Fréttablaðið - 11.07.2019, Síða 12

Fréttablaðið - 11.07.2019, Síða 12
Danir kenna ekki bara kynfræðslu til að forðast að eignast börn heldur hvernig skuli eignast þau. Japanska ríkið stendur fyrir stefnu- mótanálgun fyrir pör. Teitur Guðmundsson læknir Arnar Halldórsson „Ég á fjóra stráka. Á fjögurra ára afmæli sínu átti sá elsti þrjá yngri bræður,“ segir Arnar Hall- dórsson kerfisstjóri, en hann og Jóna, konan hans, eignuðust fjóra stráka á fjórum árum. „Ég var 24 ára þegar sá elsti fæddist. Við höfðum bæði lokið námi og ákváðum að nú stæði vel á að hefja barneignir. Hinir komu svo í kjölfarið, ekki endilega fyrir fram skipulagðar meðgöngur, en allir velkomnir. Vinnufélagarnir voru farnir að kalla mig Barnar því frúin var „alltaf“ ófrísk,“ segir Arnar kíminn og bætir við að líf þeirra hjóna hafi breyst mikið með tilkomu barnanna. „Þegar maður eignast barn þá breytist allt. Nú ertu farinn að bera ábyrgð á annarri manneskju og sinna henni á allan hátt. Í okkar tilfelli reyndi mikið á samvinnu eftir því sem fjölgaði í hópnum. Allar daglegar athafnir snerust um að koma þessum drengjum til manns, og sem betur fer nutum við dyggrar aðstoðar fjölskyldna okkar þegar á þurfti að halda,“ segir Arnar. Hann er sjálfur elstur fjögurra systkina og var tólf ára þegar það yngsta fæddist, svo fátt kom honum á óvart þegar fyrsti sonurinn fæddist. „Drengurinn var meðfærilegur og auðvelt að grípa hann með í heimsóknir til fjölskyldu og kunningja. Það varð þyngra í vöfum þegar bættist í hópinn, enda segir gamalt orðatiltæki: „Eitt er ekki neitt en tvö eins og tíu.“ En þegar þeir voru orðnir fjórir þá komst ég að því að maður var kominn út fyrir normið hvað varðar stærð á bíl og húsnæði,“ segir Arnar. Margt hefur breyst frá því að synir Arnars komu í heiminn en hann átti ekki rétt á fæðingarorlofi líkt og feður í dag. „Ég nýtti sumarfríin sem slíkt og naut velvildar hjá yfir- manni við að hliðra því til eins og mér hentaði. Ég var með iðnmenntun og farinn að vinna við mitt fag.“ Halldóra Vattnes Halldóra Vattnes Kristjáns- dóttir snyrtifræðingur er þrítug móðir tveggja drengja, Fjölnis Hrafns sjö ára og Ágústs Ægis fjórtán mánaða. Hún hafði alltaf hugsað sér að eignast börn en þegar systur hennar eignuðust sín börn jókst löngun hennar til þess og hún sló til. „Þegar ég eignaðist fyrri strákinn varð ég bara ólétt og það var einhvern veginn ekkert mál en það var aðeins erfiðara að verða ólétt af þeim yngri,“ segir Halldóra, en þegar kom að því að eignast barn númer tvö komst hún að því að hennar biði stórt verkefni. „Ég lenti í því að missa fóstur nokkrum sinnum sem hafði þær afleiðingar að ég þurfti að fara í glasafrjóvgun til þess að eignast hann. Ég segi stundum að þetta hafi verið fjall sem við þurftum að klífa og svo þegar maður er kominn á toppinn þá fær maður verðlaunin í fangið,“ segir Halldóra. „Lífið varð einhvern veginn miklu skemmtilegra eftir að ég eignaðist börn. Það myndast meiri regla og rútína og þá ein- hvern veginn líður manni betur, þó að auðvitað geti þetta verið erfitt. En það sem breyttist mest er að maður hefur alltaf einhvern hjá sér,“ segir Hall- dóra. Hún gæti vel hugsað sér að eignast fleiri börn og stefna hún og unnusti hennar að því að bæta við þriðja barninu á næsta ári. „Við eigum eftir í frysti og ætlum að láta reyna á það eftir að við erum búin að gifta okkur. Við ætlum að gifta okkur í ágúst á næsta ári, svo þá athugum við hvort sá frostpinni virki,“ segir Halldóra og brosir. Salka Guðmundsdóttir „Það kom mér á óvart hvað barnið fæðist með sterkan kar- akter, maður er allt í einu með einhverja týpu í fanginu og hugsar bara: Jæja, hvað vilt þú, litla manneskja?