Skagablaðið - 19.09.1991, Qupperneq 5
4
Skagablaðið
Skagablaðið
5
Fyrir nokkrum misserum kom franski
meistarakokkurinn Francois Fons fram
með þá hugmynd að Akranes yrði
„strompabær". Hugmynd Fons var, að
Akranes skapaði sér sérstöðu með því
að bæjarbúar máluðu reykháfa húsa
sinna í öllum regnbogans litum. Um leið
og þetta lífgaði upp á bæinn myndi
þetta vekja athygli og draga að ferða-
menn til þess að skoða reykháfana
marglitu.
Einhvern veginn var það svo, að hug-
myndin fékk lítinn hljómgrunn og mörg-
um fannst hún beinlínis út í hött. Ekki
skal lagður dómur á þessa hugmynd
hér. En nú er hins vegar svo komið, að
bæjarbúar eru — e.t.v. markvisst en þó
líklegar óafvitandi — á góðri leið með
að skapa Akranesi sérstöðu með skraut
legu litavali á húsum sínum.
Öllum ber saman um að hressa mætti
upp á miðbæ Akraness með einhverju
móti. Engan hefur þó eflaust órað fyrir
því að sú litadýrð, sem nú blasir við veg-
farendum, ætti eftir að líta dagsins Ijós.
Og reyndar er þetta ekki bundið við mið-
bæinn einan heldur hafa heilu fjölbýlis-
húsin og raðhúsalengjurnartekið stakka
skiptum. Litir eins og bleikt, blátt, fjólu-
blátt og grænt þykja nú ekki lengur neitt
tiltökumál.
Flestir eru eflaust sammála um að
fjölbreytt litaval á húsum og byggingum
bæjarins lífgi upp á tilveruna. A sama
hátt er meginþorri bæjarbúa því vafalít-
ið sammála, að ekki sé sama hvaða litir
verða fyrir valinu. Menn mála nefnilega
hús sín ekki nema á nokkurra ára fresti.
Óheppilegt litaval stingur því oftast í
augun lengi áður en úrbætur eru gerðar.
Bleikt og blátt þurfa ekki endilega að
vera bannorð í húsamálun en hætt er
við að þeir litir verði leiðigjarnir þegar til
lengdar lætur.
Skagablaðið skýrir frá því á forsíð-
unni í dag, að allt bendi til þess að ytri
leiðin, Hnausaskersleið, verði fyrir val-
inu við staðsetningu jarðganga undir
Hvalfjörð. Fyrir þá Akurnesinga, sem á
annað borð eru hlynntir þessari jarð-
gangagerð, eru þetta gleðitíðindi. Þessi
valkostur kemur Akranesi enn frekar til
góða en ef innri leiðin hefði orðið ofan á.
Eins og vel kom fram í „spurningu
vikunnar" í síðasta Skagablaði eru
skiptar skoðanir um ágæti þessara
framkvæmda. Þeir eru margir sem telja,
að göngin verði ekki til góðs heldur ills
fyrir Akranes og komi til með að breyta
bænum í enn eitt úthverfi Reykjavíkur.
Útilokað er að leggja dóm á það á
þessum tímapunkti hver áhrifin verða.
Víst er þó, að ætli Akurnesingar sér að
njóta góðs af göngunum þarf að vinna
markvisst að því að skapa hér skilyrði til
þess að jákvæð áhrif verði sem mest og
hin neikvæðu í lágmarki.
Sigurður Sverrison
Lausafjáruppboð
Að kröfu lögmanna, innheimtumanns ríkissjóðs
og tollstjórans á Akranesi verða eftirtaldir lausafjár-
munir boðnir upp og seldir á nauðungaruppboði, ef
til þeirra næst og viðunandi boð fást, sem haldið
verður í Lögreglustöðinni að Þjóðbraut 13, Akra-
nesi, föstudaginn 27. september 1991, kl. 14.15.
Ð 1 F RBIÐARNAR
A — 1096 AD-067 AE-850
AN-434 AB-345 AX-035
BD-604 BE-399 BH-254
BN-663 BÞ-089 DY-675
ED-168 EG-572 EH-369
EJ-085 ED-102 EP-126
EP-924 ET-112 EV-391
EX-054 EZ-585 EÞ-209
FE-241 FF-173 FI-894
FJ-083 FM-283 FN-854
FR-991 FV-814 FZ-640
FÞ-528 FÞ-849 GA-652
GB-811 GI-162 GJ-888
GM-283 GV-361 GX-412
GX-681 HB-498 HD-196
HF-766 HH-268 HI-626
HK-783 HL-053 HL-738
HR-822 HS-279 HZ-214
IL-529 IU-465 MB-292
R-28609 X - 6352 Y-18933
L A U S A F É:
Bílalyfta, sjónvarpstæki, húsgögn, frystikista, hraðbáturinn
Freyja.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn á Akranesi
Jón Ingi tvöfakfcir meistan
Jón Ingi Þorvaldsson varð tvö-
faldur Akranesmeistari í karate á
fyrsta Akranesmeistaramótinu i
greininni sem fram fór sl. laugar-
dag. Jón Ingi sigraði bæði í Kata
og Kumite í flokki 15 ára og
eldri. Keppendur á mótinu voru
alls 28 talsins.
neistari í Kata í flokki ungl-
inga (14 ára og yngri) varð
Gunnar Már Gunnarsson. Annar
varð Vilberg Jónsson og þriðji
Helgi Valdimarsson. í Kumite
sigraði Geir Guðjónsson. Annar
varð Auðunn Ómar Kristbjörns-
son og Ingólfur Ágúst Hreinsson
varð þriðji.
