Fréttablaðið - 11.07.2019, Qupperneq 10
Fæðingartíðnin hér á landi er nú í sögulegu lágmarki en hún er nú á milli 1,7 og 1,8 börn á ævi hverrar konu. Hún hef ur y f irleitt ver ið
há á Íslandi miðað við önnur
Evrópulönd, eða í kringum tvö
börn á hverja konu frá því upp úr
1980,“ segir Ólöf Garðarsdóttir,
prófessor í félagssögu á menntavís-
indasviði Háskóla Íslands, í samtali
við Fréttablaðið.
Hún segir að það megi í þessu
samhengi þó ekki gleyma því að
ástæðan fyrir því að íbúum hefur
ekki fækkað, þrátt fyrir að fæðing-
artíðni hafi lækkað, sé að fólk lifir
miklu lengur í dag en áður. Lífslík-
ur eru með þeim hæstu hér á landi.
Árið 2018 var meðalævilengd karla
81,0 ár og meðalævilengd kvenna
84,1 ár á Íslandi.
Hún segir að með tilliti til, sem
dæmi, framleiðni sé það vissulega
ókostur. Með því að reikna fram-
færsluhlutfall [e. Dependecy ratio]
sé hægt að sjá hversu margir aldr-
aðir og börn eru að baki hverjum
vinnandi einstaklingi. Hlutfallið
fæst með því að reikna hlutfall
fólks á eftirlaunaaldri plús börn
af öllum vinnandi. Hér á Íslandi
er hlutfallið 0,649. Sé hlutfallið 1
þýðir það að jafnmörg eru ekki
vinnandi og þau sem eru vinnandi.
Ólöf segir að ef litið er á fæð-
ingartíðni með tilliti til þeirra lífs-
gæða sem við lifum við og fram-
leiðni í samfélaginu þá sé mögulega
tilefni til að hafa áhyggjur af lækk-
andi fæðingartíðni. Spurð hvort
innf lutningur á fólki myndi leysa
vandann segir Ólöf að í mörgum
Evrópulöndum grundvallist hag-
vöxtur að verulegu leyti á aðf luttu
vinnuaf li. Þetta eigi augljóslega við
um Ísland um þessar mundir. Það
sé þó mikill misskilningur að fæð-
ingartíðni hækki við það að inn-
f lytjendum fjölgi, það er fólki ekki
endilega ofarlega í huga að bæta við
sig barni þegar það f lytji búferlum
milli landa. Hér á landi eru f lestir
innf lytjendur frá austanverðri
Evrópu þar sem fæðingartíðnin sé
mun lægri en hér á landi, innf lytj-
endur hér á landi eignast þannig
mun færri börn en Íslendingar.
Hún segir að það sem myndi
helst leiða til hækkaðrar fæðingar-
tíðni, hér á landi, miðað við reynslu
annarra landa, væri að hækka aftur
fæðingarorlofsþakið og að lengja
fæðingarorlofið og leitast við að
brúa bilið milli fæðingarorlofs og
leikskóla. Hámarksgreiðsla í fæð-
ingarorlofi var lækkuð verulega í
kjölfar efnahagshrunsins 2008 en
hefur nú verið hækkuð og stend-
ur núna í 600 þúsund krónum.
Fæðingar orlof er alls níu mánuðir,
en félags- og barnamálaráð-
herra tilkynnti fyrr á árinu
að það yrði tíu mánuðir um
næstu áramót.
Ólöf segir að greiðslu-
hámarkið geti skipt
sköpum fyrir fólk.
Sérstaklega þegar
lit ið er t il þess
að fólk eig nast
a l men nt b ör n
seinna um ævina
og s é þá að
eignast börn í
miðjum starfs-
frama. Þá finn-
ist því síður
eins og það
geti lækkað
r á ð s t ö f -
u nar tek ju r.
H e i l d a r -
laun voru að
meðaltali 721
þúsund ár ið
2018. Miðgildi
var 632 þúsund
og a lgeng u st u
mánaðarlaun voru
550 til 600 þúsund í
fyrra.