“ segir Salka Guðmundsdóttir leikskáld. Salka er 37 ára og eignaðist nýlega sitt fyrsta barn. Sonur hennar er tæplega eins árs en hún eignaðist hann ein eftir að hafa langað að eignast barn lengi. „Ég á son minn einsömul svo það var eins planað og hugsast getur. Mig hefur alltaf langað að eignast börn, það skipti mig miklu máli,“ segir Salka. „Ég sef minna, hlæ meira, skríð meira um gólf, gleðst oftar, syng meira og hræðist loftslagsbreytingar enn þá meira fyrir hönd framtíðarkyn- slóða,“ segir Salka og bætir við að hún muni bíða með frekari barneignir þar til sonur hennar verður aðeins eldri og hún betur sofin. Þær konur sem eignast börn einar, líkt og Salka, fá níu mánuði í fæðingarorlof sem er jafn langur tími og orlof tveggja foreldra sem eignast barn saman. „Fæðingarorlofið er náttúrlega eins og eitthvert grín og alltof stutt, ég réði illa við þær aðstæður ef ég byggi ekki í foreldrahúsum fyrsta ár barnsins, með eigin íbúð í út- leigu,“ segir Salka. Hún segir einnig að fjár- hagur og öryggi hafi haft áhrif á ákvörðun hennar að eignast barn. „Ég veit ég hefði alltaf reynt að eignast barn á ein- hverjum tímapunkti en það hjálpaði vissulega til að ég var komin á þann stað í lífinu að hafa örlítið fjárhagslegt svig- rúm og var ekki óörugg að fara af vinnumarkaði um tíma, búin að stimpla mig ágætlega inn þar,“ segir Salka að lokum.   Berglind Rún Torfadóttir „Ég er yngst fjögurra systkina og ég ætlaði alltaf að eiga fjögur börn sjálf en það hefur svolítið breyst í dag og mér finnst ólíklegt að það gerist,“ segir Berglind Rún Torfadóttir verkefnastjóri. Hún eignaðist Ernu Eiri dóttur sína þegar hún var tvítug. Berglind hafði ekki lagt á ráðin að eignast barn svo ung að aldri og segir að koma Ernu í heiminn hafi breytt lífi hennar mikið. „Dóttir mín kom inn í líf mitt á hárréttum tíma og breytti því til hins betra. Ég er þakklát fyrir þennan snilling á hverjum degi. Í dag get ég ekki ímyndað mér lífið án þess að eiga barn. Það fyllir lífið af svo mikilli gleði og ást.“ Erna fæddist á tuttugustu og sjöttu viku meðgöngu og var það mikið áfall fyrir Berglindi. „Mér datt ekki í hug að það myndi gerast, en það er víst alls ekki alltaf þannig að maður gangi með barn í 40 vikur og fari svo með það strax heim. Allavega ekki í mínu tilfelli sem var mjög erfitt. En ég hafði ekki hugmynd um hvað það var að eiga barn áður en ég varð mamma svo ég var ekki með neinar væntingar eða fyrir fram ákveðnar skoðanir, ég bara vissi ekki að það væri hægt að elska svona mikið,“ segir Berglind. Þegar Erna fæddist segir Berglind að það að vera móðir hafi verið mikil hvatning fyrir hana til að gera vel í lífinu. Hún hóf að mennta sig og hefur nú sex árum síðar lokið meist- aragráðu í verkefnastjórnun. „Lengi vel var ég einstæð móðir og fjárhagurinn var ekki svakalega góður, verandi námsmaður á námslánum í hlutastarfi, að reyna að fram- fleyta okkur mæðgum var stundum smá púsl. En fyrir utan það hentaði mér vel að vera í háskóla með lítið barn, maður getur stjórnað tíma sínum að mörgu leyti sjálfur þegar maður er í námi svo þegar maður byrjar að vinna 8-16 vinnu þá sér maður hvað það er næs að vera í skóla. En ég er líka mjög heppin með foreldra. Þau hafa hjálpað mér mikið, nenna endalaust að passa,“ segir Berglind brosandi að lokum. Barn breytir öllu Fjórir ólíkir einstakl- ingar ræddu við Frétta- blaðið um barneignir, foreldrahlutverkið og þær breytingar sem verða þegar ný mann- eskja bætist í heiminn. Það er talsverð umræða um það í vest-rænum heimi að samsetning þjóða er að breytast, fjölgun aldraðra er þar hluti af því sem nefnt er og lækkandi fæðingartíðni