Ófeigur - 01.06.1944, Síða 9
ÓFEIGUR 9
kaupi bænda og sjómanna frá undangengnum fjórum
árum, að ógleymdum gömlu innstæðunum frá mögru
dögunum. Þetta á að vera til að þóknast kommúnistum,
til þess að á pappírnum líti ekki út fyrir að kaupið lækki,
þó að framleiðsluvörur falli erlendis. Sveitamenn hafa
borgað skuldir og eiga talsverðar innstæður, sem verða
að ganga til jarða- og húsa-bóta eftir stríðið. Ef krónan
verður felld með einu pennastriki af stjórnarvöldum
landsins, þá er tekinn f jórði hluti, helmingur eða meira
af margra ára kaupi mikils hluta þjóðarinnar. Þjóðin
stendur á marbakkanum. Hyldýpið er fram undan. Samt
má enn snúa við. Ef fólk í sveitum, sjómenn, útgerðar-
menn, iðnaðarmenn og launamenn í kauptúnum og kaup-
stöðum beita sameiginlega áhrifum sínum á trúnaðar-
menn þjóðfélagsins um að knýja fram þá einföldu kröfu,
að krónan verði ekki felld gagnvart pundi og dollar, þá
er innstæðunum og framförunum bjargað.
* # #
Sumir yfirborðsmenn halda að íslenzka þjóðveldið
eigi að hafa marga sendiherra eftir stríðið. Slíkt væri
fásinna. Þjóð sem er 120 þúsundir getur með erfiðleik-
um kostað einn sendiherra, búsettan í London. Þaðan
getur hann flogið til annarra landa, þegar þar þarf að
sinna meiri háttar erindum. Honum getur verið fengið
sendiherrastarfsvið hjá þeim þjóðum, þar sem hann
sinnir erindum. Danir eru 40 sinnum fleiri en fslend-
ingar og hlutfallslega miklu efnaðri. Samt völdu þeir
í nokkrar sendiherrastöður sínarmenn, af því aðþeirvoru
svo ríkir að þeir kostuðu af eigin eignum hálf útgjöld
við stöðuna. Sama er að segja um skrifstofuhald utan-
ríkismála hér í Reykjavík, að það mun geta dregizt
stórlega saman eftir stríðið. Auk eins sendiherra þarf
ísland í framtíðinni tvo til þrjá heimansenda ræðismenn.
Annars er hægt að fá ólaunaða ræðismenn, sem gera
mikið gagn. Ef ísland gætir ekki hófs um utanríkis-
málaeyðslu gera fslendingar sig að undri og setja fjár-
málin í hættu.
# * *
fsland þarf ekki her, en nægilega sterka lögreglu til
að halda í heiðri rétti ríkisvaldsins. Rússar hafa milljóna
her og þola engan mótblástur gegn stjórnarvöldunum.
Stauning hafði ágætlega vopnaða lögreglu til verndar
friðnum. Hér á landi hafa kratar og kommúnistar talið