Skagablaðið


Skagablaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 6

Skagablaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 6
Skagablaðið 6 • Umræðan um Jaðarsbakkalaug- ina hefur tekið heldur leiðinlega stefnu að undanförnu að mati Hauks í horni. Aðalmálið virðist vera hvort laugin hafi kostað einhverjum mill- jónum meira en áætlað hafði verið. Minna máli virðist skipta hversu glæsilegt mannvirki er um að ræða. Mikil aðsókn bæjarbúa vitnar best um þær vinsældir sem Jaðarsbakka- laugin nýtur. Annað er það atriði, sem Hauki ( horni finnst algerlega vanta í umræðurnar, en það er hverj- ir hrundu framkvæmdum við laugina af stað á sínum tíma. Þá voru sjálf- stæðismenn meirihlutaafl í bæjar- stjórn. • Haukur í horni rak upp stór augu er hann las frétt á baksíðu Morgun- blaðsins fyrir helgina þess efnis að von væri á samkeppni í siglingum yfir flóann. Tveir bræður ætla sér að reka farþegaferju á milli Akraness og Reykjavíkur í samkeppni við Akra- borgina. Gott er og blessað að fá samkeppnina þótt Haukur í horni efist um að rekstrargrundvöllur sé fyr- ir tvö skip. Það hlýtur að auki að standa nýju ferjunni fyrir þrifum að hún getur ekki flutt bíla. Flestir Akurnesingar sem fara erinda sinna til Reykjavíkur taka bílana sína með enda ekki heiglum hent orðið að komast á milli staða í henni Reykja- vík án þess að hafa blikkbeljuna með. En það var líka annað í um- ræddri frétt sem fékk Hauk í horni til að staldra við. í fréttinni sagði að nýja ferjan væri einkum hugsuð til þess að gefa þeim Akurnesingum sem vinna eða stunda nám á höfuðborg- arsvæðinu betra tækifæri til að kom- ast á milli en einnig til þess að auð- velda Skagamönnum að stunda verslun í Reykjavík. Sannast sagna telur Haukur í horni ekki nokkra þörf á því að ýta frekar undir þá þróun sem er að gerast hægt og sígandi. Nógu mikið er nú um það samt að Akurnesingar versli í Reykjavík þótt ekki bætist við sérstök ferja fyrir fólk í verslunarerindum. • HaukuríhornilesafogtilíSkaga- blaðinu hálfkveðnar hótanir frá lög- reglu um að þá og þá eigi að fara að klippa númer af bílum og sekta menn fyrir umferðarlagabrot. Minna virðist verða úr efndum á þessum „loforð- um.“ Sannast sagna stóð Haukur í horni í þeirri trú að lögreglan þyrfti ekkert að vera að vara fólk við yfir- vofandi aðgerðum. Hún hefur lögin að baki sér og á ekki að veigra sér við að fara eftir þeim. Allt of algengt er að ökuþórar fái að komast upp með hraðakstur á götum bæjarins án þess að nokkuð sé aðhafst. Auðvitað liggja lögreglumenn vel við höggi og verða fyrir aðkasti fyrir það eitt að sinna störfum sínum en þeir mega ekki láta það á sig fá. „Það er kannski vissara að hafa nokkrar kúlur... hver veit nema maður hitti einaþeirra. “ Steinunn Sigurðardóttir klýfur loftið með „bareflinu". Snilldartilþrif Það væri hreint og beint ósatt að segja að ekki hefðu verið tignarleg tilþrif í golfíþróttinni á Garðavelli þeirra Leynismanna á laugardag. Höfundar og einkaleyfíshafar þessara tilþrifa voru bæjarstjórnarmenn og starfsmenn á bæjarskrifstofunum. Það voru Leynismenn sem buðu forkólfum bæjarfélagsins til þessar- ar sérstöku keppni og þrátt fyrir leiðindaveður og misjafnt heilsufar létu menn slíkt ekki hafa áhrif á sig og reyndu allt