Skagablaðið - 06.10.1988, Blaðsíða 9
Skagablaðid
9
Fyrsta mark IA í UEFA-keppninni
nægii ekki til ai komast áfram
Ujpesti Dosza svaraii marki Karls Þóriarsonar mei tveimur mörkum og sigraii ÍA 2:1 í síiari leik liianna í Búdapest í gær
Skagamenn voru ekki langt frá
því að tryggja sér sæti í 2. umferð
UEFA-keppninnar í knattspyrnu
austur í Búdapest í gærdag er þeir
töpuðu 1: 2 fyrir ungverska liðinu
Ujpesti Dosza. Sigurmark Ung-
verjanna kom á 72. mínútu og
þrátt fyrir góða tilburði tókst
Skagamönnum ekki að jafna
metin.
Að sögn Jóns Gunnlaugssonar,
sem fór út með liðinu, var fyrri
hálfleikurinn ekki svo mjög ójafn
þótt Ungverjarnir hefðu sótt
meira. Mikið var um miðjubarn-
ing en heldur lá meira á Skaga-
mönnum. Strax á 19. mínútu urðu
Skagamenn fyrir því áfalli að Örn
Gunnarsson meiddist á ökkla og
varð að fara út af. Kom Jóhannes
Guðlaugsson inn á í hans stað.
Forráðamenn Skagaliðsins
voru svo að búa sig undir að hinn
umdeildi búlgarski dómari leiks-
ins flautaði til leikhlés er fyrsta
mark leiksins leit dagsins ljós.
Mistök í vörninni urðu til þess að
einn Ungverjanna slapp í gegn og
eftir fyrirgjöf hans skoraði
Ujpesti Dosza fyrr mark sitt. Þá
var rúm mínúta komin fram yfir
venjulegan leiktíma í fyrri hálf-
leik.
Skagamenn mættu galvaskir til
leiks eftir hlé og strax í upphafi
síðari hálfleiksins komst Aðal-
steinn Víglundsson einn í gegnum
vörn Ungverjanna. Markvörður
Ujpesti óð út á móti honum og
felldi hann gróflega utan víta-
teigs. Skagamenn vildu sjá rauða
spjaldið á lofti en dómarinn veitti
markverðinum gult spjald og
dæmdi aukaspyrnu.
Nokkrum mínútum síðar
sluppu Skagamenn svo með
skrekkinn er dæmd var vítaspyrna
á þá. Úr henni áttu Ungverjarnir
Marjc Karls þaö fyrsta
hjá IA eftir695minútna
leik í UEFA-keppninni
Mark Karls Þórðarsonar í leiknum gegn Ujpesti Dosza í gær-
kvöld er fyrsta mark Skagamanna í þessari keppni.
Fyrir leikinn höfðu Skagamenn leikið sjö sinnum í UEFA-
keppninni án þess að skora mark eða í 630 mínútur. Það liðu svo
65 mínútur til viðbótar uns fyrsta mark leit loksins dagsins ljós og
var í meira lagi kærkomið.
Eftir átta leiki í þessari keppni hafa Skagamenn því skorað þetta
eina mark en fengið á sig 42! Athyglisverð er sú staðreynd að eina
markið er skorað á útivelli.
Mark Karls Þórðarsonar kom eftir 725 mínútna leik Skagamanna í
UEFA-keppninni.
skot í stöng og skoruðu reyndar í
kjölfarið en það mark var rétti-
lega dæmt af. Allt fram í miðjan
síðari hálfleikinn áttu Skagamenn
undir högg að sækja. Eftir stund-
arfjórðung af síðari hálfleiknum
varð Sigursteinn Gíslason að fara
út af vegna meiðsla og kom Gunn-
ar Jónsson í hans stað. 'l'veir
menn út af vegna meiðsla og útlit-
ið fremur dökkt. En þá rofaði
skyndilega til.
