Skagablaðið - 12.10.1989, Page 6

Skagablaðið - 12.10.1989, Page 6
6 Skagablaðið Skallagrímur í heimsókn Skagamenn fá Skallagrím úr Borgarnesi í heimsókn í öðrum leik sínum í íslandsmótinu. Leikurinn verður annað kvöld og hefst kl. 20. Stutt er síðan Skagamenn léku æfingaleik við Skallagrím og sigr- uðu með talsverðum mun. Takist strákunum að ná jafn góðum leik og fyrir austan ættu þeir að vinna Borgnesingana. Skrifstofutækni T ölvufræðslunnar Þú stendur betur að vígi að loknu hagnýtu námi Með námi í skrifstofutækni nærð þú góðum tökum á tölvum og notkun þeirra. Þú kynnist bókfærslu, stjórnun og fleiri viðskiptagreinum, rifjar upp ýmislegt í íslensku og færð góða innsýn í viðskiptaensku. Námið tekur um 16 vikur. Kennt er á Akranesi tvö kvöld í viku og á laugardögum. Að námi loknu útskrifast þú sem skrifstofutæknir. Boðið er upp á afar hagstæð greiðslukjör. Innritun er þegar hafin. Hringdu í síma 91- 687590 og við sendum þér bækling. Tölvufræðslan Akraneskirkja Laugardagur 14. október Kirkjuskóli yngstu barnanna í safnaöarheimilinu Vinaminni kl. 13 í umsjón Axels Gústafssonar. Sunnudagur 15. október Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa fellur niður vegna hér- aðsfundar Borgarfjarðaprófastsdæmis. Mánudagur 16. október Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 18.30. Beðið fyrir sjúkum. Organisti: Einar Örn Einarsson. SÓKNARPRESTUR Steindóra Steinsdóttir G. Róbert Ingólfsson „Bræður eru bræðrum verstir," segir í gömlu máltæki en nú hefur komið á daginn að allt öðru máli gegnir um systur. „Systur eru systr- um bestar,“ væri nær að segja eftir að Steindóra Steinsdóttir hefndi ófara systur sinnar í getraunaleiknum um helgina. Haraldur Gylfason sá aldrei til sólar í viðureign sinni við Steindóru um helgina. Hann náði þó fimm réttum, einum minna en þegar hann lagði lrisi Dögg að velli um síðustu helgi. Þessir fimm dugðu skammt því Steindóra var á „tipparaskónum“ og náði í 7 rétta. Fyrir vikið ruddi hún Haraldi úr vegi „með stæl“. Nýi áskorandinn í getraunaleiknum er Guðmundur Róbert Ingólfs- son. Hann var ekki lengi að rumpa röðinni af. Lítum nánar á málið: Arsenal — Manchester City Charlton — Tottenham Coventry — Nottingham Forest Steindóra Róbert 1 1 2 X 1 1 Derby — Crystal Palace 2 1 Everton — Millwall 1 1 Luton — Aston Villa X X Norwich — Chelsea 2 2 QPR — Southampton X X Wimbledon — Liverpool 2 2 Brighton — Watford 1 2 Portsmouth — Blackburn 2 X Sheff. Utd. —West Ham 1 1 Sætur sigur á UIA austur á Héradi Meistaraflokkur Skagamanna gerði góða ferð austur á Hérað um helgina er liðið mætti UÍA ■ fyrsta leik sínum í vetur. Skaga- menn sigruðu örugglega í leikn- um, 66 : 55 eftir að heimamenn höfðu leitt lengstum í leiknum. Austfirðingarnir, sem tefla nú fram tveimur leikmönnum sem léku í Úrvalsdeildinni í fyrra, þeim Hreini Þorkelssyni og Kristjáni