Ólöf segir að þrátt
fyrir að fæðingartíðni
hafi lækkað hérlendis
þá sé hún þó enn há í
samanburði við fæðingar-
tíðni annars staðar í Evrópu.
Hún hafi lengi verið mjög lág í
mörgum löndum í Evrópu og nefnir
sem dæmi Þýskaland. Þar hafi fæð-
ingartíðni dottið niður í 1,3 börn á
ævi hverrar konur í kringum 1970.
Það er áhugavert að þar hækkaði
fæðingartíðnin fyrir nokkrum
árum þegar Þjóðverjar breyttu
fæðingarorlofslöggjöfinni að nor-
rænni fyrirmynd. Á Portúgal, Spáni
og Ítalíu sé hún afar lág, á bilinu 1,2-
1,3 og hafi verið þar síðan 1990.
„Það er auðvitað engan veginn
nóg til að viðhalda mannfjöld-
anum. Þar hefur ævilengdin líka
lengst þannig að sum þessara landa
eru í talsvert miklum erfiðleikum,“
segir Ólöf.
4,5
Meðalaldur
kvenna við fæð-
ingu fyrsta barns
hefur hækkað um
4,5 ár á 30 árum.
Rík lönd að meðaltali 1,6
Meðaltekjulönd að meðaltali 2,3
Minna þróuð lönd 2,6
Minnst þróuðu löndin 4,0
Lægsta tíðni barneigna
Suður-Kórea 1,1
Púertó Ríkó 1,22
Singapore 1,2
Grikkland 1,3
Spánn 1,33
Hæsta tíðni barneigna
Kongó 5,9
Malí 5,9
Angóla 5,5
Nígería 5,4
✿ Fjöldi lifandi fæddra
barna á ævi hverrar konu
n Helsti mælikvarði á frjósemi
er fjöldi lifandi fæddra barna
á ævi hverrar konu. Yfirleitt er
miðað við að frjósemi þurfi
að vera um 2,1 barn til að
viðhalda mannfjöldanum til
lengri tíma litið.
✿ Lifandi fædd börn á ævi hverrar konu
2,5
2,0
1,5
Nýlega birti Hagstofan tölur um meðalævilengd
Íslendinga og fer hún sífellt hækkandi. Árið 2018
var meðalævilengd íslenskra karla 81 ár en
kvenna rúmlega 84 sem er með því hæsta í Evr-
ópu. Á síðustu 40 árum hefur meðalævilengdin
hækkað um 10 ár. Á sama tíma hefur frjósemi
lækkað skarpt, úr 2,9 börnum á hverja konu í
1,7. Gefur því augaleið að þjóðin eldist hratt
með tilheyrandi vandamálum.
„Við erum ekki enn komin í vandræði út af
þessu,“ segir Ólafur Þór Gunnarsson, þing-
maður Vinstri grænna og öldrunarlæknir, í
samtali við Fréttablaðið. „Við erum svo lánsöm
að hafa lífeyriskerfi sem er að stærstum hluta
fjármagnað af sparnaði einstaklinganna sjálfra.
Þess vegna erum við ekki með alveg sömu
vandamál og þar sem lífeyriskerfið er fjár-
magnað með öðrum hætti.“
Það sem lendir á okkur er hins vegar
að fjármagna heilbrigðisþjónustu fyrir
þjóðina sem verður sífellt eldri. Bæði
spítalaþjónustu og fjölgun hjúkrunar-
rýma.
„Eldra fólk er samt heilsuhraust-
ara en áður,“ segir Ólafur. „Þau
krónísku heilsufarsvandamál
sem fylgja öldrun byrja nú
seinna en áður. En fjöldinn
sem þarf á heilbrigðis-
þjónustu að halda mun
samt aukast. Árið 2060
munu verða á þriðja tug
þúsunda yfir 85 ára
aldri.“
Lífeyrismálin hafa
einnig verið til umræðu
og nefnir þingmaðurinn
Óli Björn Kárason
vandann „tifandi tíma-
sprengju“. Ólafur vill ekki
ganga svo langt.