hvað jþeir gátu til að koma hvíta boltanum áleiðis að holunum. Nutu við það smávægilegrar leiðsagnar og aðstoðar „sérfróðra“. Myndirnar hér á síðunni segja vonandi meira en mörg orð. Þorvarður Magnússon vildi manna fyrstur fá að vita hvertpar vallarins vœri svo hann þyrfti ekki að eyða fleiri höggum á völlinn en nauðsyn krefði. Eitthvað fór áætlun hans úrskeiðis og þá var bara að veita kylf- unni ráðningu! ém* - Aðstoðarmaður Jóns Pálma bæjarritara, reyndi að benda honum á gat væri á stígvélinu en það sló hann ekki út aflaginu. ,Já, afstað með þig helv... þitt!“ Ingibjörg Pálmadóttir við torfristu á laugardag. Kúlan sennilega einhvers staðar í iðrum jarðar. „Nei, áfram en ekki upp í loft. “ Hvíti boltinn neitar að hlýða Guðjór Guðmundssyni ogfer sínar eigin leiðir. Skaaablaðið 7 Mikilvægur leikur Skagamanna gegn KA; Tryggir ÍA sér Evrópusætið? Jafntefli eða sigur í leik Skagamanna gegn KA frá Akur- eyri á laugardaginn tryggir sæti í Evrópukeppni félagsliða að ári. Eins og staðan í deildinni er nú þurfa Akurnesingar aðeins eitt stig til að tryggja sér UEFA- sætið. Þeir eru með 31 stig en KA 26. Jafntefli gerði það að verkum að KA gæti ekki náð í A að stigum Silfurglóf- inn afhentur Þau voru mörg hver skondin verðlaunin sem voru afhent í loka- hófi eldri flokks drengja á föstu- dagskvöld. Þar komu menn sam- an og gerðu upp sumarið. Sigþór Ómarsson fékk viður- kenningu fyrir „mark ársins“ er það skoraði hann í leik gegn FH. Rúnar Hjálmarsson fékk viður- kenningu frá íþróttasambandi fatlaðra en hann hefur átt við langvinn meiðsl að stríða. Þá fékk Jón Gunnlaygsson svokallaða „Óróleikaviðurkenningu" en hún fólst í skildi, þar sem festar höfðu verið á tvær róandi töflur. Loks fékk Einar Guðleifsson afhentan „silfurglófann" fyrir frábæra markvörslu í leik ÍA og FH. Hjalti vann Olís-mótið Hjalti Nielsen, Golfklúbbnum Leyni, sigraði í opna Olís-ungl- ingagolfmótinu sem fram fór á Garðavelli á fyrra sunnudag. Hjalti lék 18 holurnar á 75 höggum. Keppni um sigurinn var mjög hörð því tveir næstu menn, báðir frá Akranesi, léku á 74 höggum. Það voru þeir Ingi R. Gíslason og Þórður Ólafsson. í keppni með forgjöf sigraði Ingólfur Pálmason, NK, á 58 höggum nettó en þeir Þórður og Arnar Jónsson, einnig GL, léku á 63 höggum nettó. í síðustu umferðinni. Skagamenn hafa verið á nokk- uð góðu róli síðustu vikurnar. Á undan jafnteflinu við KR fylgdu þrír sigurleikir í kjölfar taps gegn Valsmönnum á Hlíðarenda. Leikurinn við KR var þó ekki góður og var ekki laust við að þreytu gætti hjá Skagamönnum eftir Evrópuleikinn gegn Ujpesti Dosza. Leikurinn gegn KA, sem hefst kl. 14.30 á laugardag, er ekki að- eins uppgjör á milli Skagamanna og Akureyringanna um UEFA- sætið sem er í boði heldur ekki síður uppgjör á milli þjálfaranna, Sigurðar Lárussonar og Guðjóns Þórðarsonar. KA vann leik lið- ánna í 1. deildinni á Akureyri, 3 : 2, en Skagamenn hefndu þess með 1 : 0 bikarsigri. Liðin standa því jöfn að vígi fyrir þennan leik og með sigri eygja Akureyrin- garnir möguleika á UEFA-sætinu eftirsótta. Sundhópurinn, sem gerði garðinn frœgan á Neskaupsstað, ferðbúinn á dansleik að lokinni vel heppnaðri keppni. A myndina vantar Sturlaug Sturlaugsson enda stóð hann við hinn enda myndavélarlinsunnar. B-lið