Fréttablaðið - 11.07.2019, Side 10

Fréttablaðið - 11.07.2019, Side 10
Fæðingartíðnin hér á landi er nú í sögulegu lágmarki en hún er nú á milli 1,7 og 1,8 börn á ævi hverrar konu. Hún hef ur y f irleitt ver ið há á Íslandi miðað við önnur Evrópulönd, eða í kringum tvö börn á hverja konu frá því upp úr 1980,“ segir Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í félagssögu á menntavís- indasviði Háskóla Íslands, í samtali við Fréttablaðið. Hún segir að það megi í þessu samhengi þó ekki gleyma því að ástæðan fyrir því að íbúum hefur ekki fækkað, þrátt fyrir að fæðing- artíðni hafi lækkað, sé að fólk lifir miklu lengur í dag en áður. Lífslík- ur eru með þeim hæstu hér á landi. Árið 2018 var meðalævilengd karla 81,0 ár og meðalævilengd kvenna 84,1 ár á Íslandi. Hún segir að með tilliti til, sem dæmi, framleiðni sé það vissulega ókostur. Með því að reikna fram- færsluhlutfall [e. Dependecy ratio] sé hægt að sjá hversu margir aldr- aðir og börn eru að baki hverjum vinnandi einstaklingi. Hlutfallið fæst með því að reikna hlutfall fólks á eftirlaunaaldri plús börn af öllum vinnandi. Hér á Íslandi er hlutfallið 0,649. Sé hlutfallið 1 þýðir það að jafnmörg eru ekki vinnandi og þau sem eru vinnandi. Ólöf segir að ef litið er á fæð- ingartíðni með tilliti til þeirra lífs- gæða sem við lifum við og fram- leiðni í samfélaginu þá sé mögulega tilefni til að hafa áhyggjur af lækk- andi fæðingartíðni. Spurð hvort innf lutningur á fólki myndi leysa vandann segir Ólöf að í mörgum Evrópulöndum grundvallist hag- vöxtur að verulegu leyti á aðf luttu vinnuaf li. Þetta eigi augljóslega við um Ísland um þessar mundir. Það sé þó mikill misskilningur að fæð- ingartíðni hækki við það að inn- f lytjendum fjölgi, það er fólki ekki endilega ofarlega í huga að bæta við sig barni þegar það f lytji búferlum milli landa. Hér á landi eru f lestir innf lytjendur frá austanverðri Evrópu þar sem fæðingartíðnin sé mun lægri en hér á landi, innf lytj- endur hér á landi eignast þannig mun færri börn en Íslendingar. Hún segir að það sem myndi helst leiða til hækkaðrar fæðingar- tíðni, hér á landi, miðað við reynslu annarra landa, væri að hækka aftur fæðingarorlofsþakið og að lengja fæðingarorlofið og leitast við að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Hámarksgreiðsla í fæð- ingarorlofi var lækkuð verulega í kjölfar efnahagshrunsins 2008 en hefur nú verið hækkuð og stend- ur núna í 600 þúsund krónum. Fæðingar orlof er alls níu mánuðir, en félags- og barnamálaráð- herra tilkynnti fyrr á árinu að það yrði tíu mánuðir um næstu áramót. Ólöf segir að greiðslu- hámarkið geti skipt sköpum fyrir fólk. Sérstaklega þegar lit ið er t il þess að fólk eig nast a l men nt b ör n seinna um ævina og s é þá að eignast börn í miðjum starfs- frama. Þá finn- ist því síður eins og það geti lækkað r á ð s t ö f - u nar tek ju r. H e i l d a r - laun voru að meðaltali 721 þúsund ár ið 2018. Miðgildi var 632 þúsund og a lgeng u st u mánaðarlaun voru 550 til 600 þúsund í fyrra. Ólöf segir að þrátt fyrir að fæðingartíðni hafi lækkað hérlendis þá sé hún þó enn há í samanburði við fæðingar- tíðni annars staðar í Evrópu. Hún hafi lengi verið mjög lág í mörgum löndum í Evrópu og nefnir sem dæmi Þýskaland. Þar hafi fæð- ingartíðni dottið niður í 1,3 börn á ævi hverrar konur í kringum 1970. Það er áhugavert að þar hækkaði fæðingartíðnin fyrir nokkrum árum þegar Þjóðverjar breyttu fæðingarorlofslöggjöfinni að nor- rænni fyrirmynd. Á Portúgal, Spáni og Ítalíu sé hún afar lág, á bilinu 1,2- 1,3 og hafi verið þar síðan 1990. „Það er auðvitað engan veginn nóg til að viðhalda mannfjöld- anum. Þar hefur ævilengdin líka lengst þannig að sum þessara landa eru í talsvert miklum erfiðleikum,“ segir Ólöf. 4,5 Meðalaldur kvenna við fæð- ingu fyrsta barns hefur hækkað um 4,5 ár á 30 árum. Rík lönd að meðaltali 1,6 Meðaltekjulönd að meðaltali 2,3 Minna þróuð lönd 2,6 Minnst þróuðu löndin 4,0 Lægsta tíðni barneigna Suður-Kórea 1,1 Púertó Ríkó 1,22 Singapore 1,2 Grikkland 1,3 Spánn 1,33 Hæsta tíðni barneigna Kongó 5,9 Malí 5,9 Angóla 5,5 Nígería 5,4 ✿ Fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu n Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið. ✿ Lifandi fædd börn á ævi hverrar konu 2,5 2,0 1,5 Nýlega birti Hagstofan tölur um meðalævilengd Íslendinga og fer hún sífellt hækkandi. Árið 2018 var meðalævilengd íslenskra karla 81 ár en kvenna rúmlega 84 sem er með því hæsta í Evr- ópu. Á síðustu 40 árum hefur meðalævilengdin hækkað um 10 ár. Á sama tíma hefur frjósemi lækkað skarpt, úr 2,9 börnum á hverja konu í 1,7. Gefur því augaleið að þjóðin eldist hratt með tilheyrandi vandamálum. „Við erum ekki enn komin í vandræði út af þessu,“ segir Ólafur Þór Gunnarsson, þing- maður Vinstri grænna og öldrunarlæknir, í samtali við Fréttablaðið. „Við erum svo lánsöm að hafa lífeyriskerfi sem er að stærstum hluta fjármagnað af sparnaði einstaklinganna sjálfra. Þess vegna erum við ekki með alveg sömu vandamál og þar sem lífeyriskerfið er fjár- magnað með öðrum hætti.“ Það sem lendir á okkur er hins vegar að fjármagna heilbrigðisþjónustu fyrir þjóðina sem verður sífellt eldri. Bæði spítalaþjónustu og fjölgun hjúkrunar- rýma. „Eldra fólk er samt heilsuhraust- ara en áður,“ segir Ólafur. „Þau krónísku heilsufarsvandamál sem fylgja öldrun byrja nú seinna en áður. En fjöldinn sem þarf á heilbrigðis- þjónustu að halda mun samt aukast. Árið 2060 munu verða á þriðja tug þúsunda yfir 85 ára aldri.“ Lífeyrismálin hafa einnig verið til umræðu og nefnir þingmaðurinn Óli Björn Kárason vandann „tifandi tíma- sprengju“. Ólafur vill ekki ganga svo langt. „Þetta er alveg klár- lega úrlausnarefni sem við þurfum að finna lausn við. Umræðan um að seinka lífeyristökualdrinum hand- virkt var rædd í þingnefnd fyrir nokkrum árum en umræðan hefur ekki verið í gangi síðan. Þessi frétt Hagstofunnar er áminning til okkar um að við þurfum að hugsa um þessi mál,“ segir Ólafur. Nefnir hann að ein leiðin gæti verið að dreifa lífeyristökualdrin- um og það sé þegar hafið að ein- hverju leyti. Lausnin gæti verið að sumir taki lífeyri 65 ára eða yngri en aðrir jafnvel ekki fyrr en um 75 ára aldurinn. 67 ára viðmiðið hafi verið sett þegar fólk lifði skemur og var heilsuveilla en nú. Nokkrar leiðir til að rétta hlut- fallið af hafa verið nefndar. Ein er innflutningur vinnuafls og tekur Ólafur undir að hann sé nauðsynlegur í sumum geirum. Önnur er stytting menntunar en Ólafur telur hana ekki rétta. Frekar ætti að auka við endurmenntun og sveigjanleika. En hvað getum við gert til að fjölga barneignum? „Til dæmis lengja fæðingarorlofið sem við höfum verið að gera. Einnig að brúa umönnunarbilið frá lokum fæðingarorlofs til leikskóla og gera fólki kleift að sinna börnum, til dæmis þegar þau eru veik. Allt hefur þetta áhrif.“ Öldrun þjóðarinnar úrlausnarefni Bæta þurfi skilyrði til barneigna Lengja þarf fæðingarorlof, hækka hámarks- greiðslur og lækka leikskólaaldur vilji yfirvöld hækka fæðingartíðni á Íslandi. Fæðingartíðni er í sögulegu lágmarki á Íslandi en telst þó með hærra móti miðað við önnur ríki í Evrópu. Hvað er fæðingartíðni n Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið. Meðalævilengd n Árið 2018 var meðalævi- lengd karla 81,0 ár og meðalævilengd kvenna 84,1 ár á Íslandi. Frá árinu 1988 hafa karlar bætt við sig rúmlega sex árum og konur rúmlega fjórum í meðalævilengd. n Konur eru eldri þegar þær eignast fyrsta barn. n Hærra mennt- unarstig kvenna og meiri atvinnu- þátttaka. n Húsnæðis- vandi ungs fólks – býr lengur í for- eldrahúsum. Lovísa Arnardóttir lovisaa@frettabladid.is Birna Dröfn Jónasdóttir lovisaa@frettabladid.is Við erum ekki enn komin í vandræði út af þessu. Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir Ástæður fyrir lækkandi fæðingartíðni n Árið 2018 var frjósemi íslenskra kvenna 1,707 börn á ævi hverrar konu og hefur hún aldrei verið lægri frá því að mælingar hófust árið 1853. Árið 2017 var frjósemi 1,710 en það er næstlægsta frjósemi sem mælst hefur hér á landi. 2003 20181988 2,268 1,990 1,707 2018 28,2 ár 2008 26,4 ár 1998 25,1 ár 1988 23,7 ár TILVERAN 1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 1 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 8 -7 B B C 2 3 6 8 -7 A 8 0 2 3 6 8 -7 9 4 4 2 3 6 8 -7 8 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.