tengist sterkt tilfinningum og minni. Sumir finna lykt af blóðbergi og eru svo allt í einu orðnir þriggja ára í leik úti í móa. Lykt af kúmeni minnir á kringlur með mjólk. Við höfum verið með svona farandbanka, lítinn kassa sem rannsóknir okkar hafa ratað í, og leyft fólki að lykta. Við vinnum svo nú að því að hanna sýningu í kringum ilmbankann og Álafosskvosin er skemmtilegur staður til þess,“ segir Sonja en stað- setningin smellpassar fyrir starf- semi Nordic Angan. Gengið er inn í eimingarstöðina við hliðina á fossi og villtar íslenskar jurtir eru allt í kring. „Þetta er viðeigandi húsnæði sem við erum mjög hrifnar af, allt svo fallegt og náttúrulegt. Það er nefnilega erfitt að finna gott verk- smiðjuhúsnæði, það er oft í iðnaðar- hverfum og passar ekki undir fram- leiðslu eins og þessa.“ Sonja og Elín vöktu mikla athygli á lítilli sýningu í versluninni Fischer í Fischersundi á HönnunarMars. Ilmsturtuna, skógarbað fyrir þá sem komast ekki út í skóg. „Það var mjög vel heppnuð lítil sýning og vísir að því sem verður, við vildum hafa þetta lifandi eins og náttúran sjálf er. Rannsóknin mun taka fleiri ár. Við áætlum að opna ilmbank- ann í Álafosskvosinni næsta haust, opnum þá með því sem við höfum rannsakað en munum bæta í bank- ann og sýninguna á hverju ári eftir því sem bætist í rannsóknir okkar.“ Eimingarstöðin er í anda hring- rásarhagkerfisins því tækin eru smíðuð úr gömlum mjólkurkælum og Sonja og Elín segjast vilja virkja litla fossinn til starfseminnar. „Framtíðarplanið hjá okkur er að virkja fossinn til þess að kæla eim- ingarrörin. En í dag notum við renn- andi vatn til þess. Við hugsum þetta alla leið og eimingartækin sem við erum með eru úr gömlum og úrelt- um mjólkurkælum. Ef við hefðum keypt tækin hefðum við þurft að flytja þau frá Kína eða Indlandi. Það hefði kostað mikið og skilið eftir sig stórt kolefnisspor. Við auglýstum í Bændablaðinu og fengum svör frá Kópaskeri og Húsavík. Þetta var mikið mál og það þurfti til dæmis að taka hurðirnar úr fjósunum til að ná kælunum út. En þetta var gert og svo tók Guðbrandur Einarsson, hönnuður og sérfræðingur í málm- suðu, við og við útfærðum tækin í sameiningu,“ segir Sonja. Sonja segist verða vör við byltingu á meðal frumkvöðla, listamanna og hönnuða. „Og barna,“ bætir hún við. „Þetta er fólk sem er með hjartað á réttum stað og hefur hugsunina til að fylgja því eftir. Það hefur orðið mikil vitundarvakning en mest í þessum hópi fólks en minni hjá öðrum,“ segir hún. „Stundum finnst mér gjá á milli þessara hópa en allt færist þetta í rétta átt.“ VIÐ AUGLÝSTUM Í BÆNDA- BLAÐINU OG FENGUM SVÖR FRÁ KÓPASKERI OG HÚSA- VÍK. ÞETTA VAR MIKIÐ MÁL OG ÞAÐ ÞURFTI TIL DÆMIS AÐ TAKA HURÐ- IRNAR ÚR FJÓSUNUM TIL AÐ NÁ KÆLUNUM ÚT. Sonja Bent Náttúran í fyrsta sæti Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Sonja Bent og Elín Hrund Þorgeirsdóttir eru konurnar á bakvið Nordic Angan, fyrirtæki sem stendur fyrir ilmbanka íslenskra jurta. Nýtum það sem er til og göngum ekki á náttúruna „Allt að helmingi matvæla í heiminum er sóað,“ minnir Rakel Garðarsdóttir á. Á næstunni koma á markað nýjar snyrtivörur úr íslensku