Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.07.2019, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 11.07.2019, Qupperneq 32
Tónlistarmaðurinn góð-kunni Grétar Örvarsson er sextugur í dag. Hann ætlar að bíða með hátíðahöld af því tilefni þar til sumar-fríin eru um garð gengin. Fyrir akkúrat sextíu árum fæddist lít- ill snáði austur á Höfn í Hornafirði, inni í svefnherbergi heima hjá ömmu sinni, Signýju Gunnarsdóttur ljósmóður. Þetta var Grétar Örvarsson sem glatt hefur marga með snilli sinni gegnum tíðina, farið hring eftir hring kringum landið í tónleikaferðir með Stjórninni og skorað hátt í Eurovision með Siggu Beinteins. Grétar segir ræturnar vera á Höfn. „Mamma og pabbi voru bæði fædd á Höfn, pabbi flutti þaðan kringum 1960 en mamma bjó þar til 1983 og ég átti heima þar fyrstu tuttugu ár ævi minnar. Var búinn að stofna hljómsveitir þar með bestu hljóðfæraleikurum staðar- ins, Ragga Meisa, Sæma Harðar og Birki Birgis sem var á bassanum. Einn veturinn vorum við með hljómsveit í Sindrabæ sem hét Tilbreyting og spiluðum á böllum hverja einustu helgi. Þá voru alltaf böll.“ Þrátt fyrir að ballmenningin í landinu hafi vissulega dalað hefur hin vinsæla sveit Stjórnin gengið í endurnýjun líf- daga. „Við settum allt í gang í fyrra á þrí- tugasta afmælisárinu, gáfum út nýtt lag og erum búin að spila og syngja linnulaust síðan um páskana 2018,“ segir Grétar og kveðst ánægður með það. „Mér finnst bara svo gaman að spila, það gefur lífinu gildi. Svona var pabbi líka. Hann spilaði eiginlega fram í andlátið eða þangað til hann var orðinn svo veikur að það þurfti að rétta honum harmónikkuna þar sem hann sat.“ Varst þú eitthvað byrjaður að feta í fótspor hans og skemmta úti á Kanarí? „Ég tyllti mér þar niður í nokkrar vikur í minningu hans, heimsótti þá sem hann hafði spilað hjá og tók í hljóðfæri þar. Fólki þótti gaman að hitta mig og þá komst ég að því hvað pabbi hafði verið vinsæll, ekki bara meðal Íslendinga, heldur líka Norðmanna og Svía. Hann var eins og kóngur í ríki sínu á Kanarí, þar spilaði hann í 20 ár og leið vel.“ Heyrðu, verður stuð í dag á afmæl- inu? „Fólkið mitt er úti um hvippinn og hvappinn svona yfir hásumarið og sumir búa í útlöndum. Ég ætla því að fresta afmælisveislunni fram í septem- ber, þá næ ég frekar að hóa öllum saman. Mamma, Karen Karlsdóttir, átti afmæli í september og því er sá mánuður mér kær. En, ég geri eitthvað skemmtilegt í dag.“ Einn veturinn vorum við með hljómsveit í Sindrabæ sem hét Tilbreyting og spiluðum á böllum hverja einustu helgi. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ingibjörg Björnsdóttir Kolding, Danmörku, lést á Sct. Maria Hospice sjúkrahúsinu í Vejle, Danmörku 2. júlí. Útför hennar fer fram frá Bramdrupdam kirkjunni í Kolding föstudaginn 12. júlí klukkan 13. Sigurgeir Skírnisson Skírnir Sigurgeirsson Asbjørn Sigurgeir Skírnisson Fanney Klara Sigurgeirsdóttir Mike Agerup Guðrún Helena Sigurgeirsdóttir Andreas Simonsen Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Garðar Guðmundsson kaupmaður í Björnsbúð, Ísafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Eyri sunnudaginn 7. júlí. Útförin verður gerð frá Ísafjarðarkirkju þriðjudaginn 16. júlí kl. 14.00. Starfsfólki Eyrar eru færðar þakkir fyrir alúðlega umönnun. Jónína Jakobsdóttir Björn Garðarsson og Margrét Sverrisdóttir Jakob Falur Garðarsson og Vigdís Jakobsdóttir Atli Garðarsson Sverrir Falur Björnsson og Anna Fríða Gísladóttir, Kristín Björg Björnsdóttir, Dagur Jakobsson og Júlía