Á 65. mínútu barst boltinn fram
á vinstri kantinn til Flaraldar Ing-
ólfssonar, sem var fljótur að
senda boltann þvert yfir völinn á
hægri kantinn, þar sem Karl Þórð-
arson kom á fullri ferð. Hann
stakk sér inn fyrir ungversku
vörnina og skoraði glæsilegt
mark, 1:1!
Vonir Skagamanna um að kom-
ast áfram í 2. umferð urðu hins
vegar að engu 7 mínútum síðar er
Ungverjarnir svöruðu fyrir sig.
Einföld sókn þeirra leysti upp
vörn Skagamanna og mark varð
ekki umflúið.
Ekki var öll nótt úti enn því níu
mínútum fyrir leikslok fékk
Gunnar Jónsson gullið tækifæri til
að jafna metin en það fór forgörð-
um. Ungverjarnir hrósuðu því
sigri í lokin en frammistaða
Skagamanna var á þann veg að
jafnt leikmenn sem forráðamenn
liðsins geta vel við unað.
Þjálfari og
stjóm fuku
Þjálfari Ujpesti Dosza varð
ekki Ianglífur í starfi eftir
fyrri leik liðsins gegn Skaga-
mönnum á Jaðarsbökkum í
byrjun september. Um leið
og ungverjarnir voru komnir
á heimaslóðir aftur fékk þjálf-
arinn reisupassann. Fleiri
fengu að fjúka því öll stjórn
félagsins var sett af!
Farangurinn
varð eftir
Ohætt er að segja að för
Skagamanna til Ungverjalands
hafi ekki gengið með öllu and-
skotalaust. Sjálft ferðalagið gekk
snurðulaust fyrir sig þar til lent var
á flugvellinum í Búdapest en þá
kom babb í bátinn.
Þegar liðið og fararstjórarnir
ætluðu að sækja töskur sínar eins
og venja er eftir að komið er á
áfangastað kom í ljós, að farang-
urinn hafði allur orðið eftir á
Schiphol-flugvelli í Amsterdam.
Þegar Skagablaðið hafði sam-
band við liðið um miðnættið í
fyrrakvöld höfðu töskur með bún-
ingum liðsins komið í leitirnar og
eitthvað af öðrum farangri en
meginhluti hans var enn ókom-
inn. Síðdegis í gær vantaði enn 13
ferðatöskur.
„Náði að herða mig upp“
- segir Ragga Run. og er sátt vii árangur sinn í Seól eftir á ai hyggja
„Ég er alveg sátt við mína
frammistöðu eftir á að hyggja þó
ég hafi verið mjög óánægð með
sjálfa mig eftir 200 m bringusund-
ið. Ég er eiginlega ánægðust með
það að hafa náð að herða mig upp
og setja íslandsmet bæði í 100 m
bringusundinu og 200 m fjórsund-
inu,“ sagði Ragnheiður Runólfs-
dóttir. Hún kom heim í vikubyrj-
un eftir dvölina í Seól.
Ragnheiður sagði erfitt að segj a
til um hvers vegna sér hefði geng-
ið jafn illa og raun bar vitni í 200 m
bringusundinu. Hugsanlega hefði
hún hvílt of mikið eða einfaldlega
ekki náð nægilegri einbeitingu.
„Ég tók mig til eftirfyrra bringu-
sundið og tók tvær mjög stífar
æfingar og þær virðast hafa hjálp-
að mér mikið. í það minnsta öðl-
aðist ég sjálfstraustið aftur og það
skilaði af sér tveimur íslandsmet-
um,“ sagði þessi geðþekka sund-
drottning.
Ragnheiður ætlar nú að snúa
sér að fullum krafti að þjálfun á
vegum Sundfélags Akraness en
ætlar engu að síðar að stunda
æfingar áfram af fullum krafti.
„Þegar ég æfi á geri ég það á fullu.
Eg fer ekkert að láta fólk sem ég
hef unnið síðan ég var 13 ára
vinna mig núna, ég er ekki tilbúin
til þess,“ sagði Ragnheiður.