Fréttablaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 54
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Laugardagur
hvar@frettabladid.is
22. JÚNÍ 2019
Hátíðir
Hvað? Götulistahátíð
Hvenær? Stendur laugardag og
sunnudag
Hvar? Hellissandur, Snæfellsbæ
Hvað? Þjórshátíð
Hvenær? 14.00-22.00
Hvar? Flatholt við mynni Þjórsár-
dals
Tónlistarhátíð haldin gegn fyrir-
hugaðri Hvammsvirkjun í sam-
vinnu við Stelpur rokka! Fram
koma: Teitur Magnússon og Æðis-
gengið, GDRN, Gróa, Una Schram,
Jóhanna Elísa, Hellidemba, Beebee
and the Bluebirds, Sigrún, Andy
Svarthol, Gunnar Jónsson Collider.
Ávörp: Steinunn Gunnlaugsdóttir
og Hjalti Hrafn Hafþórsson. Göng-
ur, varningssala. Allir velkomnir.
Hvað? Sumarhátíð Brynju Péturs
Hvenær? 14.00-15.30
Hvar? Ingólfstorg
Hópur street-dansara á aldrinum
11 til 34 ára verður með fjölbreytta
sýningu, hip hop, Dancehall,
popping, waacking, top rock og
fleira. Danspartí á eftir.
Hreyfing
Hvað? Sumarsólstöðu-jóga
Hvenær? 13.00-15.00
Hvar? Bókasafn Kópavogs
Kennarar frá Jógahjartanu stýra
jóga fyrir unga sem aldna á úti-
svæði Menningarhúsanna ef veður
leyfir, annars inni. Mælt er með
að fólk komi með dýnur og teppi.
Ókeypis aðgangur.
Myndlist
Hvað? Nr 3 Umhverfing – opnun
Hvenær? 12.00-14.00
Hvar? Félagsheimilið Breiðablik,
Eyja- og Miklaholtshreppi
Hressing, myndlist, tónlist, kynn-
ing á sýningu sem 70 listamenn
eiga verk á um allt Snæfellsnes.
Þar á meðal eru tveir með nafninu
Ragnar Kjartansson. Þeir og þrjár
konur í fjölskyldu þeirra eiga verk
í kirkjunni á Hellnum og víðar.
Tónlist
Hvað? Upphafstónleikar Alþjóðlegs
orgelsumars
Hvenær? 12.00-12.30
Hvar? Hallgrímskirkja, Skólavörðu-
holti
Björn Steinar Sólbergsson,
organisti kirkjunnar, f lytur verk
eftir Johann Sebastian Bach og
Alexandre Guilmant. Miðaverð
2.500 kr.
Hvað? Sumarjazz utandyra
Hvenær? 15.00-17.00
Hvar? Jómfrúin, Lækjargötu 4, Rvk
Fegðinin Erla og Stefán S. Stefáns-
son flytja tónlist föðurins – nýja
og eldri. Standardar gætu flotið
með ef vel viðrar. Erla syngur
og Stefán er á saxófón, Vignir
Þór Stefánsson á píanó, Gunnar
Hrafnsson á kontrabassa og Einar
Scheving á trommur. Aðgangur
ókeypis.
Hvað? Fiðrildi og fiðurfé – Reykjavík
Midsummer Music
Hvenær? 20.00-22.30
Hvar? Norðurljós, Hörpu
Listafólk sem fram kemur: Ana-
hit Kurtikyan fiðla, Ilya Grin-
golts fiðla, Yura Lee víóla, Jakob
Koranyi selló, Jacek Karwan bassi,
Mark Simpson klarínett, Leonard
Elschenbroich selló, Emilía Rós
Sigfúsdóttir f lauta, Katia Labèque
píanó, Marielle Labèque píanó,
Steef van Oosterhout slagverk og
Víkingur Heiðar Ólafsson píanó.
Höfundar og verk: K. Saariaho:
Sept Papillons, B. Sørensen:
Rosenbad: Papillons, M. Ravel:
Gæsa mömmusvíta, C. Saint-Saëns:
Karnival dýranna.
