Ófeigur - 01.06.1944, Qupperneq 8
8
ÓFEIGUR
og samherja, sem stefna að samstarfi við upplausnar-
lýðinn. Ég hef haft mikinn áhuga fyrir að ,,agitera“
fyrir flokkinn, málefnum hans og mönnum, sem átti að
skapa tiltrú. En ég kann alls ekki að ,,agitera“ móti
samherjum mínum innan flokksins. Aðrir menn í
flokknum hafa gripið ,,flokksmaskínuna“ og snúið
henni með einhliða áróðri gegn sínum eigin samherjum
í upplausnarmálinu. Sá meirihluti sem talið er að feng-
ist hafi í Framsóknarflokknum á síðasta flokksþingi
var að heita má eingöngu fenginn með einhliða innan-
flokksáróðri. Gott sýnishorn er það, að í einum hreppi
sunnanlands höfðu um 30 bændur á almennum fundi
lýst yfir velþóknun á baráttu framleiðenda móti hrimi.
En einn bóndi vildi reyna fylgilag við kommúnista.
Þessi eini maður kom á flokksþingið, sem fulltrúi bænda
í sinni sveit. Þar, sem flokksmaskínan hafði látið hvem
búa að sinni sannfæringu, var hin þjóðlega, íslenzka
stefna óbreytt, sem von var til.
# # #
Gröndal þótti fyndinn, þegar hann sagði í annálsformi,
að stolið hefði verið frá þeim sem ekkert áttu. Nú er
fyndnin sýnd í verki. Nú á þjóðin að stela frá sjálfri sér.
Kommúnistar og gistivinir þeirra segja: Erlendis eru
500 miljónir, sem er eign nokkurra íslenzkra auðmanna.
Þetta er illa fengið. Tökum þetta fé, og notum það til
almanna þarfa. Þessa fáu, ríku menn munar ekkert þó
að tekinn sé af þeim bróðurparturinn. Síðan er ráðgert
eins og við lítil börn, hvað eigi að gera við miljónimar.
Einn vildi láta 60 miljónir í ræktun. Annar vildi láta 100
miljónir í skip og báta. Þriðji gat sætt sig við að fá 80
miljónir í rafmagn. En það datt ofan yfir þetta fólk,
þegar í ljós kom, að allar þessar miljónir eru sparifé
þjóðarinnar. 1 Landsbankanum einum eru 47 þúsund
sparisjóðsbækur. Síðan koma hinir bankarnir og spari-
sjóðirnir. Ef á að stela af inneignum bankanna og spari-
sjóðanna með gengisbreytingu eða á annan hátt, þá
er verið að rýja bóndann, sjómanninn, iðnaðarmanninn,
verkakonuna og börnin. Sparisjóðseignin er aleiga
margra þessara manna og hún stendur í inneignunum
erlendis.
Nú eru miklir menn í Reykjavík að ráðgera að fella
islenzka krónu um 25 eða jafnvel 50%. Þar með verður
tekinn fjórði hluti eða helmingur af samanspöruðu