Fréttablaðið - 26.06.2019, Side 24
Kristófer Júlíus Leifsson er einn af stofnendum Eldum rétt sem býður upp á þá þjónustu að senda eða afhenda hrá efni
og upp skriftir að hollum mál tíðum
fyrir heim il ið.
Hvernig er morgunrútínan þín?
Dagurinn byrjar yfirleitt við
fagra tóna yngsta barnsins sem vill
meina að kominn sé dagur, yfirleitt
aðeins fyrr en við foreldrarnir vilj
um meina. Mjög skilvirk vekjara
klukka í 90% skiptanna, hins vegar
á fullkomlega handahófskenndan
máta. Ég byrja á að gefa börnunum
hafragraut og gera þau klár fyrir
leikskólann. Sjálfur byrja ég svo
daginn yfirleitt á epli með hnetu
smjöri, kaldri sturtu og fer svo með
krakkana í leikskólann eða fer beint
í vinnuna.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Ég veit fátt skemmtilegra en að
spila góðan bumbubolta á miðviku
dögum og verð í góðu skapi allan
næsta dag ef ég skora nokkur mörk.
Ég hef líka mjög gaman af því að fara
á snjóbretti og eiga góðar stundir
með fjölskyldunni.
Það sem kemur mér í gott jafn
vægi og lætur mér líða vel er þegar
ég næ að stunda reglulega öndunar
æfingar, hugleiðslu og kaldar sturt
ur.
Hvar sérðu þig eftir tíu ár?
Ég verð þá orðinn 42 ára fimm
barna faðir og elsta barnið mitt að
byrja sitt síðasta grunnskólaár. Ég
sé fyrir mér að vera kominn í kvöld
skóla eða jafnvel farinn að halda
einhver námskeið sjálfur. Ég hef
virkilega gaman af því að tileinka
mér nýja þekkingu. Mig langar svo
gjarnan að taka þátt í uppbyggingu
á öðru fyrirtæki sem getur teygt sig
inn á erlenda markaði líka.
Hvaða stjórnunarhætti hefurðu
tileinkað þér?
Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt á
því sviði. Eitt af lykilatriðunum sem
margir reynsluboltar tala um er að
gera starfsmenn ábyrga fyrir sínum
verkefnum. Í upphafi var maður
ábyrgur fyrir svo mörgu og oft erfitt
að sleppa takinu. En þetta ráð hefur
reynst gríðarlega vel. Því meiri
ábyrgð sem starfsmenn tileinka sér
í bland við mikinn metnað er upp
skrift að flottri velgengnissögu.
Hverjar eru þínar fyrirmyndir?
Ég er með langan lista en ef ég yrði
að nefna þrjá væru það Wim Hoff,
Satya Nadella og Elon Musk. Wim
Hoff hefur hjálpað mér að lifa meira
í núinu og fá meiri þrótt. Satya
Nadella hefur sýnt fram á að með
því að opna dyrnar fyrir nánara
samstarfi við samkeppnisaðila sína
líður öllum betur, bæði viðskipta
vinum og fyrirtækinu. Elon Musk
hefur sýnt fram á að hið ómögulega
sé hægt með trúnni, rétta teyminu
og viljastyrk.
Hver er ástæðan að baki miklum
vexti Eldum rétt?
Fyrirmyndarþjónusta – ef eitt
hvað fer úrskeiðis þá reynum við
alltaf að bæta fyrir það eins vel og
hægt er hverju sinni. Við leggjum
okkur mikið fram við að bjóða upp
á bragðgóðan mat úr sem ferskustu
hráefnum hverju sinni. Viðskipta
vinir okkar hafa líka verið dug
legir að mæla með okkur sem hefur
hjálpað okkur mikið.
Hvaða tækifæri sérðu fram undan
í þessari grein?
Við sjáum fram á að geta boðið
upp á meiri sveigjanleika og fjöl
breyttara úrval. Það verður sífellt
brýnni þörf fyrir umhverfisvænni
kosti. Nýlegar rannsóknir hafa
sýnt fram á að þegar öll virðis
keðjan er skoðuð þá sé umhverfis
vænni kostur að kaupa tilbúna
matarpakka heldur en að versla í
matvörubúð þrátt fyrir þá auknu
umbúðanotkun sem felst í matar
pökkunum. Helsti ávinningurinn
felst í pöntunarfrestinum svo hægt
sé að panta inn og framleiða allt í
réttu magni. Á tímum sem allt þarf
að gerast strax teljum við pöntunar
frestinn vera lykilinn að minni sóun
og minnkun á fótspori neytenda.
Hverjar eru helstu áskoranirnar?
Það er mikil áskorun að vera á
eyju úti í miðju Atlantshafi og bjóða
upp á fersk matvæli. Sem betur fer
hefur okkur tekist að mynda sterk
og góð tengsl við okkar birgja sem
gerir okkur þetta kleift. Næsta
áskorun er að hjálpa viðskipta
vinum okkar að muna eftir því að
panta í tæka tíð sem er áskorun
fyrir alla. Við bindum vonir við að
appið okkar, sem kemur út á næstu
dögum, muni hjálpa viðskipta
vinum okkar mikið.