kvenna almennt. Slíkt hið sama á einnig við á Íslandi. Frjó- semi er mæld sem fjöldi lifandi fæddra barna á æviskeiði konu og er talið að sú tala þurfi að vera í kringum 2,1 til að viðhalda mannfjölda og sam- setningu þjóðar. Íslendingar hafa löngum státað af einni hæstu tíðni í Evrópu en það er að breytast og árið 2018 var sögulega lægsta fæðingartíðni frá upphafi mælinga árið 1853 eða 1,7. Meðalaldur mæðra hefur einnig hækkað og er hvort tveggja áhyggjuefni víðar en hérlendis. Þær vangaveltur sem hafa komið fram sem skýra eiga þessar breytingar eru vissulega að stóru leyti tengdar samfélagsgerð. Mikil breyting hefur orðið á umhverfi kvenna og karla auðvitað á síðast- liðnum áratugum í þessa veru, bæði hafa samfélög líkt og okkar aukið samtryggingu og er það síður nauðsynlegt að treysta á fjölskyldu í starfi, leik, veikindum og umönnun aldraðra. Aukin menntun kvenna, þátttaka í atvinnulífinu og breytingar í aldri einstaklinga þegar þeir taka sig saman um að stofna fjölskyldu eru líka skýringar. Almennt má segja að við séum eldri en áður þegar slíkar ákvarðanir eru teknar og með auknum aldri fylgir minni frjósemi almennt. Möguleikar á barneignum og stuðningi eru með því besta sem gerist í heiminum á Íslandi, það má þó alltaf gera betur og eru þættir eins og fæðingarorlof, aðgengi að leikskóla, búsetuúr- ræði og stuðningur í veikindum barna gagnvart atvinnuveitendum mjög stórir þættir í ákvörðun- artöku. Víða erlendis eru þjóðir að gera breytingar og reyna að hífa upp frjósemistölur með því að bjóða t.d. ókeypis leikskólapláss, niðurgreiðslur hvers konar á þjónustu og búsetu, sums staðar eru greiddar þóknanir fyrir að eiga fleiri börn svo dæmi séu tekin. Í Singapúr er lægsta fæðingartíðni í heimi og þar minnir ríkið þegna sína á skyldur sínar innan sem utan svefnherbergis. Danir kenna ekki bara kynfræðslu til að forðast að eignast börn heldur hvernig skuli eignast þau. Japanska ríkið stendur fyrir stefnumótanálgun fyrir pör og ýtir undir barneignir, meira að segja Kínverjar hafa aflétt banni við eins barns reglu en gengur brösug- lega að hækka frjósemistölur. Þessi hluti vandans er fyrst og fremst samfélags- legur og pólitískt úrlausnarefni að eiga við . Hinn læknisfræðilegi veruleiki er sá að eftir því sem konur eldast þá minnka möguleikar þeirra til að eiga börn. Þá koma til sjúkdómar ýmiss konar sem hafa orðið algengari og heimfæra má á umhverfi og aðstæður einnig að hluta. Þeir tengjast streitu, álagi og kvíða sem hafa mikil áhrif á frjósemi. Talið er að allt að 10-18% para eigi í vandræðum með barneignir. Eru þar truflanir bæði karla og kvenna sem hafa áhrif. Framleiðsla og egglos kvenna við marga sjúkdóma er skert, hið sama gildir um sæðisframleiðslu karla. Sjúkdómar sem hafa áhrif á hormónaframleiðslu, kynsjúkdómar, lífsstíls- sjúkdómar eins og sykursýki, offita, áfengis- og lyfjanotkun eru allt þættir sem hafa neikvæð áhrif á getu okkar til að eignast börn. Við þurfum að snúa þessari þróun við og hlúa að ungu fólki sem er reiðubúið og skapa því umhverfi og aðstæður. Einstaklingarnir verða einnig að axla sína ábyrgð á þeim fjölmörgu þátt- um sem leitt geta til skertrar frjósemi þeirra og tengjast með beinum og óbeinum hætti lifnaðarháttum þeirra. Sameigin- legt átak í þessu mun vonandi skila okkur aftur í fremsta sæti meðal vestrænna þjóða. Fleiri ástarvikur eins og á Bolungarvík, takk! Frjósemi kvenna og fæðingartíðni TILVERAN 1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 1 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 8 -6 7 F C 2 3 6 8 -6 6 C 0 2 3 6 8 -6 5 8 4 2 3 6 8 -6 4 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.