Fréttablaðið - 11.07.2019, Side 26
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Ýkja til að sjást á sviðinu
Katla er þekkt
fyrir að vera
með mikla
og áberandi
förðun.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Dragdrottningar eru oft með
nokkur gerviaugnhár í einu.
Þökk sé vinsældum drags er fólk
orðið djarfara í förðun og fatavali.
Draglistin á sér lengri rætur í sögunni heldur en margir gera sér grein fyrir. Katla Ein-
arsdóttir förðunarmeistari hefur
starfað með draglistamönnum á
Íslandi síðastliðin 25 ár. Katla segist
hafa lesið í ýmsum bókum um drag
að dragið komi frá þeim tíma sem
Shakespeare var uppi, en þá máttu
konur ekki stíga á svið og því voru
karlar látnir leika kvenhlutverk.
„Þaðan kemur skammstöfunin,
„dressed as a girl“ eða drag. Drag
er í grunninn leiklistarform,“ segir
Katla.
Tískan hermir eftir dragi
Það er ekki að ástæðulausu sem
draglistafólk er oftast með ýkta
förðun. Á sviðinu eru sterk ljós
notuð og það þarf að gæta að því að
áhorfendur á aftasta bekk sjái eitt-
hvað. Andlit og svipbrigði sýningar-
fólks geta týnst ef förðunin er ekki
nógu ýkt, hvort sem um er að ræða
dragsýningar eða ekki.
Draglistafólk hefur haft marg-
breytileg áhrif á tískustrauma.
Katla segir að oft taki draglistafólk
tískufyrirbrigði eða gamla leikhús-
tækni í förðun og ýki hana. „Svo er
tískubransinn að horfa á dragið og
herma eftir því. Þannig að þetta er
eiginlega hringrás.“
Það má segja að draglistafólk hafi
óbeint komið því í tísku að skyggja
andlitið, eftir að Kardashian-kon-
urnar fóru að sjást á miðlum með
slíka förðun. Margir förðunar-
fræðingar eru ósammála um ágæti
þess að skyggja andlitið í daglegri
förðun, enda kemur sú tækni úr
dragheiminum og þessi förðunar-
tækni er mjög ýkt til að virka á sviði.
„Ég skil það alveg og er sammála,
verandi förðunarmeistari sjálf.“
Veita förðunarfræðingum
Kardashian-systra innblástur
Kötlu finnst spennandi að heyra
hvað stór nöfn í förðunarlistinni
segja um þessa tækni og bera
saman hvað poppkúltúr förðunar-
fræðingum finnst. „Það eru þeir sem
eru með Instagram- eða YouTube-
síður og eru að farða raunveruleika-
stjörnur. Þeir eru eiginlega jafn
frægir og stjörnurnar sjálfar og nota
þessa tækni mikið.“
Ástæðan fyrir því að þessi tækni
er svona vinsæl meðal förðunar-
fræðinga raunveruleikastjarna
er sú að stjörnurnar eru eltar af
hágæðamyndavélum daginn inn og
út. Förðunarfræðingar Kardashian-
kvenfólksins eru fullmeðvitaðir
um að skyggingin kemur úr drag-
listinni að sögn Kötlu. „Þær þurfa
svona mikla förðun til að virka
eðlilegri í mynd. Við hin labbandi
út í búð eða farandi í Kringluna
þurfum ekki jafn þykkt og mikið
lag af farða.“ Þó getur fólk notað
þessa tækni dagsdaglega, en ekki
með jafn ýktum hætti. „Förðunar-
fræðingar í tískubransanum nota
þessa tækni líka en ekki í eins
ýktum stíl.“
Ef allir væru með fimm lög af
förðun dagsdaglega þá litu allir út
eins og dragdrottningar. „Það þarf
að finna meðalveginn.“ Tilgangur-
inn með daglegri förðun er kannski
ekki að fólk taki bara eftir hvað
förðunin er flott heldur hvað maður
sjálfur er flottur. Sjálf notar Katla
ekki fimm lög af farða á venjulegum
degi. „Ég skal alveg vera með fullt af
áberandi förðun, ég er alveg þekkt
fyrir það. En ég er ekki með þykkt
og mikið lag. Það er alltaf hægt að
blanda förðuninni miklu betur
þegar maður er ekki uppi á sviði
með mörg hundruð þúsund mega-
vött af ljósi framan í sér.“
Af hverju ekki að leika sér
Katla segir að draglistafólk hafi
sérstaklega haft áhrif á förðunina
en líka hárgreiðslu og klæðnað sem
er oft ekki síður í ýktum stíl. „Þú
getur hreinsað förðunina af og litað
yfir hárið, og af hverju ekki að leika
sér með það.“ Sú óskrifaða regla að
bara megi leggja áherslu á eitt atriði
í einu þegar kemur að fatavali og
förðun er líka að detta út með drag-
inu, enda er oft lögð áhersla á öll
atriðin meðal draglistafólks. „Fólk
er farið að þora að leggja áherslu á
fleiri hluti, vera með geðveikt hár,
augu, munn og fullt af skarti. Fólk er
farið að leika sér aðeins meira með
hlutina.“
Tískan leitar í jaðarinn
Það kemur Kötlu ekkert á óvart að
dragið hafi áhrif á tísku. „Tískan
leitar oft í jaðarinn,“ önnur dæmi
en drag eru pönkið, diskóið og
rappið. „Tískan leitar í það sem er á
jaðrinum en er að stækka og verða
vinsælt.“
Þó dragið sé að komast í almenna
tískustrauma er það þó bara einn
hluti draglistarinnar. „Það er dragið
sem við sjáum í Rue Paul’s Drag
Race. Margir innan draglistarinnar
segja að dragdrottningarnar þar séu
eiginlega bara sendar út á færibandi
því þær eru margar svo svipaðar.