Rafnssyni, hófu leik- inn af miklum krafti og komust í 10 : 2 og síðan 16 : 9. Munurinn í leikhléinu var ekki nema eitt stig, 29 : 28, og er nokkuð var liðið á síðari hálfleik- inn var staðan orðin 41 : 31 fyrir heimamenn en þá sögðu Skaga- menn: Hingað og ekki lengra! „ Tvíefld trygging" VÁTRYQQINGAFÉLAQ ÍSLANDS Kirkjubraut 28 S 13388 & 13389 Á stuttum kafla röðuðu Skaga- menn niður körfum og áður en heimaliðið hafði náð að átta sig var munurinn orðinn 12 stig Skagamönnum í vil, 61 : 49! Lokatölur urðu svo 66 : 55. Að sögn Ragnars Sigurðsson- ar, formanns Körfuknattleiksfé- lags Akraness, kom þessi sigur skemmtilega á óvart. Liðin léku tvívegis í hitteðfyrra og þá sigr- aði UÍA í báðum leikjunum með nokkrum mun. „Við fórum aust- ur með það eitt í huga að tapa með sem allra minnstum mun þannig að sigurinn var kærkom- inn,“ sagi Ragnar. Þess má geta að einn helsti burðarás Skagamanna síðustu árin, Elvar Þórólfsson, leikur nú með Laugdælum. í hans stað hafa komikð tveir ágætir leik- menn sem styrkja liðið mikið. Stigahæstur Skagamanna var Jón Þór Þórðarson með 20 stig. Pétur Sigurðsson skoraði 15 stig, Kristján Ólafsson 9 og Jóhann Guðmundsson 9. / brennidepli Fullt nafn? Edda Hrafn- hildur Björnsdóttir. Fæðingardagur? 26. janúar 1959. Fæðingarstaður? Raufar- höfn. Fjölskylduhagir? Einhleyp og barnlaus. Bifreið? Volvo. Starf? Kennari. Fyrri störf? Það er of langt mál. Helsti veikleiki þinn? Óþol- inmæði. Helsti kostur þinn? Að hafa gaman af fólki. Uppáhaldsmatur þinn? Rjúpur. Versti matur sem þú færð? Gellur. Uppáhaldsdrykkur þinn? Kaffi og koníak. Uppáhaldstónlist? Reggae- tónlist. Uppáhaldsblað/tímarit/ bók? Allar góðar skáldsögur og Ijóð. Uppáhaldsíþróttamaður? Allir sem áhuga hafa. Uppáhaldsstjórnmálamað- ur? Kristín Halldórsdóttir. Uppáhaldssjónvarpsefni þitt? Fréttir og grínþættir. Leiðinlegasta sjónvarpsefni að þínu mati? Veit ekki, ég missi alltaf af því. Uppáhalds útvarps- og sjónvarpsmaður? Stefán Jón Hafstein. Uppáhaldsleikari? Það eru svo margir í uppáhaldi hjá mér. Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Þessu er ekki hægt að svara. Hvernig eyðir þú frístund- um þínum? í ferðalög þegar ég hef tækifæri til, svo er ffnt að lesa góða bók. Fallegasti staður á íslandi? Dimmuborgir í Mývatnssveit. Hvað metur þú mest í fari annarra? Einlægni og gott skap. Hvað angrar þig mest í fari annarra? Fúllyndi. Hvað líkar þér best við Akranes? Hvað fjaran er falleg. Hvað líkar þér verst við Akranes? Rokið. Hvað myndir þú vilja fá í afmælisgjöf? Góða myndavél. Hvað veitir þér mesta af- slöppun? Að hlusta á tónlist. Hvaða mál vilt þú að bæjar- stjórn leggi höfuðáherslu á? Öll mál sem gera samfélagið mannlegra. 1 W AUKUM ÖRYGGI ■ íl I VETRARAKSTRI1 1 ■ - NOTIIM ÖKIII jriSIN NÓV. ALLAN SÖLARHRINGINN FEBR. — Oar™

x

Skagablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.