Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.07.2019, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 11.07.2019, Qupperneq 8
Of fáir eru að nýta séreignar- sparnað, að mati Ólafs Sigurðs- sonar, framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs. Frá árinu 2009 hefur hlutfallið verið um 60 prósent laun- þega. Einungis 20 prósent þeirra sem greiða í séreignarsparnað nýta heimild til að greiða af húsnæðis- láni eða safna fyrir útborgun. Hann slær þann varnagla að mögulega hafi fjöldi erlends vinnuaf ls áhrif á hlutfall þeirra sem greiða í sér- eignarsparnað. „Það vekur sérstaka athygli hve fáir nýta sér heimild til að greiða séreignarsparnað inn á húsnæðis- lán. Það er mikil kjarabót því launþegar fá viðbótarframlag frá vinnuveitanda og sparnaðurinn fer skattfrjálst inn á höfuðstól láns- ins. Það má því líta á úrræðið sem launahækkun,“ segir hann. Greidd- ur er skattur af lífeyrissparnaði við útgreiðslu. Séreignarsparnaður er viðbótar- lífeyrissparnaður og séreign við- komandi. Launþegar leggja fyrir tvö til fjögur prósent af launum sínum og fá tveggja prósenta viðbótar- framlag frá vinnuveitanda. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra nýta nú um 30 þúsund manns heimild til að greiða inn á húsnæðislán eða safna fyrir útborgun með séreignarsparnaði. Þar af eru um 23 til 26 þúsund ein- staklingar sem nýta leiðina til að greiða inn á húsnæðislán en hinir eru að safna fyrir útborgun til íbúðarkaupa. Miðað við það nýta einungis um 15 prósent fólks á vinnumarkaði þessa leið. Frá árinu 2014 höfðu tæplega 56 þúsund einstaklingar einhvern tímann ráðstafað séreignarsparn- aði inn á húsnæðislán, samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra. Ólafur segir að um 120 þúsund einstaklingar greiði í séreign. Um 20 prósent þeirra nýta heimild til að greiða inn á fasteignalán en miðað við það hefur hlutfallið verið tæp- lega 50 prósent þegar best lét. Sam- kvæmt greinargerð með lagafrum- varpi sem á að framlengja úrræðið til ársins 2021 hafa Íslendingar nýtt 56 milljarða af séreignarsparnaði sínum til að greiða niður höfuðstól húsnæðislána sinna frá árinu 2014. Fram kom í skýrslu forsætisráðu- neytisins um höfuðstólslækkun húsnæðislána sem birt var árið 2013 að tekjur þeirra sem spara í séreignarlífeyrissparnaði væru mun hærri en hinna sem gerðu það ekki. „Tæplega 60 prósent þeirra sem ekki spara eru einhleypir meðan hlutfall einhleypra fasteignaeigenda í hópi þeirra sem spara er 30 prósent,“ segir í skýrslunni. Ríkisskattstjóri hafði ekki til reiðu upplýsingar um hvaða tekju- bil það sé sem nýti í minnstum mæli þann möguleika að greiða inn á húsnæðislán. Ólafur segir að skynsamlegt sé fyrir alla aldurs- hópa að greiða inn á lán eða nýta sér úrræðið til að safna fyrir innborgun á heimilið. Ríkisstjórnin ákvað að fram- lengja heimild til að ráðstafa sér- eignarsparnaði á húsnæðislán til ársins 2021. Ólafur bendir á að þeir sem vilja nýta úrræðið áfram verði sjálfir að sækja um það. „Lífeyris- sjóðum er ekki heimilt að gera það fyrir sjóðfélaga,“ segir hann. Í ljósi þess hve lágt hlutfall launa- manna safnar séreignarsparnaði vekur Ólafur athygli á að mikið framboð sé af sparnaðarleiðum. „Í boði er að greiða í 74 mismunandi séreignarleiðir hjá 20 vörsluaðilum. Hver og einn ætti að geta valið sér sparnaðarleið sem hentar,“ segir hann. helgivifill@frettabladid.is Segir of fáa nýta sér séreignarsparnað Um 60 prósent launþega greiða í séreignarsparnað og hefur hlutfallið lítið breyst síðasta áratug. Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs segir það vekja sérstaka athygli hversu fáir nýta sér heimild til að greiða inn á húsnæðislán. Ólafur Sigurðsson er framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 23-26 þúsund einstaklingar nýta sér heimild til að ráðstafa séreignarsparnaði sínum inn á húsnæðislán. Verktakafyrirtækið Jáverk hagnað- ist um 551 milljón króna á síðasta ári samanborið við 533 milljónir króna árið 2017. Eigið fé félagsins nemur tæplega 1,9 milljörðum króna. Tekjur Jáverks námu 5.196 millj- ónum króna og drógust saman um rúm tvö prósent. Rekstrargjöld drógust saman um þrjú prósent og námu 4.523 milljónum króna. Þá var fjöldi ársverka 77 samanborið við 80 á árinu 2017 Á síðasta ári lauk Jáverk við stór- fellda uppbyggingu fyrir Bláa lónið sem fól í sér byggingu hágæða- heilsulindar, stækkun lónsins og byggingu lúxushótels. Nýlega var greint frá því að verktakafyrir- tækið myndi sjá um byggingu á 72 íbúðum í Árskógum í Mjóddinni fyrir húsnæðissamvinnufélagið Búseta. Jáverk hefur skilað hagnaði öll ár frá stofnun fyrir utan eitt en fyrir- tækið er á 28. starfsári. Gylfi Gísla- son er framkvæmdastjóri fyrir- tækisins og jafnframt annar eigandi þess. – tfh Jáverk hagnast um 550 milljónir króna Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri og eigandi Jáverks. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Með vísan til laga nr. 145/1994 um bókhald, er fyrirhugað að halda próf til viðurkenn- ingar bókara 2019 sem hér segir: • Prófhluti I: Reikningshald og upplýsinga- tækni 10. október 2019 – prófið hefst kl. 13 og stendur til kl. 16. Eindagi greiðslu próf- gjalds er 1. október 2019. • Prófhluti II: Skattskil 21. nóvember 2019 – prófið hefst kl. 13 og stendur til kl. 16. Eindagi greiðslu prófgjalds er 7. nóvember 2019. • Prófhluti III: Raunhæft verkefni 14. des- ember 2019 – prófið hefst kl. 12 og stendur til kl. 17. Eindagi greiðslu prófgjalds er 2. desember 2019. Skráningu í öll próf fer fram samtímis (allir prófhlutar) og lýkur þann 9. september 2019. Skiptir ekki máli hvort próftaki ætlar að taka eitt próf eða öll. Ekki er hægt að skrá sig í próf eftir að skráningarfresti lýkur. Próftakar bera sjálfir ábyrgð á því að skrá sig í próf. Um efnissvið prófanna vísast til 3. gr. reglugerðar nr. 686/2015 um próf til viður- kenningar bókara og til prófefnislýsingar prófnefndar viðurkenndra bókara. Í henni er jafnframt útlistað hvaða hjálpargögn eru leyfileg í einstökum prófum. Prófefnislýs- inguna má nálgast á vefsvæði prófnefndar viðurkenndra bókara á heimasíðu atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytisins: https:// www.stjornarradid.is/verkefni/atvinnuvegir/ vidskipti/bokhald/vidurkenndir-bokarar/ Einkunnir í einstökum prófum eru gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0-10. Lágmarks- einkunn til að standast einstaka prófhluta er 5,0. Til þess að standast fullnaðarpróf þarf próftaki að hljóta a.m.k. 7,0 í vegna meðaleinkunn (lokaeinkunn) úr öllum próf- hlutum. Próftökugjald fyrir hvert próf er kr. 37.500. Eigi er skylt að standa fyrir prófi nema a.m.k. 30 þátttakendur hafi skráð sig í próf. Ef próf- tökugjald er ekki greitt á eindaga þá fellur niður próftökuréttur. Við skráningu skal staðfest að fullnægt sé skilyrðum 43. gr. laga nr. 145/1994 um að próftaki sé lögráða og hafi forræði á búi sínu (að búið hafi ekki verið tekið til gjaldþrota- skipta). Væntanlegir próftakar skulu skrá sig til prófs á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytisins www.anr.is eða á heimasíðu framkvæmdaraðila prófanna www.promennt.is Reykjavík, 9. júlí 2019 Prófnefnd viðurkenndra bókara Auglýsing um skráningu og próf til viðurkenningar bókara Job.is Þú finnur draumastarfið á MARKAÐURINN 1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 1 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 8 -8 F 7 C 2 3 6 8 -8 E 4 0 2 3 6 8 -8 D 0 4 2 3 6 8 -8 B C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.