Ófeigur - 01.06.1944, Blaðsíða 11

Ófeigur - 01.06.1944, Blaðsíða 11
ÓFEIGUR 11 sjóslysi við mynni Reykjavíkurhafnar. Laxfoss strand- aði þá fullur af farþegum. Mannbjörg varð að lokum eftir margra tíma hættulega bið á brotnu skipi. En inni á höfn höfuðborgarinnar lá Ægir, björgunarskip lands- ins. Ef skipshöfnin hefði verið lögregla, myndi Ægir hafa verið kominn út að Laxfossi fáum mínútum eftir að strandið átti sér stað. En það tók tvo tírna að ná nægilega mörgum mönnum úr landi til að gera skipið starfhæft. Skipshöfnin var í sínum fulla rétti. Hún átti að vera í landi eftir ráðstöfun skammsýnna verkamanna- forkólfa. Fyrir nokkrum árum hafði Pálmi Loftsson gert frumvarp um sjólögreglu. Skyldu allir menn á varð- skipum og varðbátum hafa rétt og skyldur lögreglu- manna. Ef þetta frv. hefði náð fram að ganga, hefði öll- um farþegum verið bjargað, rétt eftir að Laxfoss strand- aði. Eða var betra að láta 100 menn farast við hafnar- mynnið ? * * # Bændum bjóðast nú kaupamenn fyrir 400 kr. um vikuna, og allt annað kaupgjald eftir því. Engin vissa er fyrir hækkuðu afurðaverði. Þvert á móti mjög vafa- samt um þá hlið. Fólk ber fyrir sig 16% kauphækkun í vetur og aðra í vor. 1 hvorugt skiftið höfðu bændur minnstu áhrif á hækkunina. Þeir eru stærsta stétt lands- ins, meira en 6000 heimilisfeður. En þeir eru eina stétt- in, sem er dreifð og sundruð um fjármál sín. Allar aðrar stéttir eru skipulagðar. 20 kolamokarar á Sigulfirði geta stöðvað allan síldarflotann á miðri vertíð. Hinir embætt- íslegu trúnaðarmenn bænda segja að það sé höfuðglæpur að tala um pólitísk atvinnusamtök bænda og banna með sjálfteknu valdi, að bændur hafi samtök eins og allar aðrar stéttir. Búnaðarfélag Islands hefir alls ekkert gert til að verja bændur gégn ofsa kommúnista. — Bændum eru þrjár leiðir opnar til lífsbjargar í þessu efni. 1. Að stjórn Búnaðarfélags taki rögg á sig og fái umboð til að beita sér móti kommúnistum. 2. Að búnaðarsam- böndin leysi vandann. 3. Að bændur myndi ópólitísk stéttasamtök. * * Það er erfitt að temja tófuna. Eysteinn Jónsson, Guð- brandur Magnússon og Vilmundur Jónsson héldu að þeir gætu tamið kommúnista í verzlunarmálum Reykjavíkur. Þeir höfðu stofnað lítið en f járhagslega örugt kaupfélag

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.