Ófeigur - 01.06.1944, Page 1

Ófeigur - 01.06.1944, Page 1
Þjóð á vegamótum. ísland hefur lotið erlendum valdhöfum um nálega sjö alda skeið. En í dag er ísland þjóðveldi og hefur slitið síðustu þættina í kúgunarfjötri erlendra valdhafa. Nálega hver einasti fullorðinn Islendingur hefur gert þetta átak á vormánuðum 1944 í fullu samræmi við óskir og þrár þeirra mörgu þúsunda af íslenzkum stofni, sem búsettir eru í Vesturheimi. Þjóðveldismyndunin 1944 brúar yfir margra alda myrka gjá í stjórnarfari landsins og tengir nútímann og framtíðina við frelsis- öldina frá 930 til 1264. Þegar Islendingar stofnsettu þjóðveldi 930, var sú framkvæmd í einu byggð á framsýni, dirfsku og var- færni. Allt um kring voru konungdæmi með persónu- legri einveldisstjórn. Þjóðveldi Islendinga var stórfelld nýjung á stjórnmálasviðinu. Þjóðveldið var með viss- um hætti fyrirmynd allra nútímaríkja, sem hafna kcfn- ungdómi, en tryggja frelsi og jafnrétti þegnanna. Önn- ur höfuðuppgötvun Islenainga á sömu braut við þjóð- veldismyndunina var, hvernig þeir tryggðu tilveru þjóð- félagsins án þess að ofbjóða gjaldþoli borgaranna og þá ekki síður hitt, hversu vel var gengið frá jafnvægi ættanna, héraðanna og stéttannna, þannig að frelsið og menningin naut eðlilegra lífsskilyrða fram á 13. öld. Við endurreisn þjóðveldisins 1944 leggur íslenzka þjóðin út á glæsilega, en háskalega braut. Islendingar eru 120 þúsund manns, svipuð tala og á heima í einni götu í sumum af borgum stóru landanna. Þessi fámenni hópur ætlar að starfrækja fullkomið nútíma ríki, hafa sinn eigin þjóðhöfðingja, fulltrúa erlendis, þjóðþing, hæstarétt, háskóla, strandgæzlu, lögreglu, samgöngur -á sjó, landi og í lofti, margháttaðar menntastofnanir, LANDSBÓKASAFN JV? 157093 íS LAN ) S

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.