Ófeigur - 01.06.1944, Side 14
14
ÓFEIGUR
vill ekki gefa fé til fámunalega ljótra bygginga, þó að
teikningarnar hafi orðið til með samkeppni.
# # #
Alexander Jóhannesson hefur ekki orðið umbjóðend-
um sínum, ríkisstjórninni, til gleði í hátíðanefndinni.
Hefur Alexander móðgað allt sveitafólk með fáránleg-
um auglýsingum. Eitt sinn taldi hann sig geta skotið
skjólshúsi yfir sveitafólk, sem komi til bæjarins. Öðru
sinni taldi hann alla, nema Reykvíkinga, utanbæjar-
menn á Þingvöllum. Eitt sinn ætlaði hann að senda alla
Reykjavíkurbílana niður með Sogi 17. júní, en hefði þar
með varnað Árnesingum, Rangæingum og Skaftfell-
ingum að koma á hátíðina.
'Jií ío.smcLcL 04 lcccupmcLa. Ofie.íqs.
Fyrstu eintök blaðsins verða send allmörgum
mönnum án þess, að þeir hafi um það beðið. Þeir,
sem ekki vilja gerast kaupendur, eru beðnir að
endursenda blaðið.
Síðar í sumar verður kaupendum send póst-
krafa um andvirði Ófeigs fram að áramótum.
I næsta blaði Ófeigs verður beint ýtarlegum
fyrirspurnum til eins hins reyndasta og ritfær-
asta af þeim Framsóknarmönnum, sem hafa vilj-
að binda flokkinn í samstjórn með kommúnistum.
Þar verður spurt um, hvaða rök hann getur fært
fram til skýringar á því, að Framsóknarmenn
lögðu þar inn á leið, sem enginn sæmilegur lýð-
ræðisflokkur hafði áður talið sér samboðna.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jónas Jónsson, frá Hriflu.
Afgrciðslumaður: Helgi Lárusson, Aðaistræti 9, Reykjavík.
Prentað í Steindórsprenti h.f. Kirkjustræi 4, Reykjavík.