Fréttablaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 26
Sólrún Freyja Sen solrunfreyja@frettabladid.is Ýkja til að sjást á sviðinu Katla er þekkt fyrir að vera með mikla og áberandi förðun. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Dragdrottningar eru oft með nokkur gerviaugnhár í einu. Þökk sé vinsældum drags er fólk orðið djarfara í förðun og fatavali. Draglistin á sér lengri rætur í sögunni heldur en margir gera sér grein fyrir. Katla Ein- arsdóttir förðunarmeistari hefur starfað með draglistamönnum á Íslandi síðastliðin 25 ár. Katla segist hafa lesið í ýmsum bókum um drag að dragið komi frá þeim tíma sem Shakespeare var uppi, en þá máttu konur ekki stíga á svið og því voru karlar látnir leika kvenhlutverk. „Þaðan kemur skammstöfunin, „dressed as a girl“ eða drag. Drag er í grunninn leiklistarform,“ segir Katla. Tískan hermir eftir dragi Það er ekki að ástæðulausu sem draglistafólk er oftast með ýkta förðun. Á sviðinu eru sterk ljós notuð og það þarf að gæta að því að áhorfendur á aftasta bekk sjái eitt- hvað. Andlit og svipbrigði sýningar- fólks geta týnst ef förðunin er ekki nógu ýkt, hvort sem um er að ræða dragsýningar eða ekki. Draglistafólk hefur haft marg- breytileg áhrif á tískustrauma. Katla segir að oft taki draglistafólk tískufyrirbrigði eða gamla leikhús- tækni í förðun og ýki hana. „Svo er tískubransinn að horfa á dragið og herma eftir því. Þannig að þetta er eiginlega hringrás.“ Það má segja að draglistafólk hafi óbeint komið því í tísku að skyggja andlitið, eftir að Kardashian-kon- urnar fóru að sjást á miðlum með slíka förðun. Margir förðunar- fræðingar eru ósammála um ágæti þess að skyggja andlitið í daglegri förðun, enda kemur sú tækni úr dragheiminum og þessi förðunar- tækni er mjög ýkt til að virka á sviði. „Ég skil það alveg og er sammála, verandi förðunarmeistari sjálf.“ Veita förðunarfræðingum Kardashian-systra innblástur Kötlu finnst spennandi að heyra hvað stór nöfn í förðunarlistinni segja um þessa tækni og bera saman hvað poppkúltúr förðunar- fræðingum finnst. „Það eru þeir sem eru með Instagram- eða YouTube- síður og eru að farða raunveruleika- stjörnur. Þeir eru eiginlega jafn frægir og stjörnurnar sjálfar og nota þessa tækni mikið.“ Ástæðan fyrir því að þessi tækni er svona vinsæl meðal förðunar- fræðinga raunveruleikastjarna er sú að stjörnurnar eru eltar af hágæðamyndavélum daginn inn og út. Förðunarfræðingar Kardashian- kvenfólksins eru fullmeðvitaðir um að skyggingin kemur úr drag- listinni að sögn Kötlu. „Þær þurfa svona mikla förðun til að virka eðlilegri í mynd. Við hin labbandi út í búð eða farandi í Kringluna þurfum ekki jafn þykkt og mikið lag af farða.“ Þó getur fólk notað þessa tækni dagsdaglega, en ekki með jafn ýktum hætti. „Förðunar- fræðingar í tískubransanum nota þessa tækni líka en ekki í eins ýktum stíl.“ Ef allir væru með fimm lög af förðun dagsdaglega þá litu allir út eins og dragdrottningar. „Það þarf að finna meðalveginn.“ Tilgangur- inn með daglegri förðun er kannski ekki að fólk taki bara eftir hvað förðunin er flott heldur hvað maður sjálfur er flottur. Sjálf notar Katla ekki fimm lög af farða á venjulegum degi. „Ég skal alveg vera með fullt af áberandi förðun, ég er alveg þekkt fyrir það. En ég er ekki með þykkt og mikið lag. Það er alltaf hægt að blanda förðuninni miklu betur þegar maður er ekki uppi á sviði með mörg hundruð þúsund mega- vött af ljósi framan í sér.“ Af hverju ekki að leika sér Katla segir að draglistafólk hafi sérstaklega haft áhrif á förðunina en líka hárgreiðslu og klæðnað sem er oft ekki síður í ýktum stíl. „Þú getur hreinsað förðunina af og litað yfir hárið, og af hverju ekki að leika sér með það.“ Sú óskrifaða regla að bara megi leggja áherslu á eitt atriði í einu þegar kemur að fatavali og förðun er líka að detta út með drag- inu, enda er oft lögð áhersla á öll atriðin meðal draglistafólks. „Fólk er farið að þora að leggja áherslu á fleiri hluti, vera með geðveikt hár, augu, munn og fullt af skarti. Fólk er farið að leika sér aðeins meira með hlutina.