Sem fyrr segir sigraði Jón Ingi
í báðum flokkum fullorðinna. í
Kata hlaut Jóhanna Líndal silfur-
verðlaun og Valdimar Jónsson
brons. í Kumite komu silfurverð-
launin í hlut Ólafs Böðvarssonar
en bronsið fékk Kristinn Einars-
son.
í Kata fer keppni þannig
fram, að keppandi sýnir fyrir-
fram ákveðna röð hreyfinga.
Dæmt er eftir því hversu vel
hann gerir þær og hvort yfirleitt
er um að ræða réttar hreyfingar.
í Kumite keppa tveir innbyrðis
og reyna að komast innfyrir vörn
andstæðingsins. Með þeim hætti
safnar keppandi stigum sem síð-
an ráða úrslitum í viðureigninni.
Karatemenn vilja koma á
framfæri þökkum til Handknatt-
leiksfélags Akraness sem hliðr-
aði til æfingatímum svo mótið
gæti farið fram.
I lokin er rétt að minna á að
enn er möguleiki á að skrá sig á
byrjendanánskeið í karate sem
hefst á næstunni. Allar nánar
upplýsingar veita Sigurbjörg í
síma 12003 og Jóhanna í síma
11965.
Sundæfingar fyrir byvjendur
Þau börn og unglingar sem hafa áhuga á að leggja stund á sund-
æfingar í vetur geta nú kæst því Steve Cryer, aðalþjálfari
Sundfélags Akraness, ætlar að hefja þær iaugardaginn 28. sept-
ember næstkomandi kl. 9.30 í Jaðarsbakkalaug. Cryer sagðist
vonast til þess að sjá sem flest ný andlit.__
Sigurlið Skagamanna í 2. deild ásamt stjórn og þjálfurum.
Skaginn kvaddi með „stæl“
Verðlaunahafar á Akranesmeistaramótinu ásamt Sensei Poh Lim, yfirþjálfari Þórshamars, og Sensei Tom
Erik, sem þjálfar á Akranesi.
Skagamenn kvöddu 2. deildina
með „stæl“ á laugardaginn er
þeir tóku Selfyssingana í bakaríið
og sigruðu 5 : 0. Ekki þurfti
nema rúmlega hálftíma til þess
að gera út um leikinn því staðan
var orðin 5 : 0 eftir 34 mínútur.
Eftir það áttu Skagamenn skot í
stöng auk þess sem markvörður
Selfyssinganna varði vítaspyrnu!
Síðari hálfleikurinn var því
rólegur og Akurnesingar
létu sér nægja mörkin úr fyrri
hálfleik. Arnar Gunnlaugsson
skoraði þrennu í leiknum og því
18 alls í 2. deildinni í sumar. Það
er meira en markakóngar 2.
deildar hafa skorað frá því 1980,
jafnvel enn lengur. Haraldur
Ingólfsson og Þórður Guðjónsson
Æfingatafla Körfu-
knattleiksfélagsjns
Körfuknattleiksmenn bæjar-
ins eru nú komnir á fulla
ferð fyrir veturinn og eru æfingar
þegar hafnar. Æfingatafla vetrar-
ins lítur þannig út (allar æfingar í
íþróttahúsinu við Vesturgötu):
Meistaraflokkur karla: Mánu-
dagar kl. 21.30 — 22.30, miðviku-
dagar kl. 20.30 - 21.30, fimmtu-
dagar kl. 20.30-22.00, föstudag-
ar kl. 20.30 - 22.00.
Drengjaflokkur (f. ’74 og ’75):
Mánudagar kl. 20.30 - 21.30,
föstudagar kl. 18.30 - 19.30,
sunnudagar kl. 15 - 16. Þjálfari:
Jóhann Guðmundsson.
Unglingatlokkur kvenna (f.
‘74-‘77>: Mánudagar kl. 20.30 -
21.30, fimmtudagar kl. 19.30 -
20.30 sunnudagar kl. 15 - 16.
Þjálfari: Egill Fjeldsted.
7. flokkur karla (f. ’78 og ’79):
Mánudagar kl. 19.30 - 20.30,
fimmtudagar kl. 18.30 - 19.30,
föstudagar kl. 17.45 - 18.30,
sunnudagar kl. 14 - 15.
