Ófeigur - 01.06.1944, Qupperneq 5
ÓFEIGUR
5
ára, er viðfangsefnið ofur einfalt. Að því er mig snertir
vil ég láta söguna endurtaka sig. Ég stofna nýtt tímarit
um íslenzk mannfélagsmál. Það verður eitt af þeim
minnstu, sem til eru í landinu. En ég veit af reynslunni,
að áhrif blaða og tímarita eru ekki nema að nokkru
leyti komin undir pappírsmagninu. Ég mun í þessu tíma-
riti leitast við að koma víða við, leita bæði að mein-
semdum þjóðfélagsins og viðeigandi læknisdómum. Með
þessum hætti myndast eins og áður fyrr eínföld verka-
skipting. Sum blöðin flytja fréttir, sögur, afmælis- og
æfiminningar og ritgerðir, sem lúta sérstaklega að
valdastreitu sérstakra stjórnmálamanna. Ég hef valið
hinu nýja tímariti nafnið Ófeigur eftir hinum nafn-
kennda bónda frá söguöld, Ófeigi í Skörðum í Þing-
eyjarsýslu. Hann var fyrirmyndar borgari hins forna
lýðveldis. Hann þoldi ekki ranglæti, svik eða yfirgang
gagnvart þeim, sem voru minni máttar, en beitti kjarki
sínum og orku til alþjóðargagns og til að efla frið og
manndóm í landinu. Þegar Þingeyingar stofnuðu fyrsta
samvinnufélag landsins fyrir rúmum 60 árum, gáfu þeir
út um langt skeið handritað blað til sóknar og varnar
hinu nýja skipulagi. Þeir nefndu þetta fyrsta baráttu-
rit samvinnumanna eftir bóndanum í Skörðum. Nafn
Ófeigs varð nú nýlega á margra vörum í sambandi við
óheppilega tilraun, sem gerð var til að lækka sögulegan
hróður hans í samanburði við annan fornmann, sem tók
mútur, brást trú sinni, sat um líf nábúa sinna og barðist
við sonu sína út af illum málstað. Allt, sem vitað ér
um Ófeig í Skörðum, gerir hann enn þann dag í dag,
líka í nútíma þjóðveldi, að eftirbreytnisverðum fyrir-
myndarmanni, ekki sízt í litlu landi, þar sem munar
mikið um hvern þann mann, sem stefnir rétt.
Islenzkir samvinnumenn hafa stofnað tvö vikublöð,
en þeim hefur ekki tekizt enn að koma á fót tímariti
um stjórnmál. Ófeigur verður tilraun í þá átt. Ég mun
fylgja hér sömu aðferð og við stofnun samvinnublað-
anna, byrja í smáum stíl og láta reynsluna skera úr,
hvort þjóðin vill eða vill ekki styðja framkvæmdina.
Viðfangsefnin fyrir stjórnmálatímarit eru mjög mörg.
Vandinn er að gera þeim skil í stuttu máli, en þó með
þeim hætti, að hugsandi menn í landinu veiti því eftir-
tekt og vilji vinna að lausn málanna, eftir því sem efni
standa til.