Skagablaðið - 28.07.1988, Side 8
8
Skaaablaðið
Svipmyndir
frá sundmóti
Þær gætu eflaust dugað okkur í heilt blað myndimar $em teknar
voru á Aldursflokkameistaramótinu i sundi hér á Akranesi um
helgina en þær sem eru hér á síðunni og annars staðar í blaðinu
verða að nægja.
Eins og kemur fram á bls. 5 sigraði Sundfélag Akraness með
glæsibrag á mótinu og gerði tvennt í senn; færði SA veglega gjöf á
40 ára afmælinu og gerði fyrsta mótið í nýju Jaðarsbakkalauginni
ógleymanlegt.
Myndimar á síðunni em „héðan og þaðan“ af mótinu og gefa von-
andi til kynna hversu skemmtilega helgi sundáhugafólk á Akranesi
átti þessa daga. Þar hélst allt í hendur; frábær undirbúningur, pott-
þétt skipulag, gott veður og glæsilegur árangur.
Á fullri ferð í flugsundinu.
Þessi litla laglega hnáta, Silvía
Llorens, sá um að fœra verðlaun-
ahöfunum peningana sína á
bakka.
Formaðurinn, Sturlaugur Stur-
laugsson, og þjálfarinn, Hugi
Harðarson, bregða á leik í lok-
ahófi Aldursflokkamótsins í
íþróttahúsinu við Vesturgötu.
Tilbúnir... viðbúnir... nú. Ein-
beitingin skín úr andliti Gunnars
Ársœlssonar.
Kampakátt sundfélagsfólk veifar
til Ijósmyndarans, þar sem hann
hafði komið sérfyrir í körfubifreið
til þess að ná sem bestum
myndum.