hráefni í umhverfisvænum umbúðum undir merki hennar Verandi. Hráefnið í snyrtivörurnar fellur til við mat- vælaframleiðslu og landbúnað. Fyrirtækið Verandi framleiðir gæða húð- og hárvörur úr endurnýttum hrá- efnum, með engum neikvæðum áhrifum á umhverfið. Að baki fyrirtækinu standa þær Rakel Garðarsdóttir og Elva Björk Barkar- dóttir. Fyrirtækið varð til í tengslum við baráttu Rakelar en hún hefur starfrækt samtökin Vakandi um nokkurra ára bil í því skyni að auka vitundarvakningu um sóun matvæla. „Við nýtum gæðahráefni sem fellur til úr landbúnaði og matvælaframleiðslu og þannig göngum við ekki á auðlindir að óþörfu,“ segir Rakel frá. Á næstu vikum og mánuðum koma á markað nokkrar vörur úr smiðju Verandi, sápur og serum, maskar, baðvörur, sjampó og sjampóstykki. Rakel og Elva eru meðal annars í samstarfi við hið virta merki Davines um framleiðslu á sjampói. „Við notum kaffikorg, súkkulaði, bygg, gúrku, krækiberjahrat og bjór, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Rakel. „Og erum í vöruþróun með fleiri hráefni, til dæmis gulrætur og kartöflur. Okkar sýn er að stuðla að hringrásarhagkerfi og nýta það sem er til. Við teljum það algjörlega nauðsynlegt, helmingur matvæla sóast í heiminum, vegna offramleiðslu og vegna fram- leiðsluaðferða. Það er galið að svo miklu gæðahráefni sé hent. Við viljum ekki ganga á náttúruna og þessar aðferðir fyrirtækja ganga ekki lengur.“ Rakel og Elva hafa fengið í lið með sér Einar Guðmundsson hönnuð sem hefur hannað nýtt og fallegt útlit á vörurnar sem eru í umhverfisvænum umbúðum. „Við lögðumst í ítarlega rannsóknarvinnu hvað varðar umbúðirnar. Við vorum að nota gler, það er ekki umhverfisvænt hér á landi. Það er ekki endurunnið að ráði hér á landi og það er þungt svo það er dýrt að flytja það. Það sem hentaði best var að nota endur- unnið plast, svo notum við einnig sykurreyr í þær umbúðir þar sem það er hægt,“ segir Rakel og segist verða vör við að framleið- endur séu að vakna til meðvitundar um að þeir verði að skipta út umbúðum. Neyt- endur taki ekki annað í mál auk þess sem lög og reglugerðir séu óðum að breytast. „Umbúðamarkaðurinn er smám saman að vakna, það eru ekki alveg komnar skýrar lausnir en þetta er allt í rétta átt,“ segir Rakel sem segir Verandi munu í framtíðinni bjóða upp á áfyllingar. „Við erum nýsköp- unarfyrirtæki og það er gaman að vera í forystu í þessum efnum. Við erum búnar að vera í tvö ár í vöruþróun og hlökkum til að kynna vörurnar á markað.“ Í nýsköpun, hönnun og listum er náttúran æ oftar sett í fyrsta sæti. Rakel Garðars- dóttir, Elín Hrund og Sonja Bent eiga það sameiginlegt að nýta vel efnivið sem fellur til í sinni sköpun og leggja ríka áherslu á einfaldleika, kraft og fegurð náttúrunnar. Rakel Garðarsdóttir stödd hjá Matís þar sem hún vinnur að því að útbúa umhverfisvænar vörur fyrir Verandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN 2 2 -0 6 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 4 3 -B 8 D C 2 3 4 3 -B 7 A 0 2 3 4 3 -B 6 6 4 2 3 4 3 -B 5 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 2 2 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.