Fréttablaðið - 26.06.2019, Side 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
MJÓLKURBIKAR KARLA
8 LIÐA ÚRSLIT
MIÐVIKUDAG 17:50
FIMMTUDAG 19:05
FIMMTUDAG 18:55
KAUPTU STAKAN LEIK:
FIMMTUDAG 19:15
KAPLAKRIKAVÖLLUR
Tryggðu þér áskrift
Job.is
GLÆNÝ OG
FERSK STÖRF
Í HVERRI VIKU
Þú finnur draumastarfið á
Hljómsveitin Vök hefur átt góðu gengi að fagna fyrir utan land-steinana síðustu árin og fylgdi nýj-
ustu breiðskífu sinni, In the Dark,
eftir með stórum Evróputúr.
„Við spiluðum í byrjun júní í
kjallaranum á Hard Rock. Það voru
fyrstu tónleikarnir okkar hérna á
Íslandi frá því í byrjun mars, en þá
vorum við með útgáfutónleika í
Iðnó og á Græna hattinum,“ segir
Margrét, söngkona Vakar.
Aðdáendur á öllum aldri
Hljómsveitin er skipuð þeim Mar-
gréti Rán, Andra Má og Einari. Þau
tvö fyrrnefndu stofnuðu sveitina
til þess að taka þátt í Músíktil-
raunum 2013, þar sem þau sigruðu.
Nokkur af myndböndum sveitar-
innar hafa verið spiluð í um og yfir
milljón skipti á myndbandamiðl-
inum YouTube.
Vök var valin til að hita upp
fyrir eina stærstu sveit níunda
áratugarins, Duran Duran, og
söngkonuna Patti Smith á Secret
Solstice-tóleikahátíðinni. Margrét
segir það ekki hafa komið henni
sérstaklega að óvart að þau skyldu
hafa verið valin til að hita upp fyrir
Smith og Duran Duran.
„Mér fannst það alveg ganga
upp, eða ég sé í það minnsta hvern-
ig tónlistin okkar passar ágætlega
saman við þeirra. Við höfum líka
tekið eftir því sérstaklega að við
eigum breiðan hóp aðdáenda,
bæði þegar það kemur að aldri og
týpum. Ég myndi segja að megnið
af okkar hlustendum sé á aldrinum
25-60 ára. “
Væta á Vök
Tónleikarnir með Patti Smith voru
um síðastliðna helgi.
„Ég verð bara að segja eins og er
að ég veit ekki nákvæmlega samt
hvernig það kom til að við vorum
valin til að spila á undan henni.
Hvort hún eða hennar teymi hafi
haft einhverja aðkomu að því, um
það get ég lítið sagt,“ svarar Mar-
grét glaðbeitt, en þegar blaðamað-
ur náði tali af henni var hún mætt
ásamt restinni af hljómsveitinni að
stilla upp hljóðfærunum í Laugar-
dalshöll.
Margrét segir að það hafi gengið
ágætlega á Secret Solstice en kald-
hæðni örlaganna var sú að nánast
eini tíminn þar sem eitthvað rigndi
yfir hátíðina var þegar hljómsveit
nefnd Vök steig á svið.
„Það var búin að vera sól alla
helgina en svo einmitt þegar við
stígum á svið þá byrjar að rigna,
sem var ákveðinn skellur,“ segir
Margrét hlæjandi.
Náði að kasta kveðju á Smith
Sveitin spilaði á sunnudeginum
og því eflaust komin smá þreyta í
áhorfendur.
„Það rættist samt úr mæting-
unni, þannig að þetta var eins gott
og það gat verið í ljósi aðstæðna.“
Margrét heldur upp á Smith og
hefur lesið megnið af bókunum
sem hún hefur gefið út.
„Já, ég myndi segja að ég væri
aðdáandi. Við náðum samt ekki
að hitta hana neitt þannig, en ég
þakkaði henni fyrir tónleikana
þegar ég stóð í stutta stund við
hliðina á henni. Hvort hún hafi
áttað sig á að ég væri í hljómsveit-
inni sem hitaði upp fyrir hana er ég
ekki viss um.“
Hljómsveitin mun nú taka það
aðeins rólegar og spila meira hér
heima á næstu misserum.
„Við höfum mest verið að spila
úti undanfarið og eiginlega á þrot-
lausu tónleikaferðalagi undan-
farin ár. Þess vegna finnst okkur
öllum alveg frábært að vera að
spila mest heima núna á næstunni,
ef undan er skilið G! Festival í Fær-
eyjum, en þangað er stutt að fara.
Við munum svo spila á Bræðslunni
og svo á Í hjarta Hafnarfjarðar,“
segir Margrét að lokum.
steingerdur@frettabladid.is
Hljómsveitin
hitaði upp fyrir
Duran Duran í
Laugardalshöll
í gærkvöldi.
MYND/SIGGA ELLA
Rigndi á Vök
Hljómsveitin
Vök hitaði upp
fyrir Patti Smith og
Duran Duran. Það
kom þeim ekki á
óvart að vera valin
til verksins þar sem
þau eiga aðdáendur
á öllum aldri og eru
ólíkar týpur.
ÞAÐ VAR BÚIN AÐ
VERA SÓL ALLA
HELGINA EN SVO EINMITT
ÞEGAR VIÐ STÍGUM Á SVIÐ ÞÁ
BYRJAR AÐ RIGNA, SEM VAR
ÁKVEÐINN SKELLUR.
2 6 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:1
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
4
9
-5
E
5
0
2
3
4
9
-5
D
1
4
2
3
4
9
-5
B
D
8
2
3
4
9
-5
A
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
5
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K