Pöntunarfrestur lykill að minni sóun
Kristófer segir að það sé umhverfisvænni kostur að kaupa tilbúna matarpakka heldur en að versla í matvörubúð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nám:
Iðnaðarverkfræði B.Sc.
Störf:
Framkvæmdastjóri og annar stofn-
enda Eldum rétt
Fjölskylduhagir:
Hinn helmingurinn er Hrafnhildur
Hermannsdóttir og saman eigum
við Áróru Aldísi, 4 ára, og Albert
Inga, 1 árs.
Svipmynd
Kristófer Júlíus Leifsson
Senn líður að því að lykilstjórnendur kínverska netverslunarrisans Alibaba dragi sig í hlé.
Jack Ma, sem stofnaði fyrirtækið
fyrir 20 árum, mun víkja úr sæti
stjórnarformanns í september og
framkvæmdastjórinn, Joe Tsai, ber
ábyrgð á færri verkefnum en áður.
Í síðustu viku, minna en ári eftir
að Ma upplýsti að hann hygðist láta
af störfum, tilkynnti fyrirtækið að
fjármálastjórinn Maggie Wu myndi
taka að sér stefnumarkandi fjárfest
ingar og starfa við hlið Tsai.
Ma og Tsai eru óhjákvæmilega
alltaf tengdir við Alibaba sem metið
er á yfir 400 milljarða dollara. Sagt
er að Tsai sé eins konar hliðarsjálf
við Ma sem er óútreiknanlegur. Tsai
er fágaður, lærði lögfræði í Yale og
getur rætt við háa sem lága, segir í
frétt Financial Times.
Það hefur verið rætt innan veggja
Alibaba frá árinu 2002 að Ma myndi
stíga til hliða því fyrirtækið óx svo
hratt. Sú vinna hefur leitt til þess að
fjöldi starfsmanna getur tekið að sér
mikla ábyrgð.
Yngri stjórnendur hafa að undan
förnu verið ráðnir í æðstu stjórn
endastöður samhliða breyttu
landslagi í rekstri. Dregið hefur
úr hagvexti í Kína, færri nýir eru
að byrja á netinu en áður og sam
keppnin fer stigvaxandi.
Stjórnvöld gefa enn fremur tækni
risum ekki jafn lausan taum og áður.
Tollastríð Kína og Bandaríkjanna
hefur haft það í för með sér að virðis
keðjur fyrirtækja eru ekki jafn fýsi
legar og áður. Tollastríðið hefur jafn
framt haft slæm áhrif á markað með
kaup og sölu á fyrirtækjum.
Daniel Zhang, forstjóri Alibaba
og verðandi stjórnarformaður, og
Wu, sem starfað hefur fyrir tækni
risann frá árinu 2007, fá helstu
áskoranir í rekstrinum í fangið. Þau
eru endurskoðendur og búist er við
að þau muni stýra fyrirtækinu með
hefðbundnari hætti en áður hefur
verið. Reiknað er með að þau muni
beina sjónum sínum í meiri mæli að
heimamarkaði sem rekja má meðal
annars til tollastríðsins.
Sagt er að það sé rökrétt að Wu
taki við fjárfestingunum því ekki sé
nóg að eignast hluti í fyrirtækjum
heldur þurfi að tengja þau við Ali
babavistkerfið. Þar með er ekki
sagt, að verið sé að búa hana undir
að verða forstjóri. Hennar helstu
styrkleikar felast í fjármálastjórn,
segir í fréttinni.
Að því sögðu hefur hún tekið yfir
mikilvægan hlekk í starfsemi Ali
baba. Tæknirisinn hefur nefnilega
fjárfest í um 350 fyrirtækjum. Ali
baba er engu að síður hálfdrætting
ur á við keppinautinn Tencent hvað
þetta varðar. Hjá Alibaba starfa
um 100 manns við fjárfestingar og
sviðið skilaði um 30 prósentum af
hagnaði fyrirtækisins í fyrra.
Jack Clark, höfundur bókarinnar
Alibaba: The House That Jack Ma
built, segir að ólíklegt sé að tví
eykið muni eitt setja saman stórar
áætlanir um fjárfestingar alþjóð
lega. Nefndir muni taka það að sér
enda sé fyrirtækið að verða æ mið
stýrðara.
Innanbúðarmenn eru brattari
hvað varðar nýjan kaf la í rekstri
Alibaba. Þeir rifja upp að áður hafi
verið sagt að enginn gæti komið í
stað Steve Jobs, forstjóra Apple, en
Tim Cook og hans teymi hafi tekið
við keflinu og staðið sig glimrandi
vel.
Aðrir benda á að Jack Ma hafi
enn mikið að segja um hverjir sitja í
stjórn netverslunarrisans.
helgivifill@frettabladid.is
Lykilstjórnendur kínverska risans Alibaba draga sig brátt í hlé
Jack Ma, stofnandi Alibaba, er ólíkindatól. Hér bregður hann sér í gervi Michaels Jackson. NORDICPHOTOS/GETTY
2 6 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN
2
6
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:1
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
4
9
-8
0
E
0
2
3
4
9
-7
F
A
4
2
3
4
9
-7
E
6
8
2
3
4
9
-7
D
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
2
5
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K