Fréttablaðið - 26.06.2019, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 26.06.2019, Blaðsíða 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Boris ætti betur heima í raunveru­ leikaþætti en á breska þinginu. Sennilega er það mergur málsins. Krafa BHM er að engin/n sem lokið hefur bakka­ lárgráðu hafi undir 500 þúsund krónum í grunnlaun á mánuði. Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is EKKERT BRUDL 1kg Tómatar Íslenskir, 1 kg kr./1 kg498 Júní er tími brautskráninganna. Þá fyllast samfélags-miðlarnir af myndum af prúðbúnu og brosleitu fólki sem fagnar því að hafa náð þeim merkilega áfanga í lífinu að ljúka háskólanámi. Þessar myndir einkennast af mikilli gleði sem smitar út frá sér. Það er bjartsýni og vor í þessum myndum. Allir sjö háskólar landsins brautskráðu nemendur nú í júní við hátíðlegar athafnir, bæði úr grunnnámi og framhaldsnámi. Samtals tóku meira en 3.300 manns við prófskírteinum að þessu sinni. Menntun þessa stóra hóps er fjölbreytt og góð. Reikna má með því að flest í þessum hópi fari nú að leita sér að föstu starfi. Nú er það vinnumarkaðarins að gefa þeim tækifæri. Sú góða vísa verður aldrei of oft kveðin að menntun og þekking eru lykillinn að framþróun og góðum lífskjörum í landinu. Nýútskrifað háskólafólk sem nú sækir um störf hjá fyrirtækjum og stofnunum landsins býr yfir verðmætri þekkingu sem mikilvægt er að nýtist samfélaginu. Það má heldur ekki gleymast að til að einstaklingar séu reiðubúnir að leggja á sig erfitt og dýrt nám þarf það að skila þeim sanngjörnum fjárhagslegum ávinningi. Meginkrafa BHM er og hefur lengi verið sú að menntun sé metin til launa. Því miður vantar enn töluvert upp á að svo sé hér á landi. Sem dæmi má nefna að grunnlaun margra sem lokið hafa fyrstu háskólagráðu eru langt undir því sem eðlilegt og sann- gjarnt má teljast. Krafa BHM er að engin/n sem lokið hefur bakkalár gráðu hafi undir 500 þúsund krónum í grunnlaun á mánuði. Margir háskólanemar taka námslán til að fjármagna nám sitt. Afborganir af námslánum reynast mörgum þung byrði, einkum yngri greiðendum sem eru að koma sér þaki yfir höfuðið og stofna fjölskyldu. Í við- ræðum við stjórnvöld leggur BHM áherslu á að dregið verði úr endurgreiðslubyrði og að komið verði til móts við greiðendur með ýmsum aðgerðum. BHM óskar öllu nýútskrifuðu háskólafólki til hamingju með áfangann. Til hamingju með háskólaprófið! Þórunn Sveinbjarnar- dóttir formaður BHM Það er engin leið að sjá það fyrir hvað ríkis-stjórn sem Boris Johnson kemur til með að leiða myndi gera, vegna þess að sá sem hyggst taka við stjórnartaumunum hefur ekki enn komist svo langt að velta því einu sinni fyrir sér sjálfur. Svo komst Max Hastings, fyrrverandi ritstjóri þekktra dagblaða í Bretlandi, að orði í pistli í The Guardian í gær. Hastings var yfirmaður Johnsons og vandar fyrrverandi undirmanni sínum ekki kveðjurnar í harðorðri grein þar sem hann kallar Boris veikgeðja og popúlískan ólátabelg. Nú eru tvær vikur þar til kjörseðlar berast flokks- mönnum og næsti forsætisráðherra verður kynntur þann 22. júlí. Johnson er enn líklegasti arftaki Theresu May. Hann hefur þó ekki átt sjö dagana sæla eftir að fjöl- miðlar komust á snoðir um að lögregla hafi verið kölluð að heimili hans og kærustu vegna háværs rifrildis. Fyrir það hefur hann ekki viljað svara