Fréttablaðið - 11.07.2019, Page 14
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Það er ekki oft sem verksmiðja nær að fanga athygli manns eða að bygging smellpassi inn í umhverfið. Eina slíka er þó að finna í Ingólfsfirði á Ströndum sem er 8 km langur og 1½ km breiður fjörður milli Munaðarness og Seljaness. Verksmiðjan
stendur á Eyri við austanverðan fjörðinn en þangað
er aðeins 10 mínútna keyrsla frá Norðurfirði. Á
leiðinni býðst eitt fallegasta útsýnið til Drangaskarða
en úr fjarlægð líkjast þau helst neðri skolti í risaeðlu.
Í næsta nágrenni Ingólfsfjarðar eru síðan fjalls-
toppar eins og Glissa (718 m), Kálfatindur (646 m) og
Eyrarfell (634 m) sem setja sterkan svip á umhverfið.
Ingólfsfjörður hefur verðið töluvert í umræðunni
undanfarið, enda liggur eftir honum frekar frum-
stæður vegur út í Ófeigsfjörð þar sem stendur til
að virkja stærsta vatnsfall Vestfjarða, Hvalá. Liður
í þeirri framkvæmd er lagning nýs vegar í hlíðinni
ofan verksmiðjunnar og er hugmyndin að hann komi
í stað gamla vegarins sem beinlínis liggur í gegnum
gömlu verksmiðjubyggingarnar, og því skemmti-
legur sem slíkur. Þessi fyrirhugaða vegaframkvæmd
mun gjörbreyta ásýnd Ingólfsfjarðar og trufla það
jafnvægi sem ríkir milli einstakrar náttúru fjarðarins
og yfirgefnu verksmiðjunnar sem bæði ferðamenn
og draugar hafa tekið ástfóstri við. Það voru Norð-
menn sem hófu síldarsöltun í Ingólfsfirði upp úr 1915.
Stuttu síðar tóku hérlendir athafnamenn við og í
kringum 1919 var síld söltuð víðs vegar við fjörðinn.
En skjótt skipast veður í lofti og sama haust varð
gífurlegt verðfall afurða, oft kallað krakkið, sem varð
til þess að síldarsöltunarfyrirtæki fóru á hausinn. Á
næsta áratug byggðust upp nýjar en tiltölulega litlar
síldarbræðslur við Ingólfsfjörð en á árunum 1942-
1944 reisti Ingólfur hf. stóra síldarverksmiðju á Eyri
sem enn stendur. Starfsemi verksmiðjunnar stóð
þó ekki í mörg ár því síldveiðar í Húnaflóa brugðust
og árið 1952 var starfsemin lögð niður. Það er óhætt
að mæla með heimsókn í Ingólfsfjörð en sé
ferðinni heitið í Ófeigsfjörð er tilvalið að
skoða verksmiðjuna í Ingólfsfirði á leiðinni.
Einnig bjóðast skemmtilegar göngu-
leiðir í Ingólfsfirði, m.a. yfir í Ófeigs-
fjörð, en þaðan má halda göngunni
áfram norður á Hornstrandir.
Á leiðinni í Ingólfsfjörð býðst ótrúlega fallegt útsýni til Drangaskarða. MYND/ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON
Gamla síldar-
verksmiðjan í
Ingólfsfirði er
mikið augna-
yndi. MYND/
TÓMAS GUÐ-
BJARTSSON
Útsýni út Ingólfsfjörð sem er kenndur við sinn fyrsta ábúanda, Ingólf Herröðarson. MYND/ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON
Síldarminjar
í friðsælum
Ingólfsfirði
TILVERAN
1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
8
-7
6
C
C
2
3
6
8
-7
5
9
0
2
3
6
8
-7
4
5
4
2
3
6
8
-7
3
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K