Þær eru með svipað lúkk, fataefni
og pælingar, en keppnin í sjónvarps-
þáttunum er líka mjög fastmótuð
og strangar reglur um í hverju þær
mega keppa í og hvernig þær mega
performa.“
Á móti því kemur hverfisdraglist-
in sem á svið á minni skala og meira
listfrelsi. „Það er enn á jaðrinum og
dragdrottningarnar þar eru ekkert
endilega allar með fimm hárkollur
og andlitsskyggðar í drasl.“
Dragsúgur hefur verið mest
áberandi í dragsenunni á Íslandi
með fjölbreyttum mánaðarlegum
sýningum. Þar koma fram drag-
drottningar, non binary listamenn
og dragkóngar til dæmis. Katla segir
að aðdáendahópur íslensku drag-
listamannanna sé að stækka og hún
hefur fulla trú á að íslenska dragið
verði enn vinsælla.
Drag er dýrt
Þegar Dragsúgur byrjaði að sýna var
fyrst ekki áætlað að halda mánaðar-
legar sýningar, en úr því að fyrsta
sýningin gekk svo vel hafa sýning-
arnar haldið áfram.
Sýningar Dragsúgs hafa selst
upp flest öll kvöld og fólk í stórum
hópum farið að kaupa miða í for-
sölu. „Það er mögnuð breyting á
Íslandi. Það er auðvitað oft uppselt
á stóra viðburði eins og jólatón-
leika eða þegar einhverjar erlendar
stórstjörnur koma, en það að
mánaðarleg sýning á Gauknum
með draglistamönnum sé svona oft
uppseld og geti selt nánast allt í for-
sölu er yndislegt.“
Hér á landi eru draglistamenn
enn að stíga fyrstu skrefin í tísku-
mótuninni hjá sjálfum sér að sögn
Kötlu. „Það er rosalega dýrt að vera
í dragi og það er ekki vel borgað
nema hjá örfáum.“ Þess vegna byrja
margir draglistamenn á því sem er
auðveldara og ódýrara. Þá hentar
betur að vera með áberandi förðun
og hár, en brjáluð föt koma seinna.
Þó eru nokkrir draglistamenn
byrjaðir að hafa áhrif á fatatísku hér
á landi. Sumar dragdrottningarnar
og dragkóngar sem eiga sterkan
aðdáendahóp hafa verið með fata-
sölu nokkrum sinnum. Katla segir
að þá hafi fullt af aðdáendum drag-
listafólksins mætt til geta klæðst
þeirra fötum.
Marc Jacobs elskar drag
„Úti í hinum stóra heima hafa
nokkrar dragdrottningar gengið
tískupallana fyrir stóru nöfnin, og
verið í herferðum sem dragdrottn-
ingar eða herraútgáfan af sjálfum
sér. Það eru nokkrar dragdrottn-
ingar sem hafa komist það langt
og virkilega gaman að því. Margir
af aðalhönnuðunum í tískubrans-
anum elska drag og eru alveg að
fylgjast með því.“ Marc Jacobs hefur
til dæmis verið duglegur við að nota
dragdrottningar í herferðum sínum
að sögn Kötlu.
„Hann hefur líka nokkrum
sinnum leyft dragdrottningum að
mála sig og farið sjálfur í drag fyrir
viðburði, YouTube, eða bara til að
leika sér.“ Á þeim 25 árum sem Katla
hefur unnið í dragi hefur hún séð
vinsældir drags koma í bylgjum.
Hún telur að þó það komi einhvern
tímann niðursveifla eftir uppsveifl-
una sem er í gangi núna verði dragið
alltaf til. Draglistin hefur fengið
að lifa í langan tíma og virðist vera
komin til að vera.
Aðdáenda-
hópur draglista-
fólks stækkar
og dragið hefur
æ meiri áhrif á
tískustrauma í
heiminum.
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS
ÚTSALAN Í FULLUM GANGI
30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
1
1
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
8
-7
6
C
C
2
3
6
8
-7
5
9
0
2
3
6
8
-7
4
5
4
2
3
6
8
-7
3
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K