Jakobsdóttir. Sonur minn og bróðir, Pálmi Freyr Óskarsson Faxastíg 12, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum sunnudaginn 7. júlí. Útför auglýst síðar. Óskar Jakob Sigurðsson Matthildur I. Eiríksdóttir Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, dóttir og systir, (María) Björk Albertsdóttir sem lést á Spáni 12. janúar síðastliðinn verður jarðsungin frá kapellunni í Fossvogi í dag, 11. júlí, klukkan 15. Elí Pétursson Bergur Snorri Salomonsen Elí Xavi Bjarkar Elíson Ingibjörg Gísladóttir Albert K. Skaftason Emilia Davíðsdóttir Eyvindur Elí Albertsson Gylfi Geir Albertssom Skafti Þór Albertsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Fjölnir Lúðvígsson Stóragerði 1a, Hvolsvelli, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 8. júlí sl. Útför fer fram frá Guðríðarkirkju, Grafarholti, 15. júlí nk. Ingibjörg M. Kristjánsdóttir Dane R. Ludvigsson Katherine Brown Rúnar Máni Baldursson Karítas Mist Hjartardóttir Birta Líf Fjölnisdóttir Gunnar Rafn Pálsson Helga Lind Fjölnisdóttir Óskar Heiðar Hansson og barnabörn. Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur og afi, Einar Bogi Sigurðsson Suður-Reykjum 3, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju mánudaginn 15. júlí kl. 15. Kristján Ingi Jónsson Ágúst Rafn Einarsson Rakel Guðmundsdóttir Matthías Einarsson Clare Patricia Dilworth Erna Einarsdóttir Sigurður Ágúst Finnbogason Guðríður Einarsdóttir og barnabörn. Elskuleg móðir, amma, dóttir og systir okkar, Sveiney Sverrisdóttir lést 15. júní. Jarðarför fór fram í Færeyjum 22. júní. Sverrir Dalsgaard Sigrid Dalsgaard og Oddmar Dam Tórur, Sandra, Bryndis og Chloe Sólveig Þorsteinsdóttir Olga, Kristín og Þórhildur og fjölskyldur. Bandaríska geimrannsóknastöðin Sky- lab I hrundi til jarðar að kvöldi þessa dags árið 1979. Brot úr henni dreifðust yfir stórt svæði yfir Indlandshafi og strjálbýlan hluta Vestur-Ástralíu. Síðasta merki frá stöðinni heyrðist síðdegis þennan dag, þá var yfirborð hennar tekið að flagna af eftir því sem hún nálgaðist jörðu. Dagana áður hafði mikið verið spekúlerað í hvar stöðin myndi lenda. Hún hafði verið úti í geimnum í sex ár, þar af ónotuð í fimm. Skylab var skotið upp í maí árið 1973 og bjuggu þrjú teymi geimfara í stöð- inni, hvert í allt að 84 daga, til að athuga áhrifin sem það hefði á manneskju að dvelja lengi í þyngdarleysi. Geimfararnir rannsökuðu einnig virkni sólarinnar og hvernig hún hefði áhrif á jörðina. Í febrúar 1974 yfirgaf síðasti hópurinn Skylab en síðan misstu vísindamenn stjórn á farinu sem átti samkvæmt öllu að vera áfram á sporbaug til ársins 1980 þegar ný geimskutla átti að koma henni til bjargar. Eftir að Skylab féll til jarðar hófst mikil leit að brotum úr stöðinni enda voru háar fjárhæðir í boði frá dag- blöðum, áströlskum yfirvöldum og fleirum. Þ E T TA G E R Ð I S T: 11. J Ú L Í 1979 Geimrannsóknastöðin Skylab fellur til jarðar Geri eitthvað skemmtilegt Tónlistarmaðurinn góðkunni Grétar Örvarsson er sextugur í dag. Hann ætlar að bíða með hátíðahöld af því tilefni þar til síðar þegar sumarfríin eru um garð gengin. „Við settum allt í gang í fyrra á þrítugasta afmælisárinu, gáfum út nýtt lag og erum búin að spila og syngja linnulaust síðan um páska 2018,“ segir Grétar um Stjórnina. Geimrannsóknastöðin Skylab. 1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 1 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 8 -9 9 5 C 2 3 6 8 -9 8 2 0 2 3 6 8 -9 6 E 4 2 3 6 8 -9 5 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.