Ófeigur - 01.06.1944, Síða 4
4
ÖFEIGUR
fyrirvarans og eftirvarans. Mér var ljóst, að nýtt tíma-
bil með nýjum viðfangsefnum var í nánd. Ég sneri mér
að framtíðinni og því, sem koma átti. Og nú er það
almennt viðurkennt, að blað ungmennafélaganna átti á
þessum árum, með áhugaliði þjóðarinnar, verulegan þátt
í að undirbúa næsta tímabil, átökin um að skapa í land-
inu starfhæft stjórnarfar með alhliða framförum til
undirbúnings fullkomnum skilnaði Danmerkur og Is-
lands. Næsta viðfangsefni mitt var að skapa bæði sam-
vinnublöðin, Tímann og Dag. Um þau fylkti liði mikið
af samvinnumönnum landsins og stuðningsmönnum
Skinfaxa frá undangengnum árum. Ég vann sem sjálf-
boðaliði við Tímann um 25 ára skeið og við Dag í 2
missiri. Ég skildi við bæði blöðin sem víðlesin og nokk-
uð áhrifamikil landsmálablöð, og ég get með sanngirni
vonast eftir, að þeir, sem tóku við arfinum, væru menn
til að ávaxta hann. Sá grundvöllur, sem lagður hafði
verið með stofnun samvinnublaðanna, var þýðingarmik-
ill fyrir íslenzk stjórnmál. Hér á landi mynduðust þrír
lýðræðisflokkar með ákveðnum stefnum. Um rúmlega
aldarf jórðungs skeið unnu þessir flokkar, stundum sátt-
ir, en oft með ósátt, að stórfelldum framkvæmdum og
umbótum í landinu, og að lokum undirbjuggu þeir í fé-
lagi skilna'ð Islands og Danmerkur, sem nú er nýlega
lokið.
En sá viðburður markar óhjákvæmilega ný tímamót
í þjóðlífi Islendinga. Áður var stefnt að skilnaði. Nú er
vandinn að tryggja sigurinn með því að tryggja fram-
tíð þessa nýmyndaða þjóðveldis eigi miður en forfeð-
urnir gerðu fyrir sitt leyti á 10. öld. Ekkert sannar
betur, að tímamót eru í vændum á Islandi, en sú al-
þekkta staðreynd, að lítill hópur vanþroskaðra öfga-
manna, sem stefnir að hruni núverandi þjóðskipulags
og þingstjórnar, hefur um nokkurra missira skeið getað
leikið svo með suma af trúnaðarmönnum þjóðarinnar,
að Alþingi og kjósendur hafa raunverulega hætt að
stjórna landinu. Þjóðin er um stundarsakir sett undir
stjórn eins og mörg norsk sveita- og bæjarfélög eftir
fyrra stríðið, þar sem kommúnistar höfðu ráðið um
stund og komið öllu skipulagi og f jármálum á ringulreið.
Fyrir þá, sem muna glöggt hina fyrri upplausn ís-
lenzkra stjórnmála 1908—1916 og hafa átt þátt í með
mörgum öðrum að undirbúa hina þjóðlegu viðreisn fyrri
i