Sundfélags Akra- ness upp I aðra deild Karl Þórðarson hefur verið einn burðarása ÍA-liðsins í sumar. Hvað gerir hann gegn KA á laug- ardag? ! B-Iið Sundfélags Akraness náði þeim frækilega árangri að vinna | sér sæti í 2. deildinni í sundi eftir að hafa hafnað í 2. sæti 3. deildar- keppninnar, sem fram fór á Nes- kaupsstað um helgina. B-Iiðið fékk 13.407 stig en lið ÍBV, sem sigraði í deildinni fékk 14.175 stig. Það var að stærstum hluta ungt og efnilegt sundfólk sem átti heið- urinn af sigrinum en tvær „gamlar“ kempur, þeir Sturlaug- ur Sturlaugsson og Hugi Harðar- son, léttu undir með þáttöku í þremurgreinum. Sturlaugur synti 100 m flugsund og Hugi keppti í tveimur boðsundum. Það var 16 manna hópur sem hélt austur um helgina og að sögn Sturlaugs gerðu menn sér vægar vonir um þennan árangur. „Þetta varð eiginlega eins gott og við gát- um átt von á,“ sagði hann. Hann bætti því við, að þetta mót hefði einkum og sér í lagi verið hugsað til þess að gefa þessum krökkum tækifæri til að spreyta sig en úr því þau hefðu náð að vinna sig upp um deild hefðu þau að einhverju að keppa. Leynir vann HMA-mótið Sveit Golfklúbbsins Leynis bar sigur úr býtum í svokölluðu HMA- móti, sem fram fór á sunnudag. Þar öttu kappi saman sveitir Leynis, Golfklúbbs Heflu og Golfklúbbsins Kjalar, Mosfellsbæ. Sigursveit Leynis skipuðu Elín Hannesdóttir, Kristvin Bjarnason, Hjalti Nielsen, Ingi Rúnar Gíslason, Arnar Jónsson, Hannes Þor- steinsson, Alfreð Viktorsson og Halldór Magnússon. Leynismennirnir sópuðu að sér verðlaunum í einstaklingskeppn- inni, voru í þremur efstu sætunum í keppni með og án forgjafar. Dræmari aðsókn Mun dræmari aðsókn hefur verið á tvo síðustu heimaleiki Skagamanna í knattspyrnunni en var framan af sumri þrátt fyrir að liðið hafi átt ágætu gengi að fagna. Að sögn Steins Helgasonar, framkvæmdastjóra Knattspyrnufé- lags í A, mættu ekki nema um 400 manns á sigurleiki Skagamanna gegn Þór og Keflavík. Leikirnir gegn Leiftri og Völsungi voru held- ur skárri hvað þetta varðar. Steinn sagði aðsókn að knattspyrnuleikjum í sumar hafa snar- minnkað og vafalítið hefði yfirburðaforysta Fram spilað þar stórt hlutverk. Aðsókn hér á Akranesi hefði kannski ekki verið neitt minni en á öðrum stöðum en fækkað hefði alls staðar. „Oðlinga“-æfingamar í hand- boltanum öllum opnar í vetur Þátttakendur í opna Olís-unglingagolfmótinu fyrir skömmu. Akveðið hefur verið, að æfing- ar „öðlinga“ í handknattleiknum í vetur verði opnar öllum þeim sem áhuga hafa á að iðka handknatt- leik að sögn Ola Páls Engilberts- sonar, formanns Handknattleiks- félags ÍA. Hann sagði ennfremur, að nú væri búið að samræma aldurs- skiptingu í flokkum á milli kynja. Þriðji flokkur væri fyrir aldurinn 15-16 ára, 4. flokkurfyrir 13-14 ára, 5. flokkur fyrir 11 og 12 ára og 6. flokkur fyrir 10 ára og yngri. Óli Páll sagði, að nokkurs mis- skilnings hefði gætt á meðal ungl- inga um hvaða flokkum þeir til- heyrðu, þar sem mismunandi skipting í flokka hefði verið hjá strákum og stelpum. Nú væri hins vegar búið að samræma þetta þannig að allir ættu að vita hvenær þeir eiga að mæta æfingar. Skag- ablaðið birti í síðustu viku töflu yfir æfingar allra flokka í vetur.

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.