Skagablaðið - 15.03.1985, Page 7
0 [H H [0 [a] EIU H
Frá framkvœmdunum á þjóðveginum austan Akranesvegamótanna.
Bundið slitlag
eykst stöðugt
Þessar vikurnar er verið að
vinna við undirbyggingu fyrir
bundið slitlag á vegaspottanum
frá Eystra-Miðfelli að Akranes-
vegamótunum. Þegar tíðinda-
maður blaðsins var þar á ferð um
fyrri helgi var unnið af fullum
krafti að þessum framkvæmdum.
Ofaníburður er sóttur í melana
við Galtarholt og Lambhaga.
Fjórir bílar voru við akstur en ýta
jafnaði úr hlössunum. Verktaka-
félagið Ós hf. norðan úr Skaga-
firði annast þessar framkvæmdir
og verður ekki annað séð en að
þær gangi vel. Alltaf er því að
lengjast vegurinn, sem við ökum á
bundnu slitlagi út frá Akranesi.
Vonandi verða Akranesvega-
mótin lagfærð í framhaldi af þess-
um framkvæmdum þannig að
menn geti áttað sig á því að um
vegamót er að ræða áður en um
seinan. Eins og þau eru núna eru
þau síst betri en heimreið að
einhverjum sveitabænum, en þær
eru oft illa eða ekki merktar.
Mörgum finnast vegamótin óeðli-
lega þröng miðað við alla þá
umferð, sem um þau fer. Senni-
lega hafa „fræðingarnir“ hjá
Vegagerðinni ekki átt annað en
reglustikur með 90 gráðu horni
þegar vegamótin voru hönnuð.
Frá uppsetningu söngleiksins í Bíóhöllinni.
Lærður sjúkraliöi, vinn-
ur á ,Tan<|anum“ og ger-
ir við skó i aukavinnu
—Skagablaðið rabbar við skósmið bæjarins, Sigurð Sigurðsson
verður líka þreyttur á þessu
stundum, sérstaklega eftir tarn-
ir og þá langar mann helst að
selja allt saman og kaupa eitt-
hvað tilbúið.“
— Ég hef heyrt að þú sért líka
lærður sjúkraliði er það rétt?
„Já, það passar. Ég tók það
sem millifag á sínum tíma. Ég
ætlaði í íþróttakennaraskólann
á Laugarvatni, en hann tekur
bara inn nema annað hvert ár,
þannig að ég hafði eitt ár laust
og notaði það til að taka sjúkra-
liðann. Hélt að ég stæði betur
að vígi með það, en komst svo
ekki inn samt. Skósmíðina tók
ég svo svona með hinu.“
— íþróttakennaraskólann
segir þú, ertu þá ekki fyrr-
verandi íþróttakappi?
„Nei, ég er það nú ekki,
maður var að gutla í hinu og
þessu aðallega samt handbolt-
anum. Ég æfði hér fram á
síðustu áramót, þá sleit ég hásin
og varð að hætta en nú fer ég
að byrja aftur.“ sagði Sigurður
skósmiður, sjúkraliði, ofn-
gæslumaður og handboltaspil-
ari.
— SEÞ.
Sigurður Sigurðsson, frístundaskóari, á vinnustofu sinni.
Skagamönnum hefur hingað til haldist illa á skósmiðum sínum,
en nú virðist einn hafa búið um sig fyrir alvöru. Verkstæðið sjálft
lætur þó lítið yfir sér, einu merki þess eru lítill miði á bakdyrum,
þar sem stendur hvenær opið er. Blaðamaður leit við hjá
skósmiðnum einn „vordaginn,, fyrir skömmu til að heyra hvernig
fyrirtækið gengi.
„Það gengur bara sæmilega,
þetta er nú aukavinna hjá mér“,
segir Sigurður Sigurðsson, skó-
smiður. „Ég er annars ofngæslu-
maður uppi í Grundartanga.
En það er ágætt, að gera, —
misjafnt eftir veðri. Það er
meira að gera í góðu veðri, ef
það er slæmt fer fólk ekki útúr
húsi nema nauðsyn krefji.“
— Þú hafðir reynt áður er
það ekki?