„Þetta er alveg klár-
lega úrlausnarefni sem
við þurfum að finna lausn
við. Umræðan um að seinka
lífeyristökualdrinum hand-
virkt var rædd í þingnefnd fyrir
nokkrum árum en umræðan
hefur ekki verið í gangi síðan.
Þessi frétt Hagstofunnar er
áminning til okkar um að við
þurfum að hugsa um þessi mál,“
segir Ólafur.
Nefnir hann að ein leiðin gæti
verið að dreifa lífeyristökualdrin-
um og það sé þegar hafið að ein-
hverju leyti. Lausnin gæti verið að
sumir taki lífeyri 65 ára eða yngri
en aðrir jafnvel ekki fyrr en um 75
ára aldurinn. 67 ára viðmiðið hafi
verið sett þegar fólk lifði skemur
og var heilsuveilla en nú.
Nokkrar leiðir til að rétta hlut-
fallið af hafa verið nefndar. Ein er
innflutningur vinnuafls og tekur
Ólafur undir að hann sé nauðsynlegur
í sumum geirum. Önnur er stytting
menntunar en Ólafur telur hana ekki rétta.
Frekar ætti að auka við endurmenntun og
sveigjanleika.
En hvað getum við gert til að fjölga
barneignum?
„Til dæmis lengja fæðingarorlofið
sem við höfum verið að gera. Einnig
að brúa umönnunarbilið frá lokum
fæðingarorlofs til leikskóla og gera
fólki kleift að sinna börnum, til
dæmis þegar þau eru veik. Allt
hefur þetta áhrif.“
Öldrun þjóðarinnar úrlausnarefni Bæta þurfi
skilyrði til
barneigna
Lengja þarf fæðingarorlof, hækka hámarks-
greiðslur og lækka leikskólaaldur vilji yfirvöld
hækka fæðingartíðni á Íslandi. Fæðingartíðni
er í sögulegu lágmarki á Íslandi en telst þó með
hærra móti miðað við önnur ríki í Evrópu.
Hvað er fæðingartíðni
n Helsti mælikvarði á
frjósemi er fjöldi lifandi
fæddra barna á ævi
hverrar konu. Yfirleitt er
miðað við að frjósemi
þurfi að vera um 2,1
barn til þess að viðhalda
mannfjöldanum til lengri
tíma litið.
Meðalævilengd
n Árið 2018 var meðalævi-
lengd karla 81,0 ár og
meðalævilengd kvenna
84,1 ár á Íslandi. Frá árinu
1988 hafa karlar bætt við
sig rúmlega sex árum og
konur rúmlega fjórum í
meðalævilengd.
n Konur eru
eldri þegar
þær eignast
fyrsta barn.
n Hærra mennt-
unarstig
kvenna og
meiri atvinnu-
þátttaka.
n Húsnæðis-
vandi ungs
fólks – býr
lengur í for-
eldrahúsum.
Lovísa Arnardóttir
lovisaa@frettabladid.is
Birna Dröfn Jónasdóttir
lovisaa@frettabladid.is
Við erum ekki
enn komin í
vandræði út af þessu.
Ólafur Þór
Gunnarsson
öldrunarlæknir
Ástæður fyrir lækkandi fæðingartíðni
n Árið 2018 var frjósemi
íslenskra kvenna 1,707 börn
á ævi hverrar konu og hefur
hún aldrei verið lægri frá því
að mælingar hófust árið 1853.
Árið 2017 var frjósemi 1,710 en
það er næstlægsta frjósemi
sem mælst hefur hér á landi.
2003 20181988
2,268 1,990 1,707
2018 28,2 ár
2008 26,4 ár
1998 25,1 ár
1988 23,7 ár
TILVERAN
1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
8
-7
B
B
C
2
3
6
8
-7
A
8
0
2
3
6
8
-7
9
4
4
2
3
6
8
-7
8
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K