Skagablaðið - 15.03.1985, Qupperneq 6
Hennes með
glasilega
vígsluveislu
vel á annai hundrað gestir saman komnir
Vel á annað hundrað manns
voru samankomin við vígslu-
veislu hins nýja húsnæðis Henson
(Hennes) hér á Akranesi sl. föstu-
dag. Þáðu menn þar veitingar og
skoðuðu salarkynni en að auki
var boðið upp á vel skipulagða
tískusýningu. Bar öllum saman
um að sérlega vel hefði tekist til
við hönnun hússins.
Á meðal gestanna voru margir
vinir og kunningjar Halldórs Ein-
arssonar (sem aldrei er kallaður
annað en Henson) úr Reykjavík,
jafnt Valsmenn sem viðskipta-
aðilar. Á meðal fyrirmanna héð-
an má nefna bæjarstjórnarfull-
trúa, bankastjóra, bæjarstjóra og
marga aðra.
Sjálf vígsluveislan hófst um
klukkan 17 á föstudag og var fólk
þá þegar tekið að streyma að. Um
kl. 17.30 kom síðan full rúta af
fólki úr Reykjavík og þegar
Skagablaðið hvarf af vettvangi
laust eftir kl. 18 var ekkert far-
arsnið á fólki enda fjörið rétt að
byrja.
Skagablaðið ræddi stuttlega við
einn gestanna úr Reykjavík, sem
reyndar rekur verslunina Músík
& sport í Hafnarfirði auk þess að
vera móðir hins landskunna hand-
knattleiksmanns, Kristjáns Ara-
sonar, og var hún þeirrar skoð-
unar að það væri hreint með
ólíkindum hversu ör uppbygg-
ingin hefði verið hjá Henson. „Eg
man eftir því, að þegar við
Peir kunnu vel að meta veitingarnar, frá vinstri: Guðjón Þórðarson,
Sigtryggur Sigtryggsson, Guðjón Guðmundsson, Björn Tryggvason og
Hörður Jóhannsson.
Henson, Halldór Einarsson og Sigurður Lárusson, framan við málverk ef knattspyrnuleik ÍA og Vals, sem
Halldór málaði sjálfur.
i
skiptum fyrst við hann var hann
með aðsetur í litlu þakherbergi
við Lækjargötuna. Mér er til efs
að mörg fyrirtæki geti státað af
jafn hraðri uppbyggingu,“ bætti
viðmælandi blaðsins við.
Eins og vænta mátti var glatt á
hjalla á þessum merkisdegi eins
og meðfylgjandi myndir bera
væntanlega með sér. Rétt er að
taka það fram, að málverkið á
milli Halldórs og Sigurðar Lár-
ussonar á stóru myndinni hér að
ofan er málað af honum (Hall-
dóri) sjálfum sem og tvö önnur
málverk í húsinu. Honum er því
bersýnilega fleira til lista lagt en
að reka saumastofur með glæsi-
brag. Skagablaðið óskar Halldóri
til hamingju með nýja húsnæðið
og árnar honum velfarnaðar í
framtíðinni.
Svona á að sauma (SAUMA).
Hvert er álit stjam-
anna á Skagablaðinu?
— blaðið leitar álits sérfræðings og opinberar niðurstöðumar
Eigi alls fyrir löngu kom sú
hugmynd upp að gaman væri að
láta einhvern sérfróðan gera
stjörnukort fyrir Skagablaðið,
m.a. með það fyrir augum að
kanna kosti og galla þess. Við
leituðum til Sigrúnar Harðardótt-
ur, kennara, sem mikið hefur
„stúderað“ stjörnurnar og hún
varð góðfúslega við þeirri beiðni
að gera kort fyrir okkur. Það
grundvallast á „fæðingu“ blaðsins
þann 10. júní 1984 kl. 13.38.
Útskýring kortsins hljóðar svo:
Sól á miðhimni:
Fullkomin samsömun við hlut-
verkið.
Sól CL Mars:
Og dugnaður í meira lagi, viss
möndlun á fólki til að ná vilja
sínum.
Mars í 2. húsi:
Veigengni fjárhagslega, enda vilji
fyrir hendi á efnislega sviðinu.
Mars Satúmus:
Stundum virðist bremsan vera á
og hindranir í peningamálum, en
þar sem Satúrnus fer afturábak
þá minnkar það áhrifin, lagast
þegar frá líður.
Sól 7T tungl og Úranus:
Óvenjulegar kringumstæður
koma upp, oft stressandi, en
krefjast frumleika og næmni á
fólk.
Þessi næmni hugans er nauðsyn-
leg til að ná góðum viðtölum, og
ávallt verður að gæta að róttækni
bogmannsins og forvitni nái ekki
yfirhöndinni á kostnað ábyrgðar
og umönnunartilfinningunni
eða ógni ekki efnislegu öryggi.
Merkúr 7T Júpíter:
Óróleiki, ferðir, oft í misjöfnum
veðrum, og gæta ber að komast
ekki að röngum niðurstöðum.
Júpíter í steingeit:
Metnaður að vera betri en aðrir,
talsverð hreykni af sjálfum sér,
Venus í krabba:
Fastheldni í sambönd.
Venus í 10. húsi:
Persónuleikinn notaður til að
koma sínu fram. Góðlegt viðmót.
Venus 7C Neptúnus:
Blekkingar en einnig sköpunar-
gáfa og skynbragð á list.
Venus Of Plútó:
Löngun til að kollvarpa, eyðslu-
semi möguleg, eða af því Plútó er
í 1. húsi, útlitsbreytingar. Stöðugt
lýkur einhverju skyndilega og
byrjar nýtt, e.t.v. ný og ný sam-
bönd en þau gömlu rofna full-
komlega. Hatur á stöðnun.
Vogin rís:
Elskulegt andlit, sveigjanlegar
skoðanir, „líberal“ ímynd, al-
menr, dipló.
Ég sé að tvenn öfl togast á,
annarsvegar efnishyggjuvel-
gengni, og hinsvegar sterk hvöt
eða tilhneiging til sóunar eða
hreinsunar sem einnig hreinsar
fjárhaginn og verður þá að byrja
aftur á núlli. En er ekki blaða-
útgáfa þannig. Hvert blað er
barnið manns og síðan er það
endanlega farið og ekki lengur
hluti af manni þegar það er komið
út.
Tilhneiging til að komast að
röngum niðurstöðum kom fram í
fréttinni um fylgiskönnun stjórn-
málaflokkanna. Cave! Achtung!
Beware!. Varist blekkingar og
ruglaða hugsun eða óskýra, sem
gerir vart við sig samkvæmt kort-
inu.
6