„Jú, ég byrjaði 1979, þar sem
Dýralíf er núna. Það var efa-
laust ekkert nema óþolinmæði í
manni að hætta svona fljótt þá.
Þetta tekur tíma, fólk þarf að
venjast því að hafa skósmið í
bænum. Mér finnst viðskiptin
vera vaxandi, það er mesta
furða hvað þetta spyrst því ég
hef ekkert auglýst, hef ekki
einu sinni spjald úti í glugga
eins og ég hafði fyrst.“
— Tímir þú ekki að hafa það
í nýju gluggunum? spyr blaða-
maðurinn skilningsríkur (hafði
með næmu auga húsbyggjand-
ans séð nýja glugga og klæðn-
ingu hússins).
„Tja, ekki bara það heldur
var það of stórt í nýju glugg-
ana.“
— Hefurðu ekki lagt mikla
vinnu í að gera húsið upp?
„Já, ég hef verið að breyta og
bæta síðan ég flutti, fyrir 3
árum, samt er nóg eftir enn.
Bæði megnið af neðri hæðinni
og svo lokafrágangur, listar,
gerekti og þess háttar.“
—Hefur þú gaman af þessu?
„Já, já, ég hef líka getað gert
svo mikið sjálfur. En maður
Sjóræningjamir frá Pen*
sance festir á myndband
Búið er að taka upp söng-
leikinn Sjóræningjarnir frá Pens-
ance á myndband. Hljóðið var
tekið upp laugardaginn 2. mars í
BíóhölUnni og var þá hluta Vest-
urgötunnar lokað til að fá næði.
Myndin var síðan tekin upp sl.
laugardag. Þá var hljóðupptakan
spiluð í kerfi bíósins meðan upp-
taka á myndband fór fram.
Jón Karl Einarsson, skólastjóri
Tónlistarskólans sagði að í þetta
hefði verið ráðist aðallega til að
eiga minjagrip um þennan flutn-
ing, flytjendanna vegna og fyrir
tónlistarskólann í framtíðinni.
Hann sagði ennfremur að það
yrði athugað hvort sjónvarpið
vildi fá verkið til flutnings en það
væri ekki aðalmálið. Jón Karl
sagði að aðsóknin hefði verið
stórgóð sýnt hefði verið 6 sinnum
og alls mætt um 1400 manns. Væri
það algjört met hjá tónlistarskól-
anum í aðsókn á þeirra uppá-
komur. Eins sagði hann að sá
áhugi og þakklæti sme mætti
aðstandendum sýningarinnar
ekki síst eftir á, væri einstakur.
Auglýsið í
Skagablaðinu
- Kaupfélagið með VISA, Traðarbakki byijar í sumar, en
Einarsbúð hyggst ekki taka iw notkun kortanna
Kaupfélagið hefur tekið við
VISA kortum síðan 22. desem-
ber, að sögn Sigurðar Arnórs-
sonar kaupfélagsstjóra. Hafa
þessi viðskipti gengið mjög vel og
sagði hann að það væri engin
spuming, að viðskiptavinum
hefði fjölgað við þetta, kannski
ekki svo stórkostlega en þó greini-
lega. Sigurður kvaðst hiklaust
halda þessari þjónustu áfram, því
eins og hann sagði. „Þetta er
framtíðin.“
Verslunin Traðarbakki mun
einnig vera að íhuga að veita þessa
þjónustu fyrir sumarið og að sögn
Aðalbjargar Guðmundsdóttur,
annars eiganda verslunarinnar, er
stefnt að því að vera komin með
hana í apríl.
Þá verða þrjár af fimm mat-
arbúðum bæjarins komnar með
VISA kort en eins og áður hefur
komið fram ætlar Skagaver ekki
að taka upp notkun kortanna til
að geta haldið lágu vöruverði og
samkvæmt heimildum blaðsins er
sama upp á teningnum í Ein-
arsbúð.
7