Skagablaðið - 06.10.1988, Qupperneq 1
Sjötíu manns
missa vinnuna
- öllu starfsfólki Hafamarins sagt upp
Jaðarsbakkalaugin. Bygging hennar œtlar að verða bœjaryfirvöldum
erfiður biti í hálsi, a.m.k. hvað varðar kostnað.
„Við eru búnir að láta bjóða
okkur þetta ástand allt of lengi,“
sagði Guðmundur Pálmason,
framkvæmdastjóri Hafarnarins,
sem sagði upp öllu starfsfólki sínu
um síðustu mánaðamót. Alls eru
það um 70 manns sem missa
atvinnuna.
Að sögn Guðmundar eru rekstr-
Möraum spumingum ósvaraö
„Ljóst er að þrátt fyrir mikið
umfang svarar þessi skýsla ekki
öllum þeim spurningum sem
brenna á mönnum. Því þykir
nefndarmönnum rétt að mæta á
fund með öllum bæjarfulltrúum
og yfírmönnum bæjarskrifstofu.
Þar geti menn fengið svör við
þeim spurningum sem ósvarað
kann að vera í þessari skýrslu.“
Svo segir í niðurlagi „sundlaug-
arskýrslunnar" margfrægu sem
rædd var á sérstökum fundi sl.
þriðjudag og gerð opinber í kjöl-
farið. Skýrslan sem er að mestu
leyti byggð upp á reikningsyfirlit-
um varpar í raun ekki nema tak-
mörkuðu ljósi á hvað úrskeiðis fór
við byggingu laugarinnar og varð
þess valdandi að hún fór jafn langt
fram úr áætlun og raun bar vitni.
Skýrslan sýnir hinsvegar gífurleg-
an mun á áætlun og rauntölum,
hver sem skýringin kann að vera.
arerfiðleikar fyrirtækisins mjög
miklir og hafa vandamálin hrann-
ast upp. Var því gripið til þess að
segja öllu starfsfólkinu upp. Sum-
ir hafa stuttan uppsagnarfrest en
aðrir allt upp í þriggja mánaða og
hætta því um áramótin.
Uppsagnir starfsfólks hjá Haf-
erninum koma beint í kjölfar upp-
sagna alls starfsfólks Akraprjóns
og Stuðlastáls, sem áður hefur
verið greint frá í Skagablaðinu.
Ástandið nú virðist ekki ósvip-
að því sem var fyrir réttum fjórum
árum er fiskvinnslufyrirtækin
voru öll á heljarþröm. Alvaran í
atvinnulífinu virðist þó jafnvel
enn meiri nú því erfiðleikar hafa
gert vart við sig í öðrum atvinnu-
greinum eins og uppsagnir Akra-
prjóns og Stuðlastáls, tveggja
gerólíkra fyrirtækja, bera með
sér.
Fundaðmeð
þingmönnum
Bæjarstjórn Akraness fundaði
síðdegis í gær með alþingismönn-
um Vesturlandskjördæmis en
fundir sem þessir hafa verið árviss
viðburður um þetta leyti. Fundir
þessir snúast alla jafna um fjármál
og framkvæmdir og ekki er að efa
að fundurinn í gær hefur verið á
þeim nótum einnig. Þingmennirn-
ir voru „trakteraðir" á dýrindis
kræsingum en hvort þær ráða ein-
hverju um aukið fjárstreymi til
bæjarins verður svo bara að koma
í ljós þegar fjárlagafrumvarpið sér
dagsins ljós. Bæjarfulltrúar og þingmenn Vesturlandskjördœmis um það leyti erfundurinn að Heiðarbraut 40 hófst.
Skyttumar þrjár teknar
fyrir ólöglega skotveiði
„Afli og veiðarfæri gerð
upptæk.“ Þetta er setning sem
hljómar kunnuglega þegar skip
eða bátar hafa verið gripin við
meintar ólöglegar veiðar. Öllu
sjaldgæfara að svona sé tekið til
orða þegar fuglaskyttur eru á
ferðinni. Þessi gamalfræga setn-
ing á hins vegar vel við um
atburð sem lögreglan á Akranesi
hafði afskipti af nýverið.
Þrjár skyttur voru þá leitaðar
uppi eftir að kvartað hafði verið
undan skothvellunum sem
ómuðu um allt land Innsta-Vogs
og jafnvel víðar. Meðferð skot-
vopna er stranglega bönnuð inn-
an marka bæjarlandsins og fór
lögreglan því á stúfana. Engar
fundust skytturnar þegar að var
gáð en hins vegar kom bifreið,
sem lagt var við gömlu loðnu-
þróna lögreglunni á sporið.
Það var svo eftir nokkra eftir-
grennslan að skytturnar fundust.
Höfðu þær þá skotið þrettán
stokkendur sér til matar. Voru
skytturnar færðar til yfirheyrslu
og skotvopnin tekin af þeim sem
og endurnar þrettán. Eiga
mennirnir þrír von á sektum fyrir
athæfið.
Metaðsókn
að Foxtrot
Eigi færri en 840 Skaga-
menn sáu þrjár sýningar kvik-
myndarinnar Foxtrot í
Bíóhöllinni í vikubyrjun.
Þessi mikla aðsókn hefur orð-
ið til þess að efnt verður til
aukasýningar á myndinni í
kvöld.
Þetta er langbesta aðsókn
að mynd í langan tíma hér á
Akranesi að sögn Leifs Eiríks-
sonar, framkvæmdastjóra
Bíóhallarinnar. Svo mikið
hefur gengið á í miðasölunni
að hurðapumpan hefur
brotnað á öllum sýningum.
Nú er spurningin hvort pump-
an lætur undan í fjórða sinn.