opinberlega. Kappræður tveggja sigurstranglegustu frambjóðend- anna í leiðtogakjörinu áttu til að mynda að fara fram á Sky News í gær en ekki varð af því. Boris hafnaði því að taka þátt, þrátt fyrir áeggjan mótframbjóðandans sem biðlaði til Johnsons að „láta af heigulshætti sínum“ í grein í fyrradag. Allt kom fyrir ekki. Nýja forsætisráðherrans bíður allt annað en öfunds- vert hlutverk. Hann mun þurfa að vinna í hinu sama þingi og hefur hingað til engu hleypt í gegn. Mögu- leikarnir, fyrir og eftir Theresu May, eru þeir sömu: samningur um útgöngu, önnur atkvæðagreiðsla eða útganga án samnings – svokallað hart Brexit. Johnson lét hafa eftir sér í gær að útganga án samnings væri versta niðurstaðan. Með öðrum orðum hefur ekkert breyst í vonlausri stöðu þess sem þarf að leiða Bretland út úr Evrópusambandinu. Í fyrrnefndum pistli Hastings segir hann Íhaldsflokk- inn bera þunga sök í því að hafa hleypt óútreiknan- legum fúskara allt of nálægt Downing-stræti og fyrir það muni flokkurinn líða í næstu kosningum. Boris ætti betur heima í raunveruleikaþætti en á breska þinginu. Sennilega er það mergur málsins. Ábyrgðin er nefnilega hans. Það voru Boris og félagar hans sem lugu öðru hverju orði í aðdraganda þjóðar- atkvæðagreiðslunnar 2016. Kannski er mátulegt á hann nú að taka við stólnum og um leið ábyrgðinni á upp- diktaðri draumsýn sem hann og félagar hans héldu að breskum almenningi. Sennilega verður þetta enn annað dæmi þess að popúlisma gengur til skamms tíma að koma mönnum að kjötkötlunum. Meinið er að þegar þarf að fara að huga að efndum er staðan allt að því vonlaus. Bretar eru þekktir fyrir skopskyn sitt – nú spyrja sumir hversu lengi þeir muni hafa húmor fyrir brandar- anum sem er Boris Kardashian. Boris Kardashian Brattur hrakhóll Vigdís Hauksdóttir er í eigin sérflokki hvað varðar úthald, einurð og festu í pólitíska hringnum. Blýþung höggin lætur hún dynja á andstæðingunum, oft af meira kappi en forsjá enda tekst henni jafnan að vanka þá með vindhöggunum einum. Höggþunginn minnir þannig helst á sjálfan Muhammad Ali sem dansaði eins og fiðrildi og stakk eins og geitungur. Þótt Vigdísi verði oft fótaskortur á tungunni og sé ekki alltaf með réttan hrakhól á hraðbergi tekst henni þó að bíta eins og lúsmý þannig að þeir sem lenda í henni engjast dögum saman í sturl- uðum andlegum kláða. Lose me tapa ekki Vigdís varð undir í orrustu lang- dregins stríðs við vindmyllur borgarmeirihlutans í gær þegar kerfið og kjörnefnd sýslumanns vísaði kæru hennar með kröfu um ógildingu borgarstjórnar- kosninganna frá. Vigdís veifaði þó ekki hvítu flaggi heldur tilkynnti að lýðræðið í landinu hafi orðið fyrir gríðarlegu áfalli þegar hún var þarna felld með tæknilegum og heldur ómerki- legum hælkrók. Óbuguð lét hún kné fylgja kviði á Facebook þar sem hún komst að þeirri niðurstöðu að kosningasvindl sé heimilt svo lengi sem það kemst ekki upp fyrr en eftir sjö daga. Guðs Mildison að borgarstjóri er læknir. toti@frettabladid.is 2 6 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 6 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :1 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 4 9 -5 E 5 0 2 3 4 9 -5 D 1 4 2 3 4 9 -5 B D 8 2 3 4 9 -5 A 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 2 5 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.