Skagablaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 1
39. TBL. 2. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1985
VERÐ KR. 50.-
Hefurstarfsáh
ið á Akranesi
- íslenska hljómsveitin með tónleika
í Bíóhöllinni kl. 15 á laugardag
Ákveöið hefur verið að starfsár íslensku hljómsveitarinnar hefjist
á Akranesi, nánar tiltekiö á laugrdag kl.15 í Bíóhóllinni.
Sannarlega merkur listviðburður sem bæjarbúar mega vera stoltir
af. Þessir tónleikar íslensku hljómsveitarinnar eru þeir fyrstu í röð
fimm tónleika, sem haldnir verða á 6 dögum.
Á þcssum fyrstu tónleikum svcitarinnar á nýju starfsárí verður
m.a. frumflutt tónverk eftir bandaríska tónskáldið Frederick Fox,
en verkið er tileinkað íslensku hljómsveitinni og aðalstjórnanda
hennar. Tvö öniiur verk verða flutt, Trittico Botticclliano eftir
Ottorino Rcspighi og Þjóðlög eftir Luciano Berio.
Stjórnandi íslensku hljómsveitarinnar á tónleikunum á laugardag
verður Marc Tardue en Sigríður Fdla Magnúsdóttir mun koma fram
á þessum tónleikum.
í lokin má gcta þess, að ákveöið hcfur veriö að nemar úr
Tónlistarskóla Akraness vcrði einleikarar mcð hljómsveitinni á
tónleikum hennar í dcsember.
'Þingmenn og bœjarstjórn ræða málin yfir kaffibolla.
Lagt til at'
uvið
svartbakinn
Veiðistjóri ríkisins kom hingað
upp á Akranes í síðustu viku til
þess að kanna hvernig fækka
megi í svartbaksstofninum í Akra-
fjallinu.
Fór hann nokkuð víða um,
m.a. upp á öskuhauga, inn að
Laxá og inn í Flvalfjörð og ætlaði
að endingu að fylgjast með er
Sandey dældi t sandþró Sements-
verksmiðjunnar. Ekkert varð þó
af þeim þætti heimsóknarinnar
því ekki var hægt að dæla vegna
bilunar.
Veiðistjórinn mun væntanlegur
aftur hingað á næstu vikum og þá
væntanlega með drög að aðgerð-
um í pokahorninu.
Þingmenn Vesturlandskjördæmis í
„vettvangskönnun“ hér á mánudag
Fimm þingmenn Vesturlands-
kjördæmis, þeir Valdimar Ind-
riðason, Friðjón Þórðarson, Skúli
Alexandersson, Alexander Stef-
ánsson og Stefán Aðalsteinsson
komu hingað upp á Akranes á
mánudag í eins konar „vettvangs-
könnun“ ef svo mætti að orði
komast. Sjötti þingmaður kjör-
dæmisins, Eiður Guðnason,
komst ekki þar sem hann dvelur
erlendis en Guðmundur Vésteins-
son, bæjarfulltrúi Alþýðuflokks-
ins, slóst í för með þingmönnun-
um í hans stað.
Eftir að hafa hitt Ingimund
Ekkert dregur úr ásókn í pláss að Höfða:
65 eru á biölistanum
Hvorki fleiri né færri en 65 manns eru enn á biðlista yfir vistun að
Höfða. Að mati þjónustuhóps aldraðra, sem farið hefur nánar ofan í
umsóknirnar, þurfa 20-24 á brýnni vistun að halda. Að framansögðu
virðist því augljóst að hraða þarf byggingu næsta áfanga Höfða eins
og kostur er.
Bæjarstjóminni boð
in þjónusta trúðs!
Norræna félagið hefur sent
bæjarstjóm Akraness bréf, þar
setn vakin er athygli á því að
sænskur trúður sé væntanfegur
hingað til íslands, skyldu Akur-
nesingar hafa áluiga.
Málinu var skotið tii
Æskulýðsnefndar, sem korrist að
þcirri niðurstöðu að koma trúðs-
ins hingaö til Akraness yrði að
vera í tengslum við einhverja
aðra skcmmtun — hæpið væri að
tefla fram trúðnum einum síns
liðs. Trúðurinn mun einnig fáan-
legur til þess að kenna undir-
stöðuatriði í list sinni því það er
ekki tekið út með sældinni að
leysa hlutverk trúðs svo vel sé.
Hafi einhver félagasamtök í
bænum áhuga á að nýta sér
heimsókn trúðsins eru þau beðin
að hafa samband við Æskulýðs-
nefnd fyrr en seinna.
Sigurpálsson, bæjarstjóra, að
máli á skrifstofu hans fóru þing-
mennirnir í skoðunarferð um
bæinn. Skagablaðið hefur það
fyrir satt að þess hafi verið farið á
leit við þingmennina að þeir öfl-
uðu fjár til nauðsynlegra fram-
kvæmda, m.a. í tengslum við
skólabyggingar hér í bæ, eins
fljótt og auðið væri og munu það
ekki hafa verið neinir smáaurar
sem farið var fram á í fjárveiting-
ar.
Þingmennirnir skoðuðu
Grundaskóla, nýju mannvirkin
við íþróttavöllinn, heilsugæslu-
stöðina, Brekkubæjarskóla,
heimavist Fjölbrautaskóla Akra-
ness, höfnina, bókasafnið og
verndaðan vinnustað.
Hvervetna sem þeir komu var
þeim bent á allra nauðsynlegustu
framkvæmdir og jafnframt bent á
að það sem farið væri fram á væri
ekki óskalisti af einu eða neinu
tagi heldur aðeins hlutir, sem yrði
að framkvæma af brýnni nauðsyn
hið allra fyrsta svo allténd mætti
halda í horfinu.
Litið inn á verndaðan vinnustað.
Ömólfur gersam-
lega óstöðvandi
- sjá nánar getraunaleik