Minnibolti (bæði kyn f. '80 og
síðar): Mánudagar kl. 19.30 -
20.30, fimmtudagar kl. 18.30 -
19.30, föstudagar kl. 17.45 -
18.30, sunnudagar kl. 14 - 15.
GASS hefdur forystu
GASS - hópurinn heldur
ennþá naumri forystu í getrauna-
leik Knattspyrnufélags ÍA og
Körfuknattleiksfélags Akraness
þegar þremur vikum af fimmtán
er lokið. Hóparnir eru nú orðnir
13 talsins og fer nú hver að verða
síðastur að skrá sig ef menn vilja
eiga möguleika á þeim verðlaun-
um sem í boði eru.
Verðlaunin hafa verið ákveð-
in. Sá hópur sem sigrar fær í
sinn hlut helgardvöl að Hótel
Örk, þ.e. gistingu og morgun-
verð fyrir fjóra í tvær nætur auk
þrírétttaðs kvöldverðar annað
kvöldið og aðgöngumiða á dans-
leik í hótelinu.
Sem fyrr segir stendur hóp-
leikurinn hér á Akranesi í 15 vik-
ur og gildir skor 10 best vikn-
anna. Menn þurfa því ekki að ör-
vænta þótt ein og ein slæm vika
slæðist með.
GÁSS er sem fyrr segir á
toppnum með 30 rétta eftir 3
vikur. Magic Tipp og Ernir eru
með 29, Hafey 28 og Slúbbert og
Gosarnir 27. Þrír efstu hóparnir í
hópleik íslenskra getrauna eru
með 31 réttan leik en síðan koma
9 hópar með 30 rétta.
Karl Þórðarson
Anna Einarsdóttir
Karl Þórðarson komst ekki jafn auðveldlega frá viðureign sinni
við Önnu Einarsdóttur og Jónínu Víglundsdóttur helgina áður.
Jafntefli varð í viðureign þeirra, hvort um sig náði 7 leikjum
réttum.
Þessi árangur er meira en vel viðunandi þar sem úrslit margra
leikjanna voru snúin og komu jafnvel alhörðustu tippurum í
opna skjöldu. Karl og Anna verða því að reyna með sér öðru
sinni. Hér koma spár þeirra:
Karl Anna
Arsenal - — Sheff. Utd. 1 1
Aston Villa — Nottm. For. 1 1
Everton - — Coventry IX 1
Leeds — Liverpool 1X2 1X2
Notts Co — Norwich 1 IX
Oldham- — Crystal Palace 1 IX
QPR — Chelsea 1 2 2
Sheff. W . — Southampton 1 1
West Ham — Manch. City 2 X2
Wimbledon — Tottenham X2 X2
Ipswich - — Bristol C 1 1
Millwall - — Newcastle IX X
skoruðu sitt markið hvor í leikn-
um.
Lokastaðan í 2. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu varð þessi:
L U J T MörkStig
Akranes 18 14 1 3 55 :12 43
Þór 18 11 2 5 38:22 35
Keflavík 18 10 4 4 47:22 34
Grindavík 18 10 3 5 28:17 33
Þróttur 18 9 3 6 33:25 30
ÍR
Fylkir
Selfoss
Haukar
Tindastóll
Markahæstu Skagamenn urðu
þessir í sumar (bikarmörk aftan
við skástrik):
Arnar Gunnlaugsson 18/1
Þórður Guðjónsson 11
Opnunartímar
sundlauganna
BJARNALA UG:
Opiö er alla virka daga sem hér segir: Mánudaga til og með
föstudaga kl. 7.00 — 9.00 og 12.00 — 13.00.
Yfirhituð laug: Á miðvikudögum kl. 16.00 — 20.30 er
laugin hituð upp umfram það sem venja er (verður 32 — 33
°C í stað 28 — 29 °C). Þessir tímar eru mjög hentugir fyrir for-
eldra með ungabörn og aðra þá sem þurfa að komast í heitari
laug.
JAÐARSBAKKALA UG:
Opið frá kl. 7.00 — 21.00 virka daga. Laugardaga og
sunnudaga opið frá kl. 9.00 — 16.00.
Gufuböð, heitir pottar.
íþrótta- og æskulýðsnefnd
SÍM111100 (SÍMSVARI)
Lífið er
óþverri
(Life Stinks)
SÝND KL 21 í KVÖLD;
FIMMTUDAG, OG ANNAÐ
KVÖLD.
Bittu mig,
elskaðu mig
(Tie Me Up,
Tie Me Down)
SÝND KL 23.15 Á
FÖSTUDAG OG SUNNU-
DAG.
BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA.
Hans hátign
(King Ralph)
SÝND KL. 21 Á SUNNU-
DAG OG MÁNUDAG.
Paradísar-
bíóið
(Cinema Paradisio)
SÝND VEGNA FJÖLDA
ÁSKORANA KL. 21 Á
ÞRIÐJUDAGSKVÖLD. AÐ-
EINS PETTA EINA SINN!!!