Hvað? Verk og Spuni – Reykjavík
Midsummer Music
Hvenær? 23.15
Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2
Hinn 85 ára raftónlistarmeistari
Roedelius býður upp á óvissuferð.
Með honum leika Yura Lee og
Víkingur Heiðar.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
hvar@frettabladid.is
23. JÚNÍ 2019
Orðsins list
Hvað? Leiklestur
Hvenær? 15.00
Hvar? Hlaðan, Kvoslæk í Fljótshlíð
Leikararnir Brynhildur Guðjóns-
dóttir, Arnar Jónsson, Ragnheiður
Steindórsdóttir og Þór Tulinius
flytja valda kafla úr þýðingu Rutar
Ingólfsdóttur á franska meistara-
verkinu Stílæfingar eftir Raymond
Queneau.
Hreyfing
Hvað? Jónsmessujóga
Hvenær? 14.00
Hvar? Árbæjarsafn
Þorgerður Sveinsdóttir, jógakenn-
ari frá Jógasetrinu, leiðir einfalt
og kjarnandi fjölskyldujóga. Lögð
verður áhersla á hreyfingu, leik,
öndunaræfingar, söng og hug-
leiðslu og í lokin róandi Gong-
slökun.
Hvað? Jónsmessuganga um Ell-
iðaárdal
Hvenær? 22.30
Hvar? Árbæjarsafn
Borgarsögusafn býður upp á
menningar- og náttúrugöngu.
Stefán Pálsson sagnfræðingur
leiðir hana.
Tónleikar
Hvað? Alþjóðlegt orgelsumar
Hvenær? 17.00-18.00
Hvar? Hallgrímskirkja, Skólavörðu-
holti
Björn Steinar Sólbergsson, organ-
isti kirkjunnar, leikur verk eftir
Louis Viérne, Jón Leifs, Hildigunni
Rúnarsdóttur og Sveinbjörn Svein-
björnsson. Miðaverð 3.000 kr.
Hvað? Pikknikk tónleikar
Hvenær? 15.00
Hvar? Gróðurhús Norræna hússins
A Band On Stage leikur róleg
og dramatísk lög eftir Leonard
Cohen, Tom Waits, Nick Cave,
Cornelis Vreeswijk o.fl. Söngkona
sveitarinnar, Sara Blandon, var
valin Bjartasta vonin í djassflokki
í Íslensku tónlistarverðlaununum
árið 2016. Aðgangur er ókeypis.
Hvað? Stofutónleikar
Hvenær? 16.00
Hvar? Gljúfrasteinn, Mosfellsdal
Ragnheiður Gröndal kemur fram
ásamt Guðmundi Péturssyni
gítarleikara og flytja ýmislegt efni
frá ferli Ragnheiðar, auk laga af
nýjustu plötu hennar, Töfrabörn.
Aðangur: 2.500 krónur en ókeypis
er fyrir börn á leikskólaaldri.
Hvað? Lokatónleikar Reykjavík
Midsummer Music
Hvenær? 20.00
Hvar? Eldborg, Harpa
Tónleikarnir spanna vítt tónlistar-
legt litróf og nýta listræna krafta
hljóðfæraleikaranna sem eru: Ilya
Gringolts, fiðla, Anahit Kurtikyan,
fiðla Yura Lee, víóla, Leonard Elsc-
henbroich, selló, Mark Simpson,
klarinett, Jakob Koranyi, selló,
Jacek Karwon, bassi, Katia Labèque,
píanó, Marielle Labèque, píanó,
Víkingur Heiðar Ólafsson, píanó.
Sýningar
Hvað? Leiðsögn um sýninguna
Hjúkrun í 100 ár
Hvenær? 13.00
Hvar? Árbæjarsafn
Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir
sagnfræðingur segir frá því sem
ber fyrir augu.