“ Tískan leitar í jaðarinn Það kemur Kötlu ekkert á óvart að dragið hafi áhrif á tísku. „Tískan leitar oft í jaðarinn,“ önnur dæmi en drag eru pönkið, diskóið og rappið. „Tískan leitar í það sem er á jaðrinum en er að stækka og verða vinsælt.“ Þó dragið sé að komast í almenna tískustrauma er það þó bara einn hluti draglistarinnar. „Það er dragið sem við sjáum í Rue Paul’s Drag Race. Margir innan draglistarinnar segja að dragdrottningarnar þar séu eiginlega bara sendar út á færibandi því þær eru margar svo svipaðar. Þær eru með svipað lúkk, fataefni og pælingar, en keppnin í sjónvarps- þáttunum er líka mjög fastmótuð og strangar reglur um í hverju þær mega keppa í og hvernig þær mega performa.“ Á móti því kemur hverfisdraglist- in sem á svið á minni skala og meira listfrelsi. „Það er enn á jaðrinum og dragdrottningarnar þar eru ekkert endilega allar með fimm hárkollur og andlitsskyggðar í drasl.“ Dragsúgur hefur verið mest áberandi í dragsenunni á Íslandi með fjölbreyttum mánaðarlegum sýningum. Þar koma fram drag- drottningar, non binary listamenn og dragkóngar til dæmis. Katla segir að aðdáendahópur íslensku drag- listamannanna sé að stækka og hún hefur fulla trú á að íslenska dragið verði enn vinsælla. Drag er dýrt Þegar Dragsúgur byrjaði að sýna var fyrst ekki áætlað að halda mánaðar- legar sýningar, en úr því að fyrsta sýningin gekk svo vel hafa sýning- arnar haldið áfram. Sýningar Dragsúgs hafa selst upp flest öll kvöld og fólk í stórum hópum farið að kaupa miða í for- sölu. „Það er mögnuð breyting á Íslandi. Það er auðvitað oft uppselt á stóra viðburði eins og jólatón- leika eða þegar einhverjar erlendar stórstjörnur koma, en það að mánaðarleg sýning á Gauknum með draglistamönnum sé svona oft uppseld og geti selt nánast allt í for- sölu er yndislegt.“ Hér á landi eru draglistamenn enn að stíga fyrstu skrefin í tísku- mótuninni hjá sjálfum sér að sögn Kötlu. „Það er rosalega dýrt að vera í dragi og það er ekki vel borgað nema hjá örfáum.“ Þess vegna byrja margir draglistamenn á því sem er auðveldara og ódýrara. Þá hentar betur að vera með áberandi förðun og hár, en brjáluð föt koma seinna. Þó eru nokkrir draglistamenn byrjaðir að hafa áhrif á fatatísku hér á landi. Sumar dragdrottningarnar og dragkóngar sem eiga sterkan aðdáendahóp hafa verið með fata- sölu nokkrum sinnum. Katla segir að þá hafi fullt af aðdáendum drag- listafólksins mætt til geta klæðst þeirra fötum. Marc Jacobs elskar drag „Úti í hinum stóra heima hafa nokkrar dragdrottningar gengið tískupallana fyrir stóru nöfnin, og verið í herferðum sem dragdrottn- ingar eða herraútgáfan af sjálfum sér. Það eru nokkrar dragdrottn- ingar sem hafa komist það langt og virkilega gaman að því. Margir af aðalhönnuðunum í tískubrans- anum elska drag og eru alveg að fylgjast með því.“ Marc Jacobs hefur til dæmis verið duglegur við að nota dragdrottningar í herferðum sínum að sögn Kötlu. „Hann hefur líka nokkrum sinnum leyft dragdrottningum að mála sig og farið sjálfur í drag fyrir viðburði, YouTube, eða bara til að leika sér.“ Á þeim 25 árum sem Katla hefur unnið í dragi hefur hún séð vinsældir drags koma í bylgjum. Hún telur að þó það komi einhvern tímann niðursveifla eftir uppsveifl- una sem er í gangi núna verði dragið alltaf til. Draglistin hefur fengið að lifa í langan tíma og virðist vera komin til að vera. Aðdáenda- hópur draglista- fólks stækkar og dragið hefur æ meiri áhrif á tískustrauma í heiminum. Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS ÚTSALAN Í FULLUM GANGI 30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 1 1 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 8 -7 6 C C 2 3 6 8 -7 5 9 0 2 3 6 8 -7 4 5 4 2 3 6 8 -7 3 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.