Skagablaðið

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Skagablaðið - 12.10.1989, Qupperneq 1

Skagablaðið - 12.10.1989, Qupperneq 1
Frá slysstað á mótum Skólabrautar og Vesturgötu á mánudagskvöldið. Endurskoðuð fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar 1989: Tekjur hækka um 8 millj. rekstur um 6 milljónir Endurskoðuð fjárhagsáætlun Akrancskaupstaðar, sem lögð var fram fyrir stuttu, gerir ráð Bjór stplið í útibúi ATVR Níu kössum af bjór var stolið í innbroti í útibú ÁTVR hér á Akranesi í síðustu viku. Þjóf- arnir, sem voru aðkomumenn, voru gripnir á hótelherbegi og bjórnum nánast öllum skilað aftur. fyrir að tekjur bæjarins hækki um tæpart 8 milljónir króna frá samþykkri áætlun í byrjun árs og að rekstrargjöld hækki jafnframt um 6 milljónir króna. Endur- skoðuð tekjuspá er gerð með þeim fyrirvara að óvissa ríkir um aukaframlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ljóst er að nokkrir rekstrarlið- ir fara fram úr áætlun, m.a. framlag til Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs, barnaverndar- og framfærslumála, heilsugæslu- stöðvar, sjúkrasamlags og tann- viðgerðar barna. A móti kemur að nokkrir aðrir liðir verði undir áætlun sem og fjármagnskostn- aður. Mikil óánægja ríkir með sí- hækkandi kostnað vegna sjúkra- samlags og tannviðgerða barna. Segja bæjaryfirvöld þann kostn- að hækka árlega langt umfram þróun verðlags. Gróðuvban- aráferð „Gróðurbanarnir“ eru þeir nú kallaðir í daglegu tali þeir þokkaunglingar sem leggja stund á eyðileggingu trjágróð- urs í bænum. Virðast þessir einstaklingar sjá ofsjónum yfir tilraunum annarra til þess að gæða bæinn lífi og setja sig ekki úr færi við að sálga trjám, þar sem kostur er á. Lögreglunni var um helgina tilkynnt um skemmdarverk á trjám við Málningarþjónust- una við Stillholt. Þar höfðu tré verið rifin upp með rótum og önnur tálguð svo illa að þau koma til með að drepast. Skagablaðið skýrði frá því um daginn að fimm aspanna við Kalmansbrautina hefðu verið brotnar en þær eru nú orðnar tólf. Kannski best sé að biðla til skemmdarverkanna á dæmi- gerðri bíóensku: „What‘s wrong with you guys?“ Tálgað tré við Málningarþjón- ustuna. Starfsfólk Heimaskaga hefur í vikunni unnið lax í blokkir. Heimaskagi vinnur lax Heimaskagi hefur í vikunni verið að vinna lax í blokk fyrir fyrir- tækið Eðalfisk í Borgarnesi. Um er að ræða 5 tonn af 2. og 3. flokks fiski. Að sögn Gylfa Guðfinnssonar, verkstjóra hjá Heimaskaga, er laxinn unninn í 16 punda blokkir á Svíþjóðarmarkað. Gylfi sagði lax hafa verið unninn áður hjá Heimaskaga en þá aðeins í litlu magni. K-dagur Kiwanismanna Kiwanismenn um land allt efna til sjötta K-dagsins þann 21. október næstkomandi. Kiwanis- klúbburinn Þyrill hér á Akranesi stendur fyrir söfnun hér á Akra- nesi í tengslum við þennan dag. Umdæmisþing haldið í Reykja vík 1988 samþykkti að verja því fjármagni, að frádregnum kostnaði, sem safnaðist með sölu K-lykils eða á annan hátt til styrktar geðsjúkum og að vinna undir kjörorðinu „Gleymum ekki geðsjúkum". K-dagsnefnd hefur lagt til að því fjármagni sem verður til ráð- stöfunar eftir K-dag verði varið til kaupa á íbúðum til nota fyrir þá einstaklinga sem dvalið hafa á Endurhæfingarheimilinu að Álfalandi í Reykjavík. íbúðir þessar verða staðsettar í Reykja- vík og á Akureyri. íbúðirnar verða í eign geðverndarfélaga á viðkomandi stöðum og reknar sem vernduð sambýli. Kiwanismenn hér á Akranesi sögðust í spjalli við Skagablaðið vonast til þess að bæjarbúar tækju þeim vel nú sem fyrr er söfnunin fer fram, annan laugar- dag. Þrekmiðstóð sett upp? Skagablaðið hefur haft spurnir af því að Ingólfur Gissurarson hafi hug á að setja hér upp þrekmiðstöð. Eftir því sem Skagablaðið kemst næst hefur Ingólfur hug á að setja þrekmiðstöð sína upp á svölum nýja íþróttahússins á Jaðarsbökkum. Ingólf ætti að vera óþarfi að kynna. Hann varð margfaldur ís- landsmeistari í sundi og íþróttamaður Akraness a.m.k. tvívegis. Stórijón varð í hörðum áreksbi Stórtjón varð í geysihörðum árekstri á mótum Skólabrautar og Vesturgötu á mánudagskvöld. Rákust þar saman Fiat Uno bifreið og önnur af gerðinni Fiat Polonez. ildrög árekstursins voru þau að Uno-bifreiðinni var ekið niður Skólabrautina á talsverð- um hraða, inn á Vesturgötuna í veg fyrir hina, sem einnig mun hafa verið á talsverðri ferð. Skipti engum togum að bílarnir rákust harkalega saman. Allir í bílunum voru fluttir á sjúkrahús en meiðsli reyndust minni en talið var. Þó handleggs- brotnaði bílstjóri Uno-bifreiðar- innar og einn farþegi hennar skarst á höfði.

x

Skagablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.