Danshópur barna á Hellissandi ásamt Jordine Cornish, danshöfundi og stjórnanda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BÆKUR
Þakkarskuld
Höfundur: Golnaz Hashemzadeh
Bonde
Þýðing: Páll Valsson
Blaðsíður: 222
Útgefandi: Bjartur
Þakkarskuld er saga írönsku flótta-
konunnar Nahid sem greinist með
krabbamein sem að öllum líkindum
mun draga hana til dauða. Sagan er
sögð frá sjónarhóli Nahid þar sem
hún glímir við erfiðar minningar
fortíðarinnar en þær eru oft settar
í samhengi við erfiðleika Nahid í
samskiptum við fólkið í kringum
sig, sérstaklega dóttur sína.
Nahid lifir hamingjusömu lífi
ásamt móður sinni og systrum í
Íran. Hún kemst inn í læknisfræði
og er sannkölluð vonarstjarna fjöl-
skyldunnar. Í náminu verður hún
ástfangin af jafnaldra sínum Masood
en saman ganga byltingarsinnaðir
unglingarnir í uppreisnarsellu; þau
vilja ekki búa í íslömsku einræðis-
ríki. Fljótt missa þau þó stjórn á
aðstæðum því byltingin felst ekki
lengi í dreifingu bæklinga í skjóli
nætur; það hefur brotist út borgara-
styrjöld. Þegar dóttir þeirra fæðist
verður enn erfiðara að lifa í felum
í gluggalausum kjallaraíbúðum og
ákveður parið að yfirgefa heima-
land sitt í leit að betra lífi. Frásagnir
höfundar af hræðilegum atburð-
um byltingarinnar, en ekki síður
aðstöðu og lífi flóttafólks í Svíþjóð,
eru ljóslifandi og snerta lesandann
djúpt. Sorgin, missir-
inn og söknuðurinn
lifa með unga parinu
allt þess líf og verður
a ð a l p e r s ó nu n n i
tíðrætt um hvernig
tráma erfist óhjá-
kvæmilega niður
k y n s l ó ð i r n a r .
Þ a n n ig ver ðu r
dóttir hennar allt-
af lituð af erfiðu
lífi foreldra sinna
og hví ætti hún
ekki að vera það?
Hvers vegna ætti
hún að fá að lifa
eðlilegu lífi þegar
Nahid þurfti að
horfa upp á vini
sína og vanda-
menn deyja fyrir
framan augun á sér?
Það eru spurningar
á borð við þessa sem
Nahid spyr sig reglu-
lega í gegnum bókina.
Í f y rstu verðu r
manni bylt við að
lesa þessar grimmu og
sjálfselsku hugleiðing-
ar móður í garð dóttur
sinnar en eftir því sem
líður á bókina fara þær
á einhvern undarlegan
hátt að eiga sífellt meiri
rétt á sér.
Höfundur bókarinn-
ar, Bonde, fjallar þarna
um atburði sem hún
þekkir af eigin raun.
Bonde fæddist í Íran árið
1983 en flúði til Svíþjóðar með for-
eldrum sínum ung að aldri. Stíll frá-
sagnarinnar er knappur og hnitmið-
aður sem gerir að verkum að bókin
er afar f ljótlesin. Gagnorð hrein-
skilni aðalpersónunnar gerir oft að
verkum að maður missir samúð með
henni. Harmþrungnar frásagnir úr
styrjöldinni í Íran, fullar af sorg og
missi, vekja þó fljótt aftur skilning
lesandans á hörku Nahid gagnvart
heiminum. Höfundi tekst þó full-
komlega að sveigja fram hjá allri
væmni og er frásögnin þess í stað
beinskeytt og hreinskilin.
Að lokum má hrósa vel heppnaðri
þýðingu Páls Valssonar.
Óttar Kolbeinsson Proppé
NIÐURSTAÐA: Vel heppnuð saga þar
sem frásögnin er áberandi beinskeytt..
Beinskeytt saga um sorg
2 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
2
-0
6
-2
0
1
9
0
9
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
4
3
-E
5
4
C
2
3
4
3
-E
4
1
0
2
3
4
3
-E
2
D
4
2
